26. ágúst 2011

Bókahillur draumórakvenna?




Einhver hönnuður hjá fyrirtæki úti í heimi sem heitir Dripta Design Studio lét sér detta í hug að gera svona hillur sem eru eins og ský eða hugsanablöðrur. Ef ég ætti svona þá hefði ég þær fyrir ofan rúmið mitt.

9 ummæli:

  1. Ég fyllist áhyggjum yfir því hvernig stafrófsröð verði viðkomið í svona hillum.

    SvaraEyða
  2. Það er kannski það besta við þetta að maður þarf ekki að pæla í svoleiðis pedantaveseni.

    SvaraEyða
  3. Ég er með Ernu - sé ekki hvernig Dewey passar inn í þetta format...

    SvaraEyða
  4. Ég held að þetta sé ekki hugsað fyrir fólk sem á mjög mikið af bókum...

    SvaraEyða
  5. Þetta er meira fyrir bækurnar sem maður er að lesa þá stundina. Þess vegna datt mér í hug að þetta væri sniðugt fyrir ofan rúmið.

    SvaraEyða
  6. Það er afspyrnuvond hugmynd að hafa bókahillur fyrir ofan rúm á jarðskjálftasvæði!

    (Mér finnst þetta samt ansi skemmtilegar hillur. Bara ekki sérlega praktískar.)

    SvaraEyða
  7. Ég festi bækurnar með kennaratyggjói!

    SvaraEyða
  8. Ég er með leirtauið og kristalinn fyrir ofan rúmið mitt. Maður LIFIR ekki nema á brúninni.

    -Kristín Svava

    SvaraEyða