tag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post6242328048676877729..comments2023-10-01T12:21:46.500+00:00Comments on Druslubækur og doðrantar: Bokasofn eru vinir minir, meira ad segja i BretlandiRitstjórnhttp://www.blogger.com/profile/12435006317555441485noreply@blogger.comBlogger4125tag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-28729761843469897292012-02-28T00:03:04.886+00:002012-02-28T00:03:04.886+00:00Já, ég á mjög erfitt með að nota bókasöfn þar sem ...Já, ég á mjög erfitt með að nota bókasöfn þar sem aðgangurinn takmarkast við pöntun í gegnum starfsfólkið. Skil það mjög vel með ákveðnar bækur, sbr. handritadeild + þjóðdeild, en að geta ekki flett almennum fræðibókum í hillum og þreifað sig þannig áfram að gríðarlega pirrandi. Ég notaði t.d. þjóðarbókasafnið í Aberystwyth sama sem ekkert þótt ég byggi þar í þrjú ár; magnað safn (landsbókasafn sem geymir eintak af öllu sem gefið er út) en ekki hentugt fyrir hinn almenna háskólastúdent.Salka Guðmundsdóttirhttps://www.blogger.com/profile/00351265149356073602noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-58179904022596900442012-02-19T22:07:00.698+00:002012-02-19T22:07:00.698+00:00Ég hef ekki prófað nein almenningsbókasöfn hér í P...Ég hef ekki prófað nein almenningsbókasöfn hér í Portúgal - ég fann einhvers konar samkeyrðan katalóg á netinu og prófaði handahófskennda leit en virtist sem alþjóðlega úrvalið væri ekki mjög fjölbreytt. Ef ég væri bara að leita að bókum á portúgölsku gæti það sjálfsagt verið gott, en ég les svo hægt á því ágæta máli að það eru engin rosaleg útgjöld þótt ég kaupi bara bækurnar.

Þegar ég var í Coimbra í þessu sama landi um árið ætlaði ég upphaflega að nota háskólabókasafnið, en varð svo brjálæðislega pirruð á því að það væri ekki hægt að browsa sjálfur í hillunum heldur þurfti maður að panta allar bækur í afgreiðslunni að ég nennti því á endanum aldrei. Kosti og galla þess kerfis reyndi ég stundum í bjartsýniskasti að útskýra fyrir þeim sem reiddust yfir týndum bókum á Þjóðarbókhlöðunni, við misjafnar undirtektir.Kristín Svavahttps://www.blogger.com/profile/17282161670518933368noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-16951611982701716902012-02-19T16:37:19.062+00:002012-02-19T16:37:19.062+00:00Ja, eg hef thad sama a tilfinningunni med bresku a...Ja, eg hef thad sama a tilfinningunni med bresku almenningsbokasofnin, th.e.a.s. ad folk fari mjog mikid thangad til ad komast i okeypis tolvu. Reyndar er margt snidugt i gangi a sofnunum eins og t.d. bounce and rhyme sessions, sem eru svona tonlistar-, lestrar- og thulumorgnar fyrir smaborn, thannig ad thau virdast thjona akvednu felagslegu hlutverki. En thad er hrikalegt hvad thau eru einmitt litil, draslaraleg og jafnvel sodaleg.Salka Guðmundsdóttirhttps://www.blogger.com/profile/00351265149356073602noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-7413558493147188922012-02-18T22:37:23.077+00:002012-02-18T22:37:23.077+00:00(Það má finna lyklaborð ýmissa tungumála á googlet...(Það má finna lyklaborð ýmissa tungumála á googletranslate, en það er auðvitað ómöguleg handavinna að líma alla íslensku stafina handvirkt inn.)
Ég var í fyrra í litlum bæ nálægt Madrid á Spáni, og bókasafnið þar var hreint ekki gott, frekar en nokkuð annað þar í bæ ef út í það er farið. Ég sá aldrei nema eitt almenningsbókasafn en það var ekki á vegum bæjarins heldur bankans Caja Madrid, sem sérhæfir sig í að styrkja ýmis menningarmál.
Safnið virtist mikið notað, en það var pínkulítið og draslaralegt og það voru ekki beinlínis margar bækur þar. Flestir virtust fara þangað til að komast í tölvurnar eða fá dvd-mynd.
Ragnhildur.Anonymousnoreply@blogger.com