Við mæðgurnar, ég og dóttir mín sem þá var um tíu ára, stóðum við barnabókaborðið og leituðum að ákjósanlegu lesefni fyrir þá síðarnefndu. Hún var sjálf búin að þrengja valið niður í tvær bækur, eina eftir Meg Cabot (sem hefur m.a. skrifað Dagbók prinsessu) og svo bók sem bar heitið Borta bäst og var eftir Söru Kadefors höfund bókarinnar Nyckelbarnen sem hún hafði lesið skömmu áður og verið yfir sig hrifin af. Sú stutta var eitthvað tvístígandi svo ég greip sænsku bókina og las aftan á hana. Samkvæmt káputexta fjallaði bókin um konu sem bjó í bíl fyrir utan Ikea og lifði af því að borða leifar af diskum veitingastaðarins þar eftir að hafa yfirgefið fjölskyldu sína, vinnu og heimili í kjölfar einhverrar uppákomu sem maður þyrfti vitanlega að lesa bókina til að komast að hver væri. Þetta fannst mér hljóma sem stórkostlega frumlegt og athyglisvert efni í barna- og unglingabók! Ég lýsti því yfir með miklum þunga að þessa bók litist mér vel á og þegar ég sá að barnið horfði enn efasemdaraugum á græna kápuna hóf ég langan fyrirlestur um að auðvitað gætu barnabækur fjallað um fullorðið fólk, það þyrftu ekkert endilega að vera börn í bókum fyrir börn, að það sem skipti máli væri hvernig væri sagt frá og þetta væri nú heldur betur athyglisvert umfjöllunarefni fyrir alla krakka sem hefðu áhuga á samfélagsmálefnum. Skítt með einhverjar amerískar prinsessur, þetta væru hlutir sem skipti sköpum fyrir börn að lesa um! Ég var komin í mikinn ham þarna milli útsöluborðanna (maður verður líka svo sveittur í dúnúlpunni inni í búðum svona í febrúar) þannig að dóttirin sá sér auðvitað ekki annað fært en að velja Borta bäst. Þar sem ég var búin að leggja mikið undir í þessu vali fylgdist ég sennilega betur með lestrinum en nokkru sinni fyrr. Ég spurði reglulega hvernig bókin væri og fékk framan af þau svör að hún væri skemmtileg en að hana grunaði nú samt að þetta væri ekki skrifað fyrir krakka. Ég lét mér hins vegar ekki segjast og taldi mögulegt að hún væri bara ekki orðinn nógu þroskaður lesandi til að kunna að meta svona snjalla og öðruvísi barnabók. Þangað til einn daginn að hún kom stormandi út úr herberginu sínu, rjóð í vöngum og illúðleg á svip og sagði ásakandi: „Bókin sem þú keyptir handa mér – hún er POTTÞÉTT ekki barnabók“! Eitthvað í látbragði hennar og rödd sannfærði mig samstundis. Og ég vissi, ég bara vissi að ég hefði óvart neytt barnið til að lesa kynlífslýsingu. Strax sama kvöld var komin ný bók á náttborðið og sú græna horfin veg allrar veraldar. Ég lagði aldrei í að spyrja hvað það hefði verið nákvæmlega sem hún hefði lesið enda fannst mér svo sem nóg að hafa neytt upp á barnið einhverjum dónaskap að ég væri ekki að ætlast til þess að hún þyldi hann svo aftur upp fyrir móður sína.
8. október 2012
Þegar ég keypti dónabók handa barninu mínu

30. nóvember 2010
Dagur kvenna sem hata karla.
Ég vil byrja á því að taka það fram að mér finnst Þórunn Erlu- Valdimarsdóttir og Megas mjög töff og skemmtilegt fólk (nú verður þetta örugglega notað sem kvót til að auglýsa bókina). Nú ætla ég að bókablogga aðeins um Dag kvennanna - ástarsögu, átján ára nóvellu sem var að koma út í fyrsta sinn núna, „eftir að kynjastríðið [hefur komið] konum á toppinn“, eins og segir á kápu bókarinnar. Atburðarás bókarinnar á sér stað á Kvennafrídeginum 24. október 1975. Clint Eastwood look alike-ið Dagur „Himinrjóður“ og næturdrottningin Máney eru aðalsögupersónur, auk þeirra tuttugu þúsund kvenmanna sem „skjóta rótum“ á Lækjartorgi svo miðbærinn verður gegnsýrður af karlfjandsamlegri nærveru þeirra. Kvenréttindakerlingarnar ógna kynverund og kyngervi blíðra kvenna og vaskra karla. Limir karlmanna lyppast niður og hanga ónýtir (ef þeir hverfa þá ekki bara) og fallegar konur þurfa að gæta sín – hinir illu feministar vilja í afbrýðisemi sinni setja þær í afkynjandi föt og svipta þær skarti og ástmönnum. Dagur kvennanna er öskubuskusaga – nema í þessari sögu á Öskubuska ekki tvær afbrýðisamar stjúpsystur, heldur tuttugu þúsund. Kvenréttindabaráttu og greddu/fegurð/(öllu sem mér finnst skemmtilegt) er ítrekað stillt upp sem andstæðum í fyrsta kafla bókarinnar. Það breytist ekki, maður þarf að sætta sig við það. Ég var ekki einu sinni að lesa á milli línanna – ég las það sem stendur í bókinni. Svo leitaði ég í örvæntingu á milli línanna að einhverju sem gæfi til kynna að um kaldhæðni væri að ræða, en ég fann ekkert. Semsagt, ef maður vill halda áfram að lesa þessa stuttu bók eftir fyrsta kaflann, þarf maður að anda djúpt og taka því að kvenréttindabaráttukonurnar eru ljótar, herptar, afbrýðisamar, kynkaldar og valdagráðugar leiðindaskjóður. Það kemur því í rauninni ekkert á óvart að að gefið sé í skyn á kápu bókarinnar að jafnréttisbaráttunni sé lokið og að hún hafi ekki snúist um að ná raunverulegu jafnrétti, heldur um að koma „konum á toppinn“.
Ég varð hrifnari af bókinni eftir því sem leið á frásögnina og hún varð kynlífsmiðaðri (hey, ég er ekki gerð úr steini) og mér fannst mjög gaman að njóta óhefðbundinnar ástarsögu Himinrjóðs og Máneyjar. Stuttur kafli sem lýsir misheppnuðum mökum erkigrybbunnar (forystufeministans) og fórnarlambs hennar er líka svo dónalegur og fyndinn að maður þarf eiginlega að lesa hann upphátt fyrir alla vini sína. Það er mikill húmor í bókinni; rúnkari leitar hælis á Kleppi sem erótískur flóttamaður. Feministarnir á Hótel Borg stofna kvennatímaritið Láttu mig vera (væntanlega vísun í blaðið Vera: tímarit um konur og kvenfrelsi). Það er enginn tepruskapur í frásögninni og er það mér mjög að skapi. Ég skil samt ekki hvers vegna bókin kom ekki bara út fyrir átján árum – hugmyndirnar í henni hafa allavega ekkert orðið ferskari eða beittari síðan þá. Í dag er þetta eiginlega bara frekar banalt. Persónur bókarinnar eru stereótýpur sem birtast í sífellu í (mogga)bloggum misgáfaðra landsmanna og öllum umræðum um feminisma. Við höfum Himinrjóð, sem skilur ekki af hverju konurnar á torginu ásaka hann fyrir það eitt að vera karlmaður: „ásökuðu HANN fyrir eðli kynjanna. Ásökuðu HANN fyrir árþúsunda hefð, í lognu umboði, ásökuðu HANN fyrir það sem náttúran hefur krafist að karlar og konur gerðu til að uppfylla jörðina mönnum og halda tilraun hennar gangandi.“ Máney skilur ekki af hverju hún má ekki bara vera falleg og kvenleg. Og feministarnir eru bitrar kellingar sem enginn elskar, sem neita að samþykkja eðli kynjanna og eru afkynjandi, geldandi afl.
Þetta er í rauninni mjög áhugavert samansafn af stereótýpum sem við þyrftum að setjast niður að ræða yfir nokkrum bjórum. Svo getum við athugað hverjar okkar eru með lengstu handarkikahárin.
Guðrún Elsa
14. júní 2010
Stikkprufur: viðbót við fyrri færslu
Aðra þeirra ætla ég rétt að nefna, en skora á Guðrúnu Elsu sambloggara minn að gera henni rækilegri skil við tækifæri, því hún kynnti mér hana og hefur skoðað hana betur. Bókin heitir Voluptuous Panic – the Erotic World of Weimar Berlin eftir Mel nokkurn Gordon og er einmitt ekki síður fallin til þess að skoða en lesa; auk þess að vera fræðandi er hún kjörin kaffiborðsbók fyrir þá sem eru nógu...jah, smáborgaralegir til að huga að slíku en þó ekki mótfallnir því að gestir þeirra æsist svolítið í kaffiboðinu.
Bókin fjallar í stuttu máli um Weimarlýðveldisárin í Berlín og þá erótík og perversjónir sem þar blómstruðu. Sagt er frá fjölbreytilegum hórdómi, kabarettdönsum, drengjaástum, kvennaástum, klæðskiptum, kvalalosta, kynfræðirannsóknum frumkvöðulsins Magnusar Hirschfeld og hinni stórskemmtilegu (en stundum ögn truflandi arísku) þýsku nektarhreyfingu, svo eitthvað sé nefnt. Bókin er skemmtileg aflestrar og hvað myndirnar varðar er hún hreinasta gullnáma, þær eru svo fallegar og sjúklegar í senn; teikning af berrössuðum dreng sem flengir dúkkurnar sínar með vendi, miðaldra atvinnuflassari með kúluhatt og hálstau flettir frá frakkanum fyrir ljósmyndarann og reynist ber að neðan...
Hin Berlínarbókin sem ég keypti í St. George´s varð sannkölluð biblía mín á gönguferðum um borgina, úttroðin af póst-it-miðum. Hún heitir The Ghosts of Berlin, eftir sagnfræðinginn Brian Ladd, og segir sögu Berlínar frá byggingapólitísku sjónarhorni. Ladd rekur bygginga- og skipulagssögu borgarinnar frá miðöldum til okkar daga og það hvernig pólitískt ástand og hugmyndafræðilegar deilur hafa haft áhrif á uppbyggingu hennar og niðurrif á hverjum tíma fyrir sig. Þetta sjónarhorn hentar sérlega vel fyrir Berlín, jafn hokin og hún er af sögu og pólitík, og gerir bókina að mjög góðri túristabók – hún fókuserar á raunverulega staði sem hægt er að heimsækja og skoða en í stað yfirborðskenndrar staðreyndaupptalningar segir hún sögu átaka og gagnrýni.
Það mætti skipta viðfangsefni bókarinnar í fjóra hluta eftir tíma: heimsborgin Berlín frá 19. öld fram til um 1930, Berlín undir yfirráðum nasista, hin klofna Berlín kalda stríðsins og loks Berlín eftir fall múrsins (bókin er gefin út árið 1997). Kaflarnir vísa þó stöðugt hver í annan og fortíðin rennur saman við samtíðina. Þjóðernis- og sjálfsmyndarpólitískar spurningar eru mjög áberandi – hvaða þýðingu hafði gjörningur listamannsins Christo sem vafði þinghúsið inn í kufl árið 1995? Hvenær hættir það að vera uppgjör að búta niður austurþýskar styttur af Lenín og byrjar að vera tilraun til að þurrka út söguna? Var bygging gyðingaminnismerkisins milli Brandenburgarhliðsins og Potsdamer Platz merki um að Þjóðverjar öxluðu ábyrgð á gjörðum sínum á nasistatímanum eða tilraun til að loka umræðunni, ábyrgðin hefði verið öxluð og þyrfti ekki að ræða það meir?
Saga Berlínar er auðvitað svo mögnuð að skortur á efniviði getur aldrei verið vandamál í metnaðarfullri bók eins og þessari. Saga Potsdamer Platz er gott dæmi; þar voru fjölförnustu gatnamót í Evrópu á fyrstu áratugum 20. aldar, þar var auðn og einskismannsland þegar borginni var skipt upp í kalda stríðinu, gaddavír og varðturnar, nú rísa þar kapítalískir turnar til himna, stórfyrirtæki og rauðir dreglar, ljótari staður en Hamraborgin í Kópavogi. (Hvað ætli gamli maðurinn í Himninum yfir Berlín eftir Wim Wenders segði ef hann væri leiddur þangað núna?)
Ég gæti í rauninni skrifað fjórfaldan pistil um þessa mína uppáhaldstúristabók, en eitthvað verða blogglesendur að eiga til góða. Ég mæli eindregið með því fyrir þá sem langar til að kynnast borginni og sögu hennar umfram hefðbundin bæklingaskrif að næla sér í Drauga Berlínar – maður missir ekki af neinu, Brandenburgarhliðið og Unter den Linden eru líka í þessari bók. Hún er áhugaverð, vel skrifuð og skemmtileg, og það er gríðarlega inspírerandi fyrir Íslending að kynna sér þjóðernis- og sjálfsmyndarpólitík í landi þar sem fólk gerir sér af biturri reynslu grein fyrir mikilvægi sífelldrar gagnrýni og spurninga á því sviði, að maður tali ekki um tilfinninguna fyrir hverfulleika stjórnskipulags og hugmyndafræði.
Kristín Svava
6. janúar 2010
Allt sem Harry Potter er ekki

Sögusvið bókarinnar Votlendi eftir Charlotte Roche, er sjúkrahúsherbergi þar sem hin átján ára Helen liggur vegna rassaðgerðar sem hún þurfti að gangast undir eftir ógætilegan rakstur. Við fylgjum henni og vangaveltum hennar alveg frá því fyrir aðgerðina og þar til henni er sagt að fara heim nokkrum dögum eftir hana. Á þessum tíma gerist ekki svo mikið, en við fáum þó að fræðast heilmikið um allt sem viðkemur kynfærum, rassi og líkamsvessum söguhetju. Það skiptir eiginlega ekki máli hvar maður opnar bókina og byrjar að lesa; maður dettur alltaf niður á eitthvað um kynlíf, vessa, hárvöxt eða sjálfsfróun. Þetta getur verið nokkuð skemmtilegt (og um að gera að nota þetta sem partýskemmtiatriði; fletta tilviljunarkennt upp í bókinni og lesa upphátt þá málsgrein sem maður lendir á – það hlýtur að vekja kátínu). En mér finnst alveg merkilegt, í bók sem fjallar aðeins um ofangreind atriði (kynfæri, rass og líkamsvessa o.s.frv.), hversu lítið er af efni sem virðist geta örvað lesanda kynferðislega. Það þarf alls ekki að gera ráð fyrir því að runkpásur trufli lesturinn nokkuð að ráði. Ég tek þetta sérstaklega fram vegna þeirra viðbragða sem bókin hefur fengið, hún hefur til dæmis verið kölluð „sjálfsfróunarbæklingur“ í þýsku dagblaði. Aftan á bókinni er það líka tekið fram að bókin hafi ýmist verið kölluð klám eða meistaraverk, en það eru skemmtilegar andstæður sem segja kannski meira um bókina en „klám“ eða „meistaraverk“ gera hvort um sig. Þetta veldur því að manni verður ef til vill hugsað til annarrar bókar, Lolitu, sem einnig hefur verið kölluð hvort tveggja. Þær eru þó gerólíkar, bæði að efni og í stíl, og hin síðarnefnda skrifuð af mun meira listfengi. Aðrar bækur sem mér datt í hug við lestur Votlendis voru Saga augans, vegna kynferðislegra lýsinga hennar sem ganga mjög langt og Útlendingur Camus, vegna tómhyggjulegs stíls og hve utangarðs persónan virðist vera í samfélaginu – aðrir hafa bent á líkindi milli söguhetju Votlendis, Helen, og Holden Caulfield úr Bjargvættinum í grasinu.
Í raun má segja að í frásögnum Helen af líkama sínum sé hún alveg blygðunarlaus. Hún er uppfull af tilraunamennsku og greddu, sérviskum og því sem mætti kalla „afbrigðilegar hvatir“. Það sem mér þótti skemmtilegast við kynlífslýsingarnar var að það var eins og hún vildi helst hafa þær sem nákvæmastar, hráastar (á kostnað þess að þær séu æsandi) – þetta má til dæmis sjá á orðinu sem hún notar yfir sníp: perlurani. Aðalsögupersóna bókarinnar, Helen, ögrar hefðbundnum hugmyndum um almennt hreinlæti og kvenleika. Hún trúir því ekki að sýklar geti haft svo skaðleg áhrif á líkamann og sannreynir kenningar sínar til dæmis með að strjúka píkunni upp við almenningsklósettsetur borgarinnar. Hún tekur það svo sérstaklega fram, sigri hrósandi, að hún hafi aldrei fengið sveppasýkingu. Helen sér fegurðina í vessunum og finnst tilhugsunin um að dreifa eigin vessum kitlandi – hvort sem hún nær að lauma munnvatni í vatnsglas sjúkrahússstuðningsfulltrúans eða þvagi sínu undir klossa læknanema. Hún heillast líka af því að innbyrða vessa annarra og reynir ítrekað að vera dónaleg við starfsfólk á pítsustöðum vegna sögu sem hún heyrði um stelpu sem fékk senda heim pítsu með sæði úr fimm karlmönnum, sem voru þreyttir á óþolinmæðinni í henni.
Það má segja að þessi bók sé feminismi, dónaskapur, ögrun, eitthvað ógeðslegt og skítugt eða dásamlegt og frelsandi. Mér leiddist hún að minnsta kosti aldrei.
Guðrún Elsa Bragadóttir