Sýnir færslur með efnisorðinu José Eduardo Agualusa. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu José Eduardo Agualusa. Sýna allar færslur

22. maí 2013

Eðla segir frá

José Eduardo er kankvís
Þótt það séu ekki nema þrjár vikur síðan ég gerði mér sérstaka ferð á Borgarbókasafnið til að taka bók eftir hann er ég búin að steingleyma hvar það var sem ég rakst á nafn José Eduardo Agualusa, en það er alveg í stíl við bókina sjálfa, sem fjallar um brigðulleika minnisins og óræðni fortíðarinnar. Bókin heitir á portúgölsku Fortíðasölumaðurinn, O vendedor dos passados, en er einhverra hluta vegna kölluð Kameljónabókin, The Book of Chameleons, á ensku.

Fortíðasölumaðurinn í portúgalska titlinum er albínóinn Félix Ventura, sem útvegar fólki nýja fortíð og ætterni fyrir peninga, en kameljónið í enska titlinum er væntanlega vísun í eðluna Eulálio sem býr í húsi Félix Ventura og er sögumaður bókarinnar. Eulálio var maður í fyrra lífi og samkvæmt vel lesnum netverjum eru ýmsar vísbendingar í sögunni um það hvaða maður hann var – rithöfundur nokkur frá Argentínu, allfrægur og vinsæll – en ég fattaði það auðvitað ekki.

José Eduardo Agualusa er af portúgölskum og brasilískum ættum en er fæddur og uppalinn í Angóla og sagan gerist að mestu í Luanda. Bókin segir frá samskiptum fyrrnefnds Félix Ventura við ýmsa dularfulla einstaklinga; Ângelu Lucíu, sem hann er ástfanginn af og sem ferðast um og tekur myndir af ólíkum blæbrigðum ljóssins, José Buchmann, sem byrjar skyndilega að renna saman við þá fölsku persónu sem Félix hefur skapað fyrir hann, útigangsmanninn og fyrrum öryggislögreglumanninn Edmundo Barata dos Reis sem fullyrðir að forsetanum hafi verið skipt út fyrir tvífara, og nafnlausan gjörspilltan ráðherra sem fær Félix til að skrifa fyrir sig upplognu sjálfsævisöguna Raunverulegt líf baráttumanns.