tag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post2929301629907882422..comments2023-10-01T12:21:46.500+00:00Comments on Druslubækur og doðrantar: Börnin í svínastíunniRitstjórnhttp://www.blogger.com/profile/12435006317555441485noreply@blogger.comBlogger11125tag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-65951500707265084762011-10-19T15:30:55.731+00:002011-10-19T15:30:55.731+00:00Mér fannst bókin mjög góð, og húmorisk miðað við h...Mér fannst bókin mjög góð, og húmorisk miðað við hvað sagan um fjölskylduna er eins og saga um áfengissýki er, sifellt versnandi og vonlaus. Hafði einkum gaman að tungumálinu í byrjuninni, með öllum finnskuskotum.
En það finnst mér ömurlegt hvað Finnar hafa alltaf svona sögu að segja. Satt má þó vera að margir þeirra sem fluttu til Svíþjóðar á sinum tíma voru sveitafólk og gengu í gegnum margfaldan menningarsjókk, flytja i annað land, byrja að vinna í verksmiðju og búa í blokk. Þó að ekki fóru þeir allir í hundana. Þeir sem vinna sina vinnu eru ekki frásögum færandi, en það er alltaf Litáui sem stelur og Finni sem er fullur.
Og mig grunar að svona hálfrasistiskt viðhorf eða hugarfar er ennþá viðloðandi hjá Svíum og Finnar sem hafa aðlagast hafa tileinkað sér það: Finninn á bara að vinna og steinhalda kjafti. Hvernig er hægt annars að útskýra að margir eru með finnskan bakgrunn í Svíþjóð, en örfáir hafa eitthvað skrifað (til dæmis) og það á sænsku. Finnsk alþýðuskáld í Svíþjóð... ég veit um ekkert dæmi. Ef maður ber það saman með Finnlandssænskar bókmenntir, miðað við höfðatölu, eru þær ekki á sömu plánetu.

gott að þú tókst þessa bók í umfjöllun, Erla!

kv.
TapioAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-9784990923260039432011-10-19T12:36:13.803+00:002011-10-19T12:36:13.803+00:00Angelas' Ashes finnst mér æðisleg bók (og fram...Angelas' Ashes finnst mér æðisleg bók (og framhaldsbækurnar líka) en ég meikaði ekki að horfa á myndina til enda. Ég var orðin svo miður mín yfir öllu volæðinu að ég hætti í miðju kafi.Þórdís Gísladóttirhttps://www.blogger.com/profile/00489551429010305247noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-23640592779832714662011-10-18T18:26:47.963+00:002011-10-18T18:26:47.963+00:00Það er einmitt málið. Það er hægt að lýsa fólki kó...Það er einmitt málið. Það er hægt að lýsa fólki kómískt í öllum hryllingnum en þegar það er komið á mynd þá verður það of ...Þórdís Gísladóttirhttps://www.blogger.com/profile/00489551429010305247noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-78677090087196831392011-10-18T18:21:58.658+00:002011-10-18T18:21:58.658+00:00Já, bókin er nefnilega mjög húmorísk, það hefði má...Já, bókin er nefnilega mjög húmorísk, það hefði mátt koma betur fram hjá mér!

En þetta er góður punktur, með bækur og bíómyndir af þessari sort. Eins og stundum sé ekki hægt, eða að minnsta kosti miklu erfiðara, að koma mannlegu núönsunum (eða jarðtengingunni) úr frásögninni almennilega til skila í mynd. Verður oft allt að því yfirdrifin hörmung.Erla Elíasdóttir Völudóttirhttps://www.blogger.com/profile/01606098748807369030noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-54076486965912439262011-10-18T17:09:47.798+00:002011-10-18T17:09:47.798+00:00Ég hef ekki séð né lesið Svínastíuna, en ég hef ei...Ég hef ekki séð né lesið Svínastíuna, en ég hef einmitt stundum séð það gerast sem þú nefnir, Þórdís, að myndir byggðar á bókum sem fjalla um erfiðar aðstæður verða svo átakanlega realískar að kímnin í frásögninni dettur alveg út og maður leggst í þunglyndi á eftir.

Mér detta í hug Djöflaeyjan og Angela´s Ashes. Ég sá myndirnar báðar þegar ég var krakki og sór og sárt við lagði að ég skyldi aldrei lesa þessar hræðilegu bækur. Svo gerði ég það, sennilega í skólanum, og þær voru miklu auðveldari aflestrar.Kristín Svavahttps://www.blogger.com/profile/17282161670518933368noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-14166420866912918002011-10-18T15:55:15.527+00:002011-10-18T15:55:15.527+00:00Ég sá einhversstaðar í viðtali að Alakoski byggi a...Ég sá einhversstaðar í viðtali að Alakoski byggi að einhverju leyti á eigin barnæsku, en því miður finn ég ekki viðtalið (ég las það örugglega fyrir nokkrum árum).Þórdís Gísladóttirhttps://www.blogger.com/profile/00489551429010305247noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-68183193280746314012011-10-18T15:07:24.649+00:002011-10-18T15:07:24.649+00:00Bókin er miklu betri finnst mér. Ég er ekki eins h...Bókin er miklu betri finnst mér. Ég er ekki eins hrifin af myndinni og margir. Í bókinni er húmor sem er ekki í myndinni. Tímabilið þar sem þau eru eldri í myndinni, mamman á spítala etc. er allt skáldað upp, bókin lýsir bara æsku Leenu og systkina hennar.
Þegar ég sá myndina datt mér í hug Djöflaeyjan. Fólkið í bókinni er sorglegt og kómískt en fólkið í myndinni eiginlega bara sorglegt.Þórdís Gísladóttirhttps://www.blogger.com/profile/00489551429010305247noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-25429433880735280482011-10-18T14:06:10.860+00:002011-10-18T14:06:10.860+00:00Já, það er alveg rétt hjá þér, Eiríkur. Ég átti vi...Já, það er alveg rétt hjá þér, Eiríkur. Ég átti við að nafngiftin Svínastían vísaði fremur í félagslega stöðu, því þar bjuggu ekki bara Finnar eða bara innflytjendur, heldur fólk sem átti lága félagslega stöðu sameiginlega, einnig Svíar.Erla Elíasdóttir Völudóttirhttps://www.blogger.com/profile/01606098748807369030noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-7570971936611163762011-10-18T14:03:57.433+00:002011-10-18T14:03:57.433+00:00Trúi því líka alveg. Það er auðvitað meginpunktur ...Trúi því líka alveg. Það er auðvitað meginpunktur sögunnar, þetta hrikalega ástand. Ég átti helst við að ég býst við þessari snurfusuðu áferð sem persónur kvikmynda hafa, sama hvort um er að ræða útigangsfólk eða langt leidda alkóhólista - það er kannski "stating the obvious"...

En myndir sem ekki koma frá Hollívúdd eru reyndar oft aðeins eðlilegri með svona langað.Erla Elíasdóttir Völudóttirhttps://www.blogger.com/profile/01606098748807369030noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-26428347127591668992011-10-18T14:02:43.639+00:002011-10-18T14:02:43.639+00:00Ég hef ekki séð myndina - en lesið bæði bókina og ...Ég hef ekki séð myndina - en lesið bæði bókina og séð leikgerð.

Ég átta mig samt ekki á því hvað þú átt við með að fordómarnir hafi verið „félagslegir“ frekar en „þjóðernislegir“ - Svíar höfðu einfaldlega mjög mikla þjóðernisfordóma í garð Finna, sem lýsti sér meðal annars í því að margir Finnar fóru í grafgötur með þjóðerni sitt í Svíþjóð, skiptu um nöfn og hættu að tala finnsku og ég veit ekki hvað og hvað. Sem er til dæmis ástæðan fyrir því að Alakoski talar víst sjálf mjög lélega finnsku.Eiríkur Örn Norðdahlhttps://www.blogger.com/profile/17777562476240194569noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-23342609140976123132011-10-18T13:49:37.358+00:002011-10-18T13:49:37.358+00:00Úff, bókin má vera svakaleg ef myndin fegrar eitth...Úff, bókin má vera svakaleg ef myndin fegrar eitthvað. Ég sá hana í gær og varð nóg um. En ég tek strax eftir því að eldri bróðirinn hverfur. Í myndinni á Leena bara yngri bróður.

JYJAnonymousnoreply@blogger.com