Jón Bjarki Magnússon er sennilega ekki síst þekktur fyrir starf sitt sem blaðamaður, en hann er líka ljóðskáld. Hann hefur tekið þátt í ljóðaupplestrum víðs vegar á Íslandi og erlendis, var framkvæmdastjóri útgáfufélagsins Nýhil um tíma og er nú meðal þeirra sem standa að stofnun nýrrar útgáfu, Útúr. Jón Bjarki hlaut nýræktarstyrk Bókmenntasjóðs í fyrra til að gefa út sína fyrstu ljóðabók, Lömbin í Kambódíu (og þú), og hún kom út nú á dögunum – með einhverri speisuðustu kápu jólabókaflóðsins, eftir Unu Björk Sigurðardóttur – og af því tilefni svaraði hann nokkrum mishnitmiðuðum spurningum þessarar druslubókadömu. Ég fékk líka leyfi til að birta eitt af mínum uppáhaldsljóðum úr bókinni í heilu lagi, en það er ljóðið Pæling. Það fjallar um það að ferðast um heiminn, en bókin er meðal annars innblásin af ferðalögum Jóns Bjarka um Asíu: „að ferðast um heiminn er eins og að hafa kynmök
í fyrstu mikil spenna fyrir komandi leyndardómi
þá taktur fastur og endurtekinn riþmi
þar sem hið nýja kemst í gamlan vana
inn og út þar til á andartaki springið þið
uppgötvið í augnablik fegurðina í heiminum
liggið svo í lakinu með sígó að spúa í hringi
aftur heima
í fyrstu mikil spenna fyrir komandi leyndardómi
þá taktur fastur og endurtekinn riþmi
þar sem hið nýja kemst í gamlan vana
inn og út þar til á andartaki springið þið
uppgötvið í augnablik fegurðina í heiminum
liggið svo í lakinu með sígó að spúa í hringi
aftur heima
en það má svo sem líkja nær öllu við kynmök
maður fer inn í Bónus og aftur út
kveikir og slekkur á sjónvarpinu
rænir flugvél og flýgur henni inn í skýjaklúf
maður verður til
og maður deyr
osfrv.“ (18)
maður fer inn í Bónus og aftur út
kveikir og slekkur á sjónvarpinu
rænir flugvél og flýgur henni inn í skýjaklúf
maður verður til
og maður deyr
osfrv.“ (18)