tag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post8134445748892463915..comments2023-10-01T12:21:46.500+00:00Comments on Druslubækur og doðrantar: Sjálfsaga og sígarettur - um Kim og félagaRitstjórnhttp://www.blogger.com/profile/12435006317555441485noreply@blogger.comBlogger5125tag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-43933121749336815062012-07-17T02:02:27.019+00:002012-07-17T02:02:27.019+00:00Já, en fyndið, mér fannst einmitt Kim vera rígfull...Já, en fyndið, mér fannst einmitt Kim vera rígfullorðinn og það var ein af ástæðum þess að ég tengdi ekki alveg jafnmikið við þessar bækur og ýmsar aðrar, þótt mér fyndist þær mjög skemmtilegar - enda las ég þær á þeim tíma þegar unglingar voru harðfullorðið fólk og ég gekk framhjá þeim með hjartað í buxunum.
Skemmtileg færsla!

SalkaAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-26448908238429499622012-07-16T13:38:14.869+00:002012-07-16T13:38:14.869+00:00Jiminn, hét Lotta Pernille á dönsku? En kellingarl...Jiminn, hét Lotta Pernille á dönsku? En kellingarlegt. Eru þetta ekki Lottubækurnar sem voru með grámynstraðri kápu? Ég man það helst úr þeim bókum hvað þrípunktar voru ofnotaðir, það var alltaf eins og allir töluðu í hálfkveðnum vísum.

-Kristín SvavaAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-50525178901479462982012-07-16T12:09:03.580+00:002012-07-16T12:09:03.580+00:00Jú, auðvitað skiptir heilmiklu máli hvaðan bókin k...Jú, auðvitað skiptir heilmiklu máli hvaðan bókin kemur.

Reykingarnar eru einhver svona mannalæti í Kim og ég held að þær fái að fljóta með af því að það þyki svolítið fyndið að hann sé að reyna að vera svona mikill maður. Ég er ekki viss um að það hefði þótt sniðugt ef um stúlku hefði verið að ræða.

Ég á annars eina sænska stúlknabók frá svipuðu tímabili (sennilega fyrir eldri markhóp þó) sem fjallar um hóp af flugfreyjum. Plottið þar er bókstaflega borið uppi af því að ein þeirra drekkur of mikið áfengi og daðrar of mikið við mann um borð sem dregur heilmikinn dilk á eftir sér fyrir söguhetjuna - sem er að sjálfsögðu siðprúð og hófstillt. Í þeirri bók er líka synt heilmikið en allir eru kappklæddir.Guðrún Lárahttps://www.blogger.com/profile/14470320139570620400noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-13363154289764115142012-07-16T11:06:08.372+00:002012-07-16T11:06:08.372+00:00Ég las einmitt Kimbækurnar spjaldanna á milli og m...Ég las einmitt Kimbækurnar spjaldanna á milli og mig minnir að það hafi verið nokkurn veginn sama plottið í þeim öllum. Merkilegt hvað smyglarar virðast oft hafa átt leið um þennan smábæ.

Kannski er ekki alveg sanngjarnt að bera hinn danska Kim saman við hina bresku Baldintátu og hina bandarísku Nancy. Ég sé Frank og Jóa nú ekki heldur alveg fyrir mér nakta í sundi. Ég fór að rifja upp danskar telpnabækur og man helst eftir bókum Grethu Stevns um Siggu (sem heitir Susy á frummálinu) og Lottu (sem heitir Pernille á dönsku). Ég man betur eftir Siggubókunum, stúlkan sú er dóttir skógarvarðar og auðvitað alltaf að eltast við veiðiþjófa. Og jú, hún er nú víst mikil fyrirmyndarstúlka og reykir alveg örugglega ekki. Að vísu eru þær bækur eitthvað eldri en Kimbækurnar, kannski skiptir það einhverju máli: http://www.saxo.com/dk/susy-roedtop_gretha-stevns_indbundet_9788711227473Eyja M. Brynjarsdóttirhttps://www.blogger.com/profile/09698510659637368993noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-217601360443480594.post-52897039037993884012012-07-16T10:43:28.313+00:002012-07-16T10:43:28.313+00:00Já, þær eldast oft illa, blessaðar barnabækurnar. ...Já, þær eldast oft illa, blessaðar barnabækurnar. Ég man samt að það var reykt helling í seinni Möttu-Maju bókunum en sjálf reykti hún ekki og hafði andstyggð á reykingum. Það komu líka fram viðhorf frá karlpeningnum að fátt væri ljótara en reykjandi kona og kjánalegra en reykjandi unglingar.Hildur Ýrhttps://www.blogger.com/profile/09686719863661981089noreply@blogger.com