Í vor áskotnaðist mér bókin
Bitches, Bimbos and Ballbrakers: The Guerrilla Girls' Illustrated Guide to Female Stereotypes og ég hef verið að fletta í henni að öðru hvoru síðan, ekki síst í ferðalaginu sem við Kristín Svava höfum talað endalaust um á þessu bloggi undanfarið. Bókin, sem kom út árið 2003, er einmitt tilvalin til þess að blaða í á svipaðan hátt og nútímafólk skrollar ef til vill í gegnum bloggfærslur (mig grunar að fólk hafi flett meira í bókum á síðustu öld) – það er hægt að grípa niður í hana hvar sem er og lesa stutt eða lengi. Viðfangsefni bókarinnar er, eins og titillinn gefur til kynna, kvenstaðalímyndir (eða -stereótýpur). Hver staðalímynd er afgreidd á um það bil tveimur til fimm síðum og þeim er skipt niður í kafla eftir því hvers eðlis þær eru.