Sýnir færslur með efnisorðinu kitschfríður kvaran. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu kitschfríður kvaran. Sýna allar færslur

1. desember 2011

Kitschfríður og kvennaráðin

Ein af litríkustu jólabókunum þetta árið er án efa húsráðakver Kitschfríðar Kvaran. Það er litríkt í bæði eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Annars vegar eru blaðsíðurnar fullar af appelsínugulum og fjólubláum retrómunstrum og kitsch myndum af hamingjusömum húsmæðrum og fullkomnum fjölskyldum. Og hins vegar er ekki hægt að segja annað en að frúin sú sem bókina tók saman sé ansi litrík og margradda.

Það er bókin líka – margradda alltsvo. Í henni er að finna þrenns konar texta. Uppistaða bókarinnar eru auðvitað húsráðin en inn á milli þeirra eru annars konar ráð, svo sem varðandi umgengni við eiginmenn eða megranir, sem eru augljóslega ekki hugsuð sem annað en skemmtiefni. Þau eru yfirleitt vel aðskilin frá öðru efni og enginn vandi að þekkja þau úr. Í bland við þetta eru svo tilvitnanir í ýmis bjargræðisrit ætluð konum sem gefin voru út allt frá þriðja til sjöunda áratugs síðustu aldar. Það er vel til fundið að stinga þeim þarna inn á milli til að gefa karakter Kitschfríðar nauðsynlegan trúverðugleika. Því það kemur auðvitað í ljós við þann lestur að þyki einhverjum frúin afturhaldsöm er hún hátíð miðað við þær kvaðir sem í raun voru lagðar á konur á sínum tíma.