tag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post5693988750264037896..comments2023-10-01T12:21:46.500+00:00Comments on Druslubækur og doðrantar: BókamerkiRitstjórnhttp://www.blogger.com/profile/12435006317555441485noreply@blogger.comBlogger9125tag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-58655445174853825642011-12-08T00:46:56.327+00:002011-12-08T00:46:56.327+00:00Hvernig gat ég gleymt hinu skemmtilega orði "...Hvernig gat ég gleymt hinu skemmtilega orði "hundseyra"? Svona er maður orðinn málskertur. Nú mun ég óspart nota þetta góða orð.Salka Guðmundsdóttirhttps://www.blogger.com/profile/00351265149356073602noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-78428120359421331602011-12-06T15:05:48.150+00:002011-12-06T15:05:48.150+00:00Í einni af bókum Braga Ólafssonar (man ekki hvaða ...Í einni af bókum Braga Ólafssonar (man ekki hvaða - líklega Hvíldardögum?) rifjar aðalpersónan upp atvik úr gagnfræðaskóla þar sem persónan, drengur, hafði brotið upp á blaðsíðuhorn til að merkja sér stað. Kennarinn varð þessa var og spurði svo allur bekkurinn heyrði:"Hafið þér horn í síðu bóka?". Svo hlógu allir nema drengurinn, sem kveikti ekki á perunni fyrr en einhvern tímann í frímínútunum.Halla Oddnýhttps://www.blogger.com/profile/08247650550919145091noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-11466310533232815592011-12-06T12:22:49.116+00:002011-12-06T12:22:49.116+00:00Sjónræn staðfesting kemur ekki til mín fyrr en í a...Sjónræn staðfesting kemur ekki til mín fyrr en í annarri tilraun, en sleppum því.

Ég hef alltaf heyrt það kallað að setja hundseyra á blaðsíðuna eða bókina ef brotið er upp blaðsínuhornið þar sem maður er staddur í bókinni.

Les mest bókasafnsbækur og hika ekki við að setja hundseyru á þær.

Ef bók er lögð einhvers staðar opin skiptir í mínum huga mestu hvort hún er upp í loft eða á grúfu og er hægt að fjölyrða mikið um það.

SæmundurAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-55997042760542992472011-12-06T10:23:55.879+00:002011-12-06T10:23:55.879+00:00Ég nota allskona miða - en ég verð að viðurkenna a...Ég nota allskona miða - en ég verð að viðurkenna að þegar ég horfi á myndina dauðlangar mig í töff útsaumað bókamerki...Harpa Jónsdóttirhttp://www.harpaj.net/noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-65156022010576672242011-12-06T08:37:47.449+00:002011-12-06T08:37:47.449+00:00Ég nota líka allskonar sem bókamerki - innkaupalis...Ég nota líka allskonar sem bókamerki - innkaupalista, umslög og blýanta til dæmis.
Fyrir svolitlu síðan keypti ég notað eintak af Listinni að elska, eftir Erich Fromm, með mjög miklum undirstrikunum og athugasemdum í ýmsum litum. Það varð til þess að ég las allar minningargreinar um manneskjuna sem bókin var merkt og komst að ýmsu forvitnilegu.Þórdís Gísladóttirhttps://www.blogger.com/profile/00489551429010305247noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-14632891881826385372011-12-06T08:28:14.766+00:002011-12-06T08:28:14.766+00:00Ég braut uppá hornin í bókum sem krakki og ungling...Ég braut uppá hornin í bókum sem krakki og unglingur en las svo einhvern pistil um að það væri ægileg meðferð á bókum svo ég hætti því. Ruglið sem hægt er að innræta manni! En skrifa hiklaust og nótera í mínar eigin bækur, en þoli ekki þegar fólk gerir það í lánsbækur og bókasafnsbækur. Nota annars það sem hendi er næst sem bókamerki, er með svartan borða í þeirri sem ég er að lesa núna, eitthvað svona sem sett er í flíkur til að hengja þær upp.Sigfríðurhttps://www.blogger.com/profile/12697034348122033195noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-66530477676318540272011-12-06T08:18:12.878+00:002011-12-06T08:18:12.878+00:00Ég skrifa í bækurnar, brýt upp á hornin, les í bað...Ég skrifa í bækurnar, brýt upp á hornin, les í baði og allskonar. Svo gef ég bækurnar til góðgerðarstofnana þegar flæðir út úr hillunum. Mér finnst bækur vera til að nota.Þórdís Gísladóttirhttps://www.blogger.com/profile/00489551429010305247noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-73158357132594072882011-12-05T23:26:14.774+00:002011-12-05T23:26:14.774+00:00Úúúúú, skemmtilegur pistill! Ég jesúsa mig þegar é...Úúúúú, skemmtilegur pistill! Ég jesúsa mig þegar ég sé einhvern brjóta upp á hornin, finnst það næstum eins og að krota í bók - sem er líka óleyfilegt! En ég legg hins vegar bókina hiklaust uppglennta á náttborðið (eða gólfið, ef náttborðið er ofhlaðið), þannig að það er klárlega eitthvert ósamræmi í gangi hér. Iðulega lokast bækurnar aftur, af einhverjum orsökum, en ég er óhugnanlega minnug og góð í að finna rétta staðinn.

Bókamerki nota ég samt líka oft. Breskir vinir mínir eru voðalega duglegir að nota bókamerki og ég hef fengið nokkur mjög lekker í jólagjöf þaðan. Uppáhaldsbókamerkið er hins vegar eftir bróður minn sem teiknaði það, litaði og gaf mér í jólagjöf fyrir nokkrum árum.Salka Guðmundsdóttirhttps://www.blogger.com/profile/00351265149356073602noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-1683622848640873242011-12-05T16:36:43.346+00:002011-12-05T16:36:43.346+00:00Ferlega er þetta skemmtilegur pistill.
Ég nota m...Ferlega er þetta skemmtilegur pistill.

Ég nota mjög gjarnan lestar- og strætómiða þegar ég er í útlöndum og finnst einmitt mjög gaman að rekast á þá inn í bókunum síðar og fá smá flassbakk í ferðalögin.

Ef ég les bók fljótlega strax eftir að ég keypti hana nota ég kassakvittunina oft sem bókamerki. Þær hafa líka þetta skemmtilega dokúmentaríska gildi en því miður er blekið oft agalega lélegt og máist fljótt út.

Lengi vel fannst mér glæpsamleg tilhugsun að brjóta upp á hornin en ég hef slakað heilmikið á í þeim efnum allra síðustu árin. Sennilega var kveikjan að því að ég fór að leyfa mér þetta stórskemmtilegur pistill sem ég las einu sinni þar sem umgengni fólks við bækur var greind í tvo flokka eftir því hvort hún einkenndist af hirðlegri eða líkamlegri ást (ég þarf endilega að skrifa um greinasafnið þar sem þessi pistill birtist einhvern tíma við tækifæri).

Oftast nota ég þó gula miða (post-it). Þeir hafa þann stóra kost að haldast kyrrir á sínum stað - ja, nema þeir séu orðnir gamlir og ofnotaðir og límið ónýtt.Erna Erlingsdóttirhttps://www.blogger.com/profile/04457567423275575825noreply@blogger.com