29. janúar 2010

Uppáhaldselskendur bókmenntanna

frannyJ. D. Salinger dó í gær og minningargreinarnar poppa upp á bókmenntasíðum heimsins, til dæmis hér og hér. Á þessu bloggi var minnst á Salinger í sumar, hér má lesa þá færslu en ég ætla ekki að bæta neinu sérstöku við um hann þó að hann hafi verið algjör dúndurhöfundur og ég bíði jafn spennt og hálfur lesheimurinn eftir að handritabunkarnir sem hann á að hafa skilið eftir sig komi út. Sennilega hafa erfingjar Salingers nóg að rífast um í margar kynslóðir og enn seljast 200 þúsund eintök af Cathcer in the Rye árlega í Bandaríkjunum.

Mig langar hins vegar að stela hugmynd frá sænsku bókahórunum sem spyrja um uppáhaldsbókmenntapör lesenda og nefna sín eigin. Hvaða skemmtilegum bókmenntapörum man fólk eftir á þessum fagra föstudegi? Ég sjálf er eitthvað andlaus en man til dæmis eftir Franny og Zooey í samnefndri bók Salingers og Gilbert og Önnu í Grænuhíð. Asnalegt par eru hins vegar Ragnheiður Birna og Jón Guðni í Þetta er allt að koma.

Þórdís

30 ummæli:

  1. Salander og Blomkvist.

    SvaraEyða
  2. Hommarnir í bókunum eftir Anne B Ragde eru skemmtilegt par.

    SvaraEyða
  3. Ég slysaðist einu sinni til að horfa á einn þátt í norska sjónvarpinu og hef eftir það minni en engan áhuga á því að lesa bækurnar hennar.

    SvaraEyða
  4. Ég held mikið upp á Helene og Frank í 84 Charing Cross Road eftir Helene Hanff. Þau eru svo dásamlega bældar en fallegar sálir.

    SvaraEyða
  5. Kristín í París29. janúar 2010 kl. 13:40

    Ég ætlaði einmitt að segja Valmont og Merteuil, ferlega flott par. En ég vil ganga lengra og segja að öll sambönd Valmont séu spennandi, semsagt líka Valmont-Volanges og Valmont-Tourvel. Les liaisons dangereuses er náttúrulega tær snilld.
    Lólíta og Humbert Humbert er líka truflandi par.

    SvaraEyða
  6. Halla Sverrisdóttir29. janúar 2010 kl. 13:57

    Scarlett og Rhett. Hands down. Les Gone with the Wind minnst árlega. Og ekki voga ykkur að halda að ég sé að grínast!

    SvaraEyða
  7. Chevalier de Mirvel og Eugénie úr La Philosophie dans le boudoir, sem einhvern tímann verður að gera kvikmynd úr sem gefur Les Liaisons dangereuses ekkert eftir.

    SvaraEyða
  8. Mr. Darcy og fröken Elizabeth Bennet.

    SvaraEyða
  9. Darcy og Elizabeth Bennet. Karitas og Sigmar. Heathcliff og Cathy.

    SvaraEyða
  10. Kristín í París29. janúar 2010 kl. 15:45

    Elías, ég þarf að tékka á þessari sem þú nefnir. Mér finnst mjög athyglisvert að enginn nefnir Rómeó og Júlíu, sem virtist augljósa svarið í byrjun. Best að líta yfir á sænsku hórurnar og skoða hvað er í boði þar.

    SvaraEyða
  11. Salka og Steinþór

    Jón á Nautaflötum og Þóra í Hvammi

    Þórbergur og Margrét

    SvaraEyða
  12. Nancy Drew og Ned whatshisname

    SvaraEyða
  13. og nota bene....það er ábyggilega búið að gera einhverja hressa klámmynd uppúr la philosophie dans le boudoir

    SvaraEyða
  14. Nickerson Þorgerður!

    SvaraEyða
  15. Svalur og Valur

    SvaraEyða
  16. Snúður og Snælda

    SvaraEyða
  17. Gunnar og Njáll.
    Þetta er komið út í rugl.

    SvaraEyða
  18. Ja hérna, ég hef mismælt mig. Ég ætlaði að segja Julien Sorel og Mathilde de La Môle.

    SvaraEyða
  19. Karíus og Baktus. Fallegt samband.

    SvaraEyða
  20. Watson og Holmes, sem virðist reyndar vera bara á annan veginn.

    SvaraEyða
  21. Kristín í París29. janúar 2010 kl. 20:25

    Fólk er ekki að taka þessu nógu alvarlega hérna. Það truflar mig.

    SvaraEyða
  22. Michael og Hanna í Lesaranum eftir Schlink ættu að vera á listanum.

    SvaraEyða
  23. Kristján B. og Gerður Kristný :)

    SvaraEyða
  24. Annars er mitt uppáhald alltaf Ferdinand og Miranda.

    SvaraEyða
  25. Þau kannast ég ekkert við.

    SvaraEyða
  26. Víst kannastu við þau. Sjeikspír, manstu? Besta leikritið hans?

    SvaraEyða
  27. Ég er vægast sagt illa að mér í verkum Sjeikspírs.

    SvaraEyða