Fyrir nokkrum vikum skrifaði ég pistil um tímaritamarkaðinn hér í Svíþjóð og Skriva, nýlegt blað fyrir fólk sem hefur áhuga á að skrifa og langar að vera lesið. En kaupin gerast hratt bæði á eyrinni og í Pressbyrån og frá þeirri bloggfærslu hefur að minnsta kosti tvennt markvert gerst á þessu sviði. Annars vegar taldi ég nýlega heil 22 tattútímarit í bestu blaðsölu bæjarins og hins vegar hefur nýtt rit helgað bókmenntum, Books & Dreams, hafið göngu sína.
Á meðan Skriva er ætlað fólki sem hefur áhuga á að skrifa sjálft bókmenntir er þetta nýja blað helgað þeim sem vilja lesa þær. Í þessu fyrsta hefti kennir ýmissa grasa. Á forsíðunni eru þrír þekktir einstaklingar sem eru allir að gefa út endurminningabók nú í haust og viðtöl við hvern og einn þeirra er að finna inni í blaðinu. Það er líka rætt við bandaríska spennuhöfundinn Harlan Coben og breska femínistann Caitlin Moran, glæpasagnahöfundurinn Mons Kallentoft segir frá sínum uppáhaldsstöðum í Tælandi og enn einn rithöfundurinn, Emma Hamberg, leiðir lesendur inn í lestrarhornið sitt. Af föstum liðum blaðsins má nefna pistil eftir leikarann Michael Nykvist (sem meðal annars lék Mikael Blomkvist í sænsku myndunum sem gerðar voru eftir bókum Stieg Larssons) og smásögu blaðsins sem í þessu fyrsta hefti er eftir Jens Lapidus sem gjarnan kennir sig við bókmenntagreinina Stockholm noir. Inn á milli er svo það áhugaverðasta á bókamarkaðnum þetta haustið kynnt, sumt með örstuttum umfjöllunum þar sem greint er frá efni bókarinnar í einum eða tveimur setningum, annað í aðeins lengra máli.
Blaðið er allt hið vandaðasta, fallega upp sett og vel myndskreytt, brotið í sambærilegri stærð og harðspjaldabók af stærri gerðinni og fer því vel með bókunum sem það fjallar um. En einhvers staðar þar lýkur kostum blaðsins og gallarnir taka við. Því þótt viðtölin og greinarnar séu alveg áhugaverðar í sjálfu sér þá drukkna þær í yfirborðs- og markaðsmennskunni sem einkennir Books & Dreams. Svo kallaðar „kundtidningar“ hafa verið að sækja í sig veðrið að undanförnu hér í Svíþjóð. Þetta eru tímarit sem hin og þessi fyrirtæki gefa út um eigin starfsemi og láta viðskiptavinum sínum í té ókeypis. Þrátt fyrir að vinnan við þau sé oft mjög metnaðarfull eru þau auðvitað lítið annað en auglýsingar í glansumbúðum. Books & Dreams er ekki skilgreint sem slíkt heldur selt á opnum markaði en það er hins vegar gefið út af Bonnierförlagen og undir merkjum þess eru jafnframt ýmis bókaforlög svo hagsmunatengslin eru augljós. Ég fæ ekki betur séð en að það sé fjallað um bækur fá fleiri forlögum en þeim sem standa beint og óbeint að tímaritinu en gildi þess sem markaðsafl fyrir útgefandann er engu að síður óumdeilt.
