Allt frá árinu 1987 hefur Íslandsdeild
IBBY-samtakanna veitt viðurkenningar fyrir framlag til barnamenningar á Íslandi. Í gær hlutu fjórir einstaklingar viðurkenninguna
Vorvinda. Þau eru Jónína Leósdóttir sem fékk viðurkenningu fyrir bækurnar
Kossar og ólífur og
Svart og hvítt, Brynhildur Björnsdóttir og Kristín Eva Þórhallsdóttir fyrir
Leynifélagið sem er þáttur fyrir krakka í Ríkisútvarpinu og Halldór Á. Elvarsson fyrir skemmtilegar og nýstárlegar bækur fyrir yngstu börnin.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli