 |
| Tíðahvörf – nýr kafli í lífi konunnar hefst. |
Í bók sinni,
Metaphors We Live By, fjalla George Lakoff og Mark Johnson um líkingar; um það hvernig líkingar gegnsýra alla skynjun okkar og skilning á heiminum. Metafórur eru því ekki bara eitthvað sem skáld, stjórnmálamenn og sérvitringar nota, heldur notum við þær öll en erum yfirleitt alls ekki meðvituð um það. Þeir Lakoff og Johnson greina ólíkar tegundir líkinga, en þær eiga það þó sammerkt að vera aðferð til að skilja eitt fyrirbæri í ljósi annars – til dæmis hugsum við oft um deilur eins og stríð, tímann sem fyrirbæri á hreyfingu, ást eins og sjúkdóm, lífið eins og sögu, ástarsambönd eins og ferðalög, og svo framvegis og svo framvegis. Það hvernig við hugsum hefur áhrif á gjörðir okkar og tungumálið (og öfugt).
 |
Það er gaman að myndagúgla.
|