4. apríl 2012

Edith Södergran 120 ára

Finnlandssænska skáldkonan Edith Irene Södergran hefði orðið 120 ára í dag. Södergran veiktist ung af berklum og lést aðeins 31 árs gömul en gaf þó út fjórar ljóðabækur og lét eftir sig þá fimmtu, Landet som icke är, sem var gefin út að henni látinni. Hún hefur verið talin meðal helstu brautryðjenda módernisma í ljóðagerð á Norðurlöndunum.

Einhver ljóða Södergran hafa komið út á íslensku, m.a. var Landet som icke är gefin út 1992 í þýðingu Njarðar P. Njarðvík undir heitinu Landið sem ekki er til. Á síðasta ári kom svo út svonefnt Ljóðasafn með ljóðum hennar í þýðingu Þórs Stefánssonar - ég vissi satt að segja ekki af tilvist þess safns fyrr en ég sá það rétt í þessu á Gegni, en fagna því virkilega að ljóðum Edithar Södergran sé haldið á lofti því hún er afskaplega gott skáld. Langvinn veikindin settu mark sitt á verk hennar sem eru þrungin þjáningu og forgengileika, dauðinnn skammt undan og jafnvel að komu hans virðist beðið með óþreyju á stundum. Ég læt fylgja hér eitt ljóð í þýðingu Njarðar P., úr Landinu sem ekki er til:

Skuggi framtíðar
Ég skynja skugga dauðans.
Ég veit að örlög okkar liggja í haugum á borðum norna.
Ég veit að jörðin drekkur ekki einn dropa regns
sem ekki er skráður á bók eilífðarinnar.
Ég veit jafnvel og að sólin rennur upp,
að ég mun aldrei líta þá óumræðilegu stund, þegar hún rís hæst.
Framtíðin varpar á mig sælum skugga;
hún er ekkert nema flæðandi sólskin:
gegnumníst ljósi mun ég deyja,
þegar ég hef traðkað á hverri tilviljun,
mun ég brosandi snúa baki við lífinu.

4 ummæli:

  1. Ég þýddi úrval úr aforismum hennar og birti m.a. hérna:http://norddahl.org/islenska/2007/03/29/edith-sodergran/

    Og í þýðingasafninu 131.839 slög með bilum (sem ég held að sé hvergi til og ekki einu sinni í Gegni).

    SvaraEyða
  2. Nei, sorrí, ég er að rugla. Þetta fór ekki í bókina.

    SvaraEyða
  3. Gott stöff hjá Södergran.

    Miklu betra en ljóðið hans Gunter Grass gegn yfirvofandi innrás Ísraelsmanna í Íran sem er að gera allt vitlaust núna í dag. Það þyrfti nú kannski einhver að þýða það samt.
    Hermann

    SvaraEyða
  4. Takk fyrir þetta, Eiríkur! Sést í mörgu þarna hvað hún var hneigð til ofurmennskupælinga.

    Já, ég kann ekki þýsku og hef bara lesið um ljóðið hans Grass... fann eina enska þýðingu á netinu, sem var arfaslök. og á einhverjum fonti sem var kómískari en comic sans.

    SvaraEyða