tag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post1337935565569564625..comments2023-10-01T12:21:46.500+00:00Comments on Druslubækur og doðrantar: Af austenskum tilfinningaþungaRitstjórnhttp://www.blogger.com/profile/12435006317555441485noreply@blogger.comBlogger6125tag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-11465630848589796052012-02-13T17:49:32.148+00:002012-02-13T17:49:32.148+00:00Ég á sjálf mjög erfitt með að gera upp á milli þei...Ég á sjálf mjög erfitt með að gera upp á milli þeirra, finnst þær svo ólíkar (eins og fram kom í pistlinum), en Persuasion tengdi ég mjög sterkt við og held hún tróni á toppnum í augnablikinu. Þær tala líka auðvitað misvel til manns eftir því hvenær maður les þær; ég las t.d. Emmu fyrst þegar ég var 17 ára á ferðalagi um Frakkland og Danmörku, og fannst hún alveg hrikalega skemmtileg og sniðug. Ég á minningu um að liggja í kaupmannahöfnsku rúmi að klára Emmu um miðja nótt á meðan vinkona mín hraut við hliðina á mér.

En þetta er mjög góður púnktur með karlpersónurnar, Ragnhildur! Aðalkarlpersónurnar hennar Jane Austen eru iðulega fremur óeftirminnilegar, hafa ef til vill eitthvert ákveðið sérkenni og virka yfirleitt þvermóðskufullir við fyrstu kynni, en mildast svo gagnvart aðalpersónunni. Ég man ekki eftir senu milli tveggja karla í Austen-bók, þ.e.a.s. þar sem við fáum að vera á staðnum og fylgjast með. Okkur er sagt frá því þegar einhver fer og biður um hönd stúlku en heyrum aldrei á tal þeirra og frásögnin er sett fram í framhjáhlaupi eða eftir á. Ég er að fara að lesa The Watsons (ófullgerðu skáldsöguna) og ætla að hafa augun opin fyrir þessum athyglisverða punkti.Salka Guðmundsdóttirhttps://www.blogger.com/profile/00351265149356073602noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-26232530428139096382012-02-13T15:08:58.824+00:002012-02-13T15:08:58.824+00:00Það er eitt skondið við bækur Jane Austen, þær eru...Það er eitt skondið við bækur Jane Austen, þær eru einu verkin sem ég get látið mér detta í hug sem myndu falla á nokkurskonar öfugu Bechdel-prófi. Karlkyns karakterar eru yfirleitt bara til staðar til að geta gegnt ákveðnu hlutverki í söguþræðinum, að vera dæmdir sem verðugir eða óverðugir fyrir kvenpersónur.
Það eru að vísa alveg fleiri en einn karl í hverri bók, þeir tala stundum saman og um eitthvað annað en konur, en hvergi held ég að finnist sena þar sem kona er ekki nærstödd.
Mér fannst svolítið eins og eina fullmótaða karlpersónan í bók eftir hana væri hinn útvaldi í Northanger Abbey. Mér finnst þetta lúmskt hressandi sagnaheimur, en samt þegar ég las Norhanger Abbey þá velti ég fyrir mér hvort bækurnar hennar hefðu getað verið betri ef karlkyns persónur hefðu verið dýpri.
RagnhildurAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-90658184340910641412012-02-13T13:05:15.063+00:002012-02-13T13:05:15.063+00:00Persuasion er mitt uppáhald. Ég veit samt ekki alv...Persuasion er mitt uppáhald. Ég veit samt ekki alveg afhverju. En mér þykir vænt um allar bækurnar hennar.Hildur Knútsdóttirhttps://www.blogger.com/profile/13157510246081528908noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-75523754778423582972012-02-13T11:00:20.873+00:002012-02-13T11:00:20.873+00:00Ég er mjög ófrumleg og held mest upp á Pride &...Ég er mjög ófrumleg og held mest upp á Pride & Prejudice, sennilega ekki síst út af Elizabeth Bennet sem er sennilega sú bókmenntapersóna sem ég vildi helst líkjast (en geri því miður ekki). Emma er sennilega í öðru sæti hjá mér en í því tilfelli er það bókin en ekki persónan.

Mig langar að fara að lesa Northanger Abbey aftur, hef bara lesið þá bók einu sinni og það er langt síðan, held að ég hefði meiri húmor fyrir henni núna.

Sense & Sensibility finnst mér líka fín. Aftur á móti hef ég aldrei fallið fyrir Persuasion þótt mér finnist hún margt gott í henni. En það er allavega á hreinu að Mansfield Park er neðst á listanum hjá mér. Fanny Price er bara óbærilega leiðinleg.Erna Erlingsdóttirhttps://www.blogger.com/profile/04457567423275575825noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-89625778409046123712012-02-13T09:28:02.504+00:002012-02-13T09:28:02.504+00:00Ég hef aldrei fengið neitt út úr Austen en þessi k...Ég hef aldrei fengið neitt út úr Austen en þessi kona sem beinir sjónaukanum á haf út er í fallegum kjól.Þórdís Gísladóttirhttps://www.blogger.com/profile/00489551429010305247noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-15471536368139848982012-02-13T08:18:46.486+00:002012-02-13T08:18:46.486+00:00Persuasion er í miklu uppáhaldi hjá mér, en hinar ...Persuasion er í miklu uppáhaldi hjá mér, en hinar bækur Austen eru svo frábærar að það er erfitt að gera upp á milli.Anonymoushttps://www.blogger.com/profile/18433564661376455274noreply@blogger.com