Hin ágæta Druslubókadama Þórdís Gísladóttir situr ekki auðum höndum fyrir jólin – hún þýddi Hringinn og Allt er ást og svo sendi hún frá sér barnabókina Randalín og Mundi sem kom út hjá Bjarti fyrir nokkrum vikum. Fyrir þetta allt hefur hún auðvitað sankað að sér tilnefningum eins og lesa má um hér.
Eins og bækurnar eftir einn af mínum uppáhalds barnabókahöfundum – Anne-Cath. Vestly þá væri hægt að flokka Randalín og Munda sem hversdagsævintýri. Báðir höfundar kunna þá list að gera hversdaginn merkingarbæran. Þótt lygilegir og magnaðir atburðir eigi sér stað í bókinni þá eru þeir einhvern veginn þannig að hvert barn ætti í raun að geta lent í svipuðu fjöri – ef þau eru bara jafn frjó og skemmtileg og Randalín og Mundi. Svo er líka vert að minnast á það er alveg möguleiki á að vaxa og læra án þess að missa fót eða foreldri - maður getur líka þroskast við að kynnast skrítnum nágrönnum og taka strætó!
Sýnir færslur með efnisorðinu Anne-Cath Vestly. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Anne-Cath Vestly. Sýna allar færslur
16. desember 2012
2. september 2011
Heitar lummur, heimavinnandi faðir og taugaveikluð trjágrein!
Um daginn brá ég mér á flóamarkað sem er nú kannski ekki í frásögu færandi nema af því þar rakst ég á sjaldséðan grip – sem mætti jafnvel kalla gullmola – Kusu í stofunni eftir norska barnabókahöfundinn Anne-Cath. Vestly. Bókin er úr einum þekktasta bókaflokki hennar – um Ömmuna og börnin átta í skóginum. Þessar bækur komu flestar út í Noregi á sjötta áratug síðustu aldar og voru þýddar á íslensku nokkrum árum síðar en eru nú því miður allar uppseldar og ófáanlegar hér á landi. Ég komst yfir þó nokkuð af bókum Vestly sem barn en þó vantar heilmikið í safnið – því er Kusa í stofunni mikill happafengur.Anne-Cath. Vestly, sem er fædd 1920 og lést árið 2008, hefur verið kölluð Astrid Lindgren þeirra Norðmanna þó að persónur hennar séu kannski ekki allar jafn heimsfrægar og Lína Langsokkur eða Emil í Kattholti. Vestly var afkastamikill höfundur og skrifaði vel yfir 50 bækur – flestar fyrir börn – en hún var einnig þekkt sem leikkona og lék meðal annars sjálfa ömmuna í vinsælum sjónvarpsþáttum sem gerðir voru eftir áðurnefndri barnabókasériu hennar um ömmuna og börnin átta.
15. desember 2008
Anne-Cath Vestly
Norski barnabókahöfundurinn og leikkonan Anne-Cath Vestly fékk, að sögn norskra fjölmiðla, hægt andát í nótt. Hún var 88 ára gömul og um skeið hafði hún þjáðst af alzheimer-sjúkdómnum.Anne-Cath Vestly skrifaði tugi barnabóka og margar þeirra komu út á íslensku fyrir nokkrum áratugum. Fyrst skal nefndur flokkurinn um Óla Alexander Fílibomm-bomm-bomm, en fyrsta sagan um hann, sem kom út í Noregi 1953 var þýdd á íslensku 1960. Síðan má nefna sögurnar um systkinin átta sem búa með ömmu sinni, hundinum Stuttfæti og foreldrum í skóginum og bækurnar um Áróru sem býr í blokk X ásamt litla bróður sínum Sókratesi. Mamman kemur lítið við sögu í Áróru-bókunum því hún vinnur úti en systkinin eiga heimavinnandi föður. Loks má nefna sögurnar sem fjalla um strákinn Litla bróður sem leikur sér oft með trjágrein sem hann kallar Stúf.
Það er erfitt að ímynda sér að þessi hlýlegi höfundur hafi einhverntíma verið umdeildur en raunin er sú að á sjötta og sjöunda áratugnum voru landsmenn hennar ekki allir sáttir við hana. Anne-Cath mun, mörgum foreldrum til skelfingar, hafa frætt krakka sem hlustuðu á barnatíma útvarpsins á að storkurinn kæmi ekki fljúgandi með ungbörnin og margir fundu að því að pabbi Áróru væri óttalega lufsulegur og léleg fyrirmynd þar sem hann spígsporaði um með barnavagn á milli þess sem hann hékk heima hjá sér og skrifaði óskiljanlega doktorsritgerð um forn-Grikki.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
