
![]() |
Olivia Cosneau á góðri stundu |
Eina slíka myndabók rak á fjörur
okkar þriggja um daginn en það er ný bók sem Angústúra þýðir og gefur út, Hvernig sefur þú? eftir Olivia Cosneau
og Bernard Duisit. Olivia sér um myndir og texta en Bernard pappírshönnun sem
er svo sannarlega einn stærsti hluti verksins og samvinna þeirra tveggja dásamleg. Olivia hefur myndskreytt bækur í yfir áratug og þau Bernard unnið alla vega tvær slíkar saman svo nú er bara að vona að við fáum að njóta hinnar líka. Á heimasíðu Forlagsins er Guðrún Vilmundar skráð fyrir þýðingunni en ég sé þær upplýsingar raunar ekki á bókarkápu. Þetta er ægifögur bók sem þessi
fimm ára kallar “Origami-bókina” og sú nafngift er kannski ekki alveg úr lausu
lofti gripin því þetta er vissulega listaverk úr pappír. Á hverri síðu legst
eitthvað dýr til svefns og textinn útlistar athöfnina nánar – svo er hægt að toga
í flipa og þá hringar kötturinn sig, kóalamamma faðmar litla kóalabjörninn,
apinn sveiflast í trénu og svo framvegis. Þetta er ekki flókið en
pappírsteikningarnar eru afskaplega fallegar og meira að segja fullorðnu fólki
(alla vega mér) finnst ennþá gaman að toga í flipann hjá kengurunni og sjá
litla ungan stinga kollinum upp úr poka móður sinnar – hvar hann sefur.
![]() |
Hin bókin sem Olivia Cosneau og Bernard Duisit unnu saman |
Bæði börnin njóta þessarar bókar
og sú litla á það til að næla sér í hana og skríða uppí hægindastólinn til að
glugga í hana í friði og ró – en sú er yfirleitt gripin fljótlega þar sem
pappírinn þolir ekki mikið tog og þegar maður er eins árs er ekki gott að vita
hvað má toga í og hvað ekki. En gerir lítið til – það má skoða hana aftur og
aftur undir handleiðslu stóra bróður eða foreldra.
Aðspurður hvað sé best við bókina
svarar sá fimm ára að hún sé fræðandi „næstum eins og skólabók, af því maður
fær að vita hvernig dýrin sofa“ og svo er auðvitað svo gaman að toga í flipann
og horfa á köttinn hringa sig og öll hin dýrin hreyfast. Þar að auki getur hann
lesið hana sjálfur fyrir litlu systur enda letrið stórt og skýrt.
Þetta er sem sagt afskaplega
falleg og skemmtileg bók fyrir börn frá rúmlega eins árs aldri – og svo auðvitað foreldra og aðra fullorðna
sem eru með blæti fyrir haganlega gerðum bókum, það er sannarlega ekki ofgnótt
af þeim á barnabókamarkaðnum. Vel gert Angústúra!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli