Það getur verið gaman að lesa bækur í öfugri röð, byrja kannski á nýjustu bók höfundar og vinna sig svo aftur á bak að þeirri fyrstu. Þannig getur maður oft rakið ýmsar hugmyndir sem spíra í gegnum höfundarverkið niður í fræin sem þau voru í byrjun. Ég er einmitt nýbúin að upplifa þetta þegar ég las
Nöfnin á útidyrahurðinni, fyrsta hreinræktaða prósaverk Braga Ólafssonar.
Nöfnin á útidyrahurðinni kom út árið 1996 og í henni er að finna 25 texta sem geta ýmist kallast smásögur eða prósaljóð. Þremur árum síðar kom svo fyrsta skáldsaga Braga,
Hvíldardagar út. Skáldsögurnar eru síðan orðnar fimm (auk fleiri ljóðabóka, prósatexta og leikrita) og mér fannst sem sagt eins og ég kæmi auga á ýmsa drætti úr þeim í þessari gömlu bók.
Ég þykist til dæmis þekkja
Hvíldardaga í sögunni „Fyrstu skrefin“. Hún greinir frá samtali manns og konu í samkvæmi nema hvað konan er alls ekki á staðnum og samtalið á sér bara stað í huga mannsins. Hin ónafngreinda söguhetja
Hvíldardaga lifir einmitt æsispennandi innra lífi og í huganum á hann meðal annars í samböndum við nokkrar ungar konur en veruleiki hans er öllu einfaldari. Frummynd annarrar skáldsögu Braga,
Gæludýranna finnst mér ég svo sjá í sögunum þremur undir yfirskriftinni „Breytt um umræðuefni“. Þar er sagt frá félögum sem taka að sér að gæta íbúðar móður annars þeirra en ferst verkefnið ekkert séstaklega vel úr hendi. Lesendur
Gæludýranna kannast væntanlega við þetta en aðalpersónur hennar, þeir Emil og Hávarður, gættu einmitt íbúðar og gæludýra í London með frekar hörmulegum afleiðingum. Tengslin milli
Nafnanna á útidyrahurðinni og
Gæludýranna liggja reyndar víðar. Í
Nöfnunum er til að mynda minnst á bæði
Moby Dick og Elvis Presley en hvort tveggja kemur nokkuð við sögu í skáldsögunni. Það má líka sjá ýmsa fyrirrennara nýjustu söguhetja Braga, þeirra úr
Sendiherranum og
Handritinu að kvikmynd Arnar Featherbys og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson, í
Nöfnunum á útidyrahurðinni. Hannes í „La fête continue“ minnir til að mynda óneitanlega á félagana Örn og Jón. Líkt og þeir er hann hálfgerður kverúlant, kominn yfir miðjan aldur, drekkur meira en góðu hófi gegnir (eins og reyndar fleiri persónur Braga) og í stað þess að sinna vinnu eða fjölskyldu virðist hann beina metnaði sínum í að rannsaka ýmsa menningarafkima. Feðgarnir Magnús Leifsson og Leifur Magnússon í sögunni „Feðgarnir“ og samskipti þeirra milli landa bera keim af Jóni Magnússyni og syni hans Sturlu Jóni Jónssyni. Í „Feðgunum“ kemur líka fyrir eins konar illur tvífari en tvífaraminni má víða sjá í höfundarverki Braga og nægir þar að nefna Friðbert í
Samkvæmisleikjum og misyndismanninn Jón Víði sem báðir eru prentnemar, hafa búið í sömu íbúð, bera svipuð ör í andlitinu og reynast svo, þegar allt kemur til alls, hafa svipaðan mann að geyma.