tag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post1361192927933353984..comments2023-10-01T12:21:46.500+00:00Comments on Druslubækur og doðrantar: Útópískt barnasamfélag á gulnuðum blaðsíðumRitstjórnhttp://www.blogger.com/profile/12435006317555441485noreply@blogger.comBlogger11125tag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-19077718302381062162011-11-09T00:03:43.365+00:002011-11-09T00:03:43.365+00:00http://gegnir.is/F/SFHV8MK8T211477H5LJK2M5R5APJYMN...http://gegnir.is/F/SFHV8MK8T211477H5LJK2M5R5APJYMNTKG8VPF3UPIC15JTGK7-35314?func=find-b&find_code=WOR&request=baldint%C3%A1ta
Þær finnast greinilega allar þrjár á bókasöfnum landsins (í geymslum þó stundum)

En ef þú prófar að gúggla "the naugtieset girl" þá kemur Wikipedia færslan um Baldintátu fyrst upp, svo örvæntið ekki :DAndreahttps://www.blogger.com/profile/12181530417893093426noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-76570556663111823612011-11-08T23:59:06.943+00:002011-11-08T23:59:06.943+00:00Það er svo gaman að lesa færslurnar eftir ykkur.
...Það er svo gaman að lesa færslurnar eftir ykkur.
Ég las Baldintátu líka sem barn og þar sem ég var alin upp á mjög sósíalísku heimili fannst mér ekkert meira heillandi en lítið ríki þar sem fullkomið jafnrétti ríkti.
Ég hef ekki hugsað um þessar bækur í 20 ár eða svo, þannig að kannski er kominn tími til að fara á loftið í afa og ömmu húsi :)Andreahttps://www.blogger.com/profile/12181530417893093426noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-2647518793621973042011-11-08T22:27:00.944+00:002011-11-08T22:27:00.944+00:00Skemmtilegt blogg! Ég las Baldintátu margoft sem k...Skemmtilegt blogg! Ég las Baldintátu margoft sem krakki en hef ekkert gluggað í hana síðan ég var svona 12-13 ára. Þarf greinilega að gera það aftur!Salka Guðmundsdóttirhttps://www.blogger.com/profile/00351265149356073602noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-71574562443721511962011-11-08T13:33:18.307+00:002011-11-08T13:33:18.307+00:00Geðveikt skemmtilegur pistill, takk! Einhverra hlu...Geðveikt skemmtilegur pistill, takk! Einhverra hluta vegna var ég alltaf tortryggin á Baldintátu, fannst þetta sennilega eitthvað asnalegt nafn, og las þær bækur því aldrei þótt ég lægi í Ævintýra-, Fimm- og Dularfullu bókunum.

Frábært þetta með Gunnar lögregluþjón. Það vakti einmitt mikla kátínu á mínu heimili þegar kom í ljós að geðstirði lögregluþjónninn sem var í Stykkishólmi þegar pabbi var þar í heimavistarskóla á sínum tíma hét einmitt Gunnar, og gekk mjög erfiðlega að grípa krakkana fyrir Mackintosh-smygl!Kristín Svavahttps://www.blogger.com/profile/17282161670518933368noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-45556115697616276162011-11-08T11:12:51.912+00:002011-11-08T11:12:51.912+00:00Já ég er reyndar þeirrar skoðunar að Enid Blyton h...Já ég er reyndar þeirrar skoðunar að Enid Blyton hafi um margt verið á undan sinni samtíð hvað kynhlutverkin varðar. Bara það að búa til svona karakter eins og Georg/Georgínu! Að vísu hefði auðvitað verið betra að stelpa hefði getað tekið þátt í ævintýrunum af fullum krafti án þess að þurfa að karlgerast fyrst en þetta hlýtur samt að teljast byltingarkennt miðað við þess tíma barnabækur.

Þetta með Gunnar lögregluþjón er priceless!Guðrún Lárahttps://www.blogger.com/profile/14470320139570620400noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-87370247572747907492011-11-08T10:28:02.387+00:002011-11-08T10:28:02.387+00:00Takk fyrir þessa afspyrnu skemmtilegu grein. Ég de...Takk fyrir þessa afspyrnu skemmtilegu grein. Ég deili ást þinni á gömlum barnabókum og þykir afar fróðlegt að lesa þær núna aftur fyrir stelpurnar mínar. Það kemur margt á óvart, eins og til dæmis allur rasisminn í Narníu og kristinn boðskapur og táknmyndir sem gegnsýra þar allt!

Enid Blyton las ég af áfergju sem barn og hef verið að lesa aftur Ævintýrabækurnar núna. Ég held þær bækur hafi verið mjög á undan sinni samtíð, því þott margt sé gamaldags varðandi hlutverk kynjanna, þá eru stelpurnar samt með í öllum hamaganginum -á tíma þar sem skrifaðar voru sérstakar stúlkna- og drengjabækur. Það kom mér eiginelga á óvart hvað sá bókaflokkur hefur elst vel þrátt fyrir allt, nema reyndar Ævintýrafljótið, sú síðasta, sem er svo uppfull af rasisma að hún er nánast ólesandi. Mæli með að henni sé sleppt!

Ég las mér annars til um Enid nýlega og komst að því að hún skrifaði kringum 600 (!!!) barnabækur á ferlinum og líka að hinn geðstirði og ófríði Gunnar lögregluþjónn er byggður á fyrri eiginmanni hennar!Siggastahttps://www.blogger.com/profile/15840410922923490034noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-5393349259432268562011-11-08T09:51:54.326+00:002011-11-08T09:51:54.326+00:00Maríanna, ég hugsaði náttúrulega stöðugt til þín þ...Maríanna, ég hugsaði náttúrulega stöðugt til þín þegar ég var að skrifa þetta þar sem ég veit að þú deilir ást minni á gömlum barnabókum! Og ég hef oft hugsað að ég þyrfti við tækifæri að reyna að grafast eitthvað fyrir um hvað hefði verið skrifað um þessar bækur, hverjar viðtökur þeirra hefðu verið o.s.frv. Annars skilst mér nú að Enid Blyton hafi verið þokkalega þögguð svo það er kannski erfitt.

Annars geri ég ráð fyrir að lífið á heimavist hafi aldrei í rauninni verið eins fallegt og í Baldintátu heldur verið mun meira eins og í lýsingunni hjá baun! Ég er fegin að móðir mín hafði vit fyrir mér á sínum tíma þegar ég lá sem mest í þessum bókum og bað um að fá að fara í heimavistarskóla!Guðrún Lárahttps://www.blogger.com/profile/14470320139570620400noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-25516014724552949332011-11-08T07:33:01.879+00:002011-11-08T07:33:01.879+00:00Úff, þessar lýsingar minntu mig óþyrmilega á æsku ...Úff, þessar lýsingar minntu mig óþyrmilega á æsku mína þegar ég var, á sumrin, send í sveit á risastórt barnaheimili og þar ríktu lögmál sem minntu meira á Lord of the flies en Baldintátu. Ég fékk t.d. oft sent nammi að heiman og var það alltaf tekið af mér og sást það ekki meir (valdar klíkur hæstráðenda hljóta að hafa gætt sér á því).

Takk fyrir þennan skemmtilega pistil um Baldintátu!Elísabethttps://www.blogger.com/profile/08407555709095433062noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-245904062247175602011-11-08T03:24:34.885+00:002011-11-08T03:24:34.885+00:00oh ég elskaði Baldintátu þegar ég var lítil - og l...oh ég elskaði Baldintátu þegar ég var lítil - og las hana einmitt við eldhúsborðið hjá ömmu og drakk kókómalt og borðaði brauð með (reynda) spægipyslu...já bernskan í Þingholtunum...

Ég var líka að rifja upp um daginn að Baldintátubækurnar hefðu verið dálítið ólíkar höfundarverki Blyton - en ég var búin að gleyma HVERSU ólíkar! Það væri forvitnilegt að komast í einhverja umfjöllun um málið - eitthvað hlýtur að hafa verið skrifað um Baldintátu...? Nema Blyton hafi verið þögguð í hel sem kona, barnabókahöfundur og politically uncorrect - plús (greinilega) kommúnisti!Maríanna Clarahttps://www.blogger.com/profile/11413046261765395907noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-51242928691143174662011-11-07T23:28:35.219+00:002011-11-07T23:28:35.219+00:00Ég segi samt ekki að smá gúggl um óþekkar stelpur ...Ég segi samt ekki að smá gúggl um óþekkar stelpur hefði skaðað.Þórdís Gísladóttirhttps://www.blogger.com/profile/00489551429010305247noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-74740105213175339932011-11-07T23:27:10.992+00:002011-11-07T23:27:10.992+00:00Gaman að rifja upp Baldintátu. Já og þessar myndir...Gaman að rifja upp Baldintátu. Já og þessar myndir eru algjörlega þær réttu.Þórdís Gísladóttirhttps://www.blogger.com/profile/00489551429010305247noreply@blogger.com