Forlagið gaf út fyrir skemmstu barnabókina Ólíver eftir Birgittu Sif. Bókin kom fyrst út í Bretlandi á vegum Walker Books Ltd. og hefur að því er virðist fengið lofsamlega dóma þar sem ætti nú sannarlega að ýta undir söluna hér þar sem Íslendingar eru jú alltaf spenntir fyrir upphefð sem kemur að utan.En Ólíver er reyndar mjög vel allri upphefð komin. Þetta er einföld saga um lítinn strák sem er sér á báti og mikið einn. Hann er þó ekki óhamingjusamur í einveru sinni – hann á vini, tuskudýr sem hann lendir í spennandi ævintýrum með. En dag einn bregður svo við að gömlu vinirnir nægja honum ekki lengur. Hann leggur svo uppí langferð að leita að tennisbolta og leiðir sú ferð hann til Ólavíu – lítillar stúlku sem einnig er dálítið sér á báti og þau geta því verið sér á báti saman.