8. október 2009

Nóbelsverðlaun - Herta Müller

Rétt í þessu tilkynnti nýlega ráðinn talsmaður sænsku akademíunnar, Peter Englund, að þýsk-rúmenski höfundurinn Herta Müller (fædd 1953) hljóti Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í ár. Ég hef aldrei heyrt á höfundinn minnst en Dagens nyheter segir Hertu Müller vera afkastamikinn skáldsagnahöfund og esseyista og Peter Englund hafði orð á því þegar hann stóð í dyrum Börssalarins að hún væri einstaklega kraftmikill og sérstakur höfundur. Það verður vafalaust spennandi að kynna sér verk Hertu Müller en nú er slæmt að vera illa stautfær á þýsku.

Wikipedia um höfundinn.

9 ummæli:

  1. Ein bók þýdd eftir hana á íslensku:

    http://ormstunga.is/islenska/titlar/umennisl.htm

    SvaraEyða
  2. Fínt. En ég sé að hún hefur komið út á íslensku fyrir 14 árum svo það er kannski hæpið að hún sé fáanleg í bókabúðum.

    SvaraEyða
  3. Der Spiegel segir að allra nýjasta skáldsagan hennar, Atemschaukel, sem kom út í sumar sé hápunkturinn á höfundarverki hennar.
    http://www.spiegel.de/kultur/literatur/0,1518,653984,00.html

    SvaraEyða
  4. Það er hægt að panta Ennislokk einvaldsins á vefnum hjá Ormstungu.
    http://www.ormstunga.is/islenska/verslun/prd0017.htm

    Svo er hún til í ýmsum bókasöfnum.

    SvaraEyða
  5. Titillinn er uppfinning þýðandans, á frummálinu heitir bókin Der Fuchs var damals schon der Jäger. Hvorki ennislokkur né einvaldur í þeim titli heldur refur sem var orðinn veiðimaður.

    SvaraEyða
  6. Refurinn/Ennislokkurinn er komin í allar betri bókaverslanir...

    SvaraEyða