
Í 2. hefti
Tímarits Máls og menningar á þessu ári rakti Guðrún Helgadóttir rithöfundur söguna af ástarsambandi Elínar Thorarensen og Jóhanns Jónssonar skálds á árunum 1915-1916 og sagði frá bókinni
Angantý sem kom út árið 1946 og inniheldur frásögn Elínar af sambandi þeirra, en henni var ekki sérlega vel tekið í menningarkreðsum bæjarins. Nú er bókin
Angantýr komin út á ný, gefin út af hinu nýja forlagi Lesstofunni, nett bók í fallegri útgáfu og rauðri kápu (í eftirmála kemur fram að upphaflega útgáfan hafi verið í rauðri kápu með fölbleikum síðum). Eða eins og ég sagði við Guðrúnu Elsu, alveg eins og ég væri að tala upp úr ritdómi: Tilvalin bók í jólapakka handa rómantískt innréttuðu áhugafólki um íslenskar bókmenntir og bókmenntaheim á fyrri hluta 20. aldar. Hún spurði á móti: „Handa þér, meinarðu?“ Þetta var kannski fullítarleg skilgreining hjá mér. En við hljótum nú samt að vera fleiri – og ég er búin að fá bókina í afmælisgjöf.