Íslenskir bókaútgefendur, rithöfundar, bóksalar og lesendur fikra sig nú áfram á rafbókamarkaði og lesendur virðast, margir hverjir að minnsta kosti, taka rafbókavæðingunni fagnandi. Rafbókina má kaupa strax, hvar sem maður er staddur í veröldinni og hún ferðast auðveldlega milli landa í víðum skilningi. Væntanlega þarf ekki að bíða endalaust eftir endurprentunum og svo eru rafbækur nokkuð ódýrari en hinar prentuðu. Við þurfum ekki að burðast með þungan pappír á milli staða og rafbækur taka ekkert sýnilegt pláss og það má stilla lesvélar eftir þörfum hvers lesanda. Einnig væri hægt að benda á umhverfissjónarmið í þessu sambandi þó að margir hafi vissulega bent á að gamlar lesvélar muni væntanlega hlaðast upp þegar frá líða stundir og því séu þau ekki endilega ægilega umhverfisvæn en það er önnur saga.21. febrúar 2012
Má bjóða þér að blaða aðeins í kyndlinum mínum?
Íslenskir bókaútgefendur, rithöfundar, bóksalar og lesendur fikra sig nú áfram á rafbókamarkaði og lesendur virðast, margir hverjir að minnsta kosti, taka rafbókavæðingunni fagnandi. Rafbókina má kaupa strax, hvar sem maður er staddur í veröldinni og hún ferðast auðveldlega milli landa í víðum skilningi. Væntanlega þarf ekki að bíða endalaust eftir endurprentunum og svo eru rafbækur nokkuð ódýrari en hinar prentuðu. Við þurfum ekki að burðast með þungan pappír á milli staða og rafbækur taka ekkert sýnilegt pláss og það má stilla lesvélar eftir þörfum hvers lesanda. Einnig væri hægt að benda á umhverfissjónarmið í þessu sambandi þó að margir hafi vissulega bent á að gamlar lesvélar muni væntanlega hlaðast upp þegar frá líða stundir og því séu þau ekki endilega ægilega umhverfisvæn en það er önnur saga.19. febrúar 2012
Downton Abbey og Life below stairs
Jafn klisjukennt og það nú hljómar þá er ég einlægur aðdáandi sjónvarpsþáttanna um fólkið í Downton Abbey. Því miður þá náði ég ekki að fylgjast með þáttunum alveg frá byrjun og hef því fengið söguna í aðeins bútasaumskenndu formi, en það sakar svosem ekki. Nú bíð ég auðvitað spennt eftir framhaldinu, það hýtur bara að vera að það verði framleiddir þætti alveg þangað til ættin verður komin á vonarvöl og afkomendurnir farnir að ganga í hippalegum klæðum og taka þátt í Aldermaston marches. Ég er alveg viss um að í næstu þáttaröð þá fer allt í rugl og enginn nema pólitíski bílstjórinn sem lady Sybil giftist getur bjargað familíunni.
18. febrúar 2012
Bokasofn eru vinir minir, meira ad segja i Bretlandi
Eg verd ad bidja lesendur ad umbera skort a islenskum stofum i thessari faerslu - eg er stodd i Edinborg og ekki med eigin tolvu, og er sannarlega ekki nogu taeknilega klar til ad finna islenska stafi, ef thad er yfirhofud haegt ...
Af thvi ad eg er i Skotlandi, thar sem eg bjo um tima, vard mer hugsad til horfinna tima og tha medal annars thess thegar eg var ad skrifa mastersverkefnid mitt. Thad sumar var eg mikid a Mitchell-bokasafninu i Glasgow, en vid vinkona min og skolasystir hittumst gjarnan i otrulega tacky lestrarsal sem leit ut eins og eitthvad slys fra upphafi 8. aratugarins. Thar unnum vid i einhverja klukkutima og drukkum svo kaffi saman nidri i kaffiteriunni. Mitchell Library er einn af theim stodum i Glasgow sem mer er serstaklega hlytt til. Gloggir sjonvarpsahorfendur kannast ef til vill vid bygginguna ur upphafsstefi Taggart-thattanna vinsaelu, thar sem ymsum fraegum stodum fra borginni bregdur fyrir. Thar spiludu Belle & Sebastian lika sina fyrstu tonleika fyrir ansi morgum arum, en yfir byggingunni er mikill sjarmi.
Hins vegar er bokasafnamenningin i Bretlandi alls ekki su sama og eg atti ad venjast heima a Islandi. Almenningsbokasofn eru morg hver mjog ospennandi - ef bokasafn getur einhvern tima verid ospennandi - og virdist ekki serlega vel hugsad um thau. Mer skilst ad sofnin seu mun minna notud. Mitchell Library er staersta bokasafnid i Glasgow og vel buid fraedibokum, thott katalogurinn se ad hluta til enn i spjaldskra (sem er reyndar sjarmerandi ef madur er svona retro-typa eins og eg); af skaldsogum og almennu efni er hins vegar fremur fataeklegt urval og thad var ekki mikid glaesilegra i Hillhead-bokasafninu i hverfinu minu.
![]() |
| Mitchell-bokasafnid er med fallegustu byggingum i Glasgow |

17. febrúar 2012
Allt um Fry
Eftir góða rispu af reyfurum er ég núna á kafi í ævi Stephens Fry og það er ekki leiðinlegt. Fyrsta bindið af sjálfsævisögu hans ber það þjála og eftirminnilega nafn Moab is My Washpot (þótt ég hafi heyrt nafnið og lesið ótal sinnum þurfti ég að fletta því upp eina ferðina enn fyrir þessa færslu) og þar fjallar hann um æsku sína. Í næsta bindi – sem ég hef verið að lesa – skrifar hann m.a. um háskólaárin í Cambridge og fyrstu skrefin í leikhúsheiminum. Nafn þessa bindis er jafn einfalt og hitt er flókið (það er raunar svo frábrugðið því fyrra að maður veltir því fyrir sér hvort útgefandinn hafi grátbeðið um þægilegra nafn) - nýja bókin heitir The Fry Chronicles.16. febrúar 2012
Nítjánda fegursta bókabúð heims og skáldið sem orti um lykil að hurð, en hurðin var hvergi
Fyrir skömmu tengdum við druslubókadömur af Facebooksíðu okkar á lista sem Flavorwire gerði yfir tuttugu fegurstu bókabúðir heims. Á honum uppgötvaði ég mér til mikillar gleði bókabúð hér í Lissabon sem ég hafði ekki komið í. Hún ber það sérstæða nafn Ler Devagar – Lesa hægt – og er önnur af tveimur portúgölskum bókabúðum á lista Flavorwire, en Þórdís hefur bloggað um hina, Livraria Lello í Porto. Það var ekki furða að ég hefði ekki rambað á Ler Devagar á gönguferðum mínum, enda er hún ekki staðsett í miðbænum heldur í gömlum verksmiðjukomplex í Alcântara-hverfinu vestur af miðborginni, svo að segja beint undir hinni risavöxnu 25. apríl-brú. Verksmiðjan, sem var byggð árið 1846 og framleiddi vefnaðarvöru, kallast í dag LX Factory og er dæmigerð uppgerð verksmiðja eins og maður finnur gjarnan erlendis með hipsteralegum fyrirtækjum, lífrænum kaffihúsum og hörfatabúðum. (Það var líka skemmtileg alþjóðleg blaðasala í gámi.)
15. febrúar 2012
Mein Kampf 2012
Ættum við að endurútgefa gamlar bækur sem innihalda hatursáróður í garð einstakra þjóða eða þjóðfélagshópa? Er vel til fundið að gefa þær út sem heimildir og einhvernskonar minnisvarða um liðna tíð sem vonandi gengur ekki aftur? Eða gætu þær mögulega orðið innblástur fyrir frekari hatur og illvirki og ættum við þess vegna að banna þær með lögum? Ættum við að hlífa fórnarlömbum ofsóknanna við minningunum?
Þetta eru allt góðar og gildar spurningar og eins og Kristín Svava bendir á í nýrri færslu þá stóðu Íslendingar frammi fyrir þeim þegar stóð til að endurútgefa þýðingu á Tíu litlum negrastrákum með myndskreytingum eftir Mugg. Ég var sjálf þeirrar skoðunar að bókin ætti ekkert erindi. Mér fannst hún meiðandi og vísurnar óhugnarlegar og ég er enn þeirrar skoðunar. Við það vil ég bæta að mér finnst vægast sagt undarlegt að a.m.k. tveir (1, 2) íslenskir leikskólar hafi þessar vísur í sínum söngbókum. Það er í svo hróplegu ósamræmi við allt sem leikskólar eiga að standa fyrir og kenna börnunum okkar - að bera virðingu fyrir öðrum, rækta ástina og friðinn svo ég taki nú bara handahófskennd dæmi. Ég verð stundum þreytt á ákveðnum öfgum í því sem kallast "pólitískt rétthugsun" hér í Bandaríkjunum en það veit Guð að ef 2 ára syni mínum væri kennt að syngja þessar vísur á leikskólanum sínum hvar svo sem í heiminum hann væri staðsettur, þá myndi fjúka verulega í mig og ég myndi grípa til aðgerða. En að öðru skyldu máli.
Nú nýlega bárust fréttir af því í fjölmiðlum að til stæði að endurútgefa Mein Kampf - einskonar manifesto Hitlers með sjálfsævisögulegu ívafi sem hann skrifaði meðan hann sat í fangelsi fyrir aðild að misheppnaðri valdaránstilraun árið 1923. Bókin er ekki bönnuð Í Þýskalandi en hefur verið ófáanleg síðan síðari heimsstyrjöldinni lauk. Auðvelt hefur þó verið að nálgast hana á þýsku á bókasöfnum, kaupa hana á öðrum tungumálum eða hlaða textanum niður af internetinu.
Útgefandi tímaritsins Zeitungszeugen tilkynnti í byrjun janúar að hann hyggðist birta valda kafla úr Mein Kampf í fylgiriti með tímaritinu ásamt skýringum. Útgefandinn vildi með þessu varpa ljósi á hugmyndir Hitlers og hvetja almenning til þess að kynna sér þær betur og skilja þannig betur hvernig Þjóðverjar leiddust út í hörmungar síðari heimsstyrjaldar. Þessar fyrirætlarnir vöktu hörð viðbrögð í Þýskalandi. Margir sögðu að þeir sem lifðu helförina af ættu að geta farið um almannarými - drukkið kaffi í bókaverslunum og farið á markaðinn án þess að þurfa að óttast að rekast á Hitler. Aðir óttuðust að útgáfan gæti orðið frekara vatn á myllu nýnasistahreyfinga og mörgum var tíðrætt um hversu ósmekklegt það væri að selja tímarit og græða á minningunni um helförina. En það voru ekki allir Þjóðverjar andsnúnir útgáfunni og einhverjum fannst tími til kominn að þjóðin horfðist með þessum hætti í augu við sögu sína og útgáfa að bókinni ætti að vera til á þýsku eins og öðrum tungumálum. Hún hefði jafnvel verið gefin út á hebresku í Ísrael og hversvegna ekki í Þýskalandi?
Bæjaraland á útgáfuréttinn að Mein Kamp og öðrum nasískum literature þar til árið 2015 er liðið, en þá eru 70 ár frá dauða Hitlers. Þessi sami útgefandi Zeitungszeugen, Peter McGee, birti fyrir nokkrum árum brot úr dagblöðum nasista í tímaritinu og var fyrir það stefnt af ríkisstjórninni í Bæjaralandi. Dómstóll í München komst að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir að enginn vafi léki á því að útgáfa nasísks áróðurs bryti í bága við lög þá væri McGee ekki sekur því tilgangur hans hefði ekki verið sá að dreifa hatri heldur hefði hann einungis ætlað sér að uppfræða almenning. Í ljósi þessa er ólíklegt að hægt verði að sækja hann til saka fyrir að birta valda kafla úr Mein Kampf en engu að síður hefur fyrirætlununum verið frestað vegna hótana um frekari málsóknir. Það verður áhugavert að fylgjast með framhaldi þessa máls og ekki síður hvað úr verður þegar rétturinn að bókinni rennur út árið 2015. Þær raddir hafa heyrst frá sagnfræðingum að hefjast ætti strax handa við vandaða og gagnrýna útgáfu verksins sem geti komið út fljótlega og áður en nýnasistar ná að koma höndum yfir það og gefa út sína útgáfu.

Bækur sem eru börn síns (rasíska) tíma
Belgískur dómstóll komst að þeirri niðurstöðu fyrir helgi að bókin Tinni í Kongó brjóti ekki gegn belgískum lögum gegn kynþáttahatri, en til þess hefði þurft að sýna fram á að bókinni hefði verið ætlað að hvetja til rasisma. Kongómaðurinn Bienvenu Mbutu Mondondo hefur staðið í lagaferlum gegn bókinni í nokkur ár, í Belgíu og í Frakklandi.
Tinni í Kongó var önnur Tinnabók höfundarins Hergé. Sagan kom fyrst út á bók árið 1931 og aftur í endurbættri útgáfu árið 1946. Eins og nafnið gefur til kynna fjallar hún um ævintýri aðalsöguhetjunnar Tinna í Afríkulandinu Kongó. Tinni í Kongó hefur löngum verið umdeild, og gagnrýnd fyrir að draga upp neikvæða og rasíska mynd af Kongóbúum sem lötum einfeldningum. Sums staðar í Bretlandi er hún flokkuð með bókum fyrir fullorðna af þessum sökum. Hergé var víst sjálfur síðar á ferli sínum ekki alls kostar ánægður með bókina.
Þetta minnir á deilurnar sem komu upp á Íslandi fyrir nokkrum árum kringum endurútgáfuna á Tíu litlum negrastrákum. Ég held að fæstir hafi viljað banna útgáfuna, en það komu upp svipaðar hugmyndir um að gefa hana út með sögulegum skýringum eða færa hana úr barnabókahillunum í fullorðinsdeildina, að gera einhvers konar „ábyrgðarfulla útgáfu“ af bókinni, sem væri þá alltént ekki varpað formálalaust í hendurnar á börnum.

14. febrúar 2012
„Kynmögnuð kona sem ann manni sínum fróar honum af kostgæfni“
Einhvern tímann á síðasta ári áskotnaðist mér bókin Sjafnaryndi: Unaður ástalífsins skýrður í máli og myndum. Bók þessi kom út á Íslandi 1978 og er þýðing á The Joy of Sex sem kom út í Bretlandi 1972 og var ritstýrt af doktor Alex Comfort. Ég hafði lítið skoðað þessa bók, rétt svo gripið niður hér og þar og flissað yfir myndunum og undarlegri málnotkun, en fór að skoða hana betur í gærkvöldi. Í tilefni af degi elskenda hlýtur að vera við hæfi að birta umfjöllun um hana. Sæborgarblogg
![]() |
| Teikningin á kápunni er eftir Ingu Maríu Brynjarsdóttur. |
13. febrúar 2012
Fjöruverðlaunin afhent í sjötta sinn
Sunnudaginn 19. febrúar verða Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, afhent í sjötta sinn. Hátíðin fer fram í Iðnó og hefst dagskráin klukkan 11.00.
Dagskráin hefst á því að Ljótikór syngur nokkur lög og að því loknu flytur sérstakur gestur hátíðarinnar, Sandi Toksvig, ræðu og svarar spurningum úr sal. Toksvig er vel þekktur rithöfundur, grínisti og dagskrárgerðarmaður. Hún hefur einnig verið formaður dómnefndar Orange bókmenntaverðlaunanna í Bretlandi, en stofnandi þeirra, Kate Mosse, kom hingað til lands árið 2010 til að afhenda Fjöruverðlaunin. Að ræðu Toksvig lokinni verða verðlaunin afhent en samtals níu bækur eru tilnefndar í ár:
Fagurbókmenntir
Jójó eftir Steinunni Sigurðardóttur
Kanill: ævintýri og örfá ljóð um kynlíf eftir Sigríði Jónsdóttur
Jarðnæði eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur
Fræðibækur
Mannvist. Sýnisbók íslenskra fornleifa eftir Birnu Lárusdóttur
Nútímans konur: Menntun kvenna og mótun kyngervis á Íslandi 1850-1903 eftir Erlu Huldu Halldórsdóttur
Ríkisfang ekkert: flóttinn frá Írak á Akranes eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur
Barna- og unglingabækur
Flugan sem stöðvaði stríðið eftir Bryndísi Björgvinsdóttur
Gegnum glervegginn eftir Ragnheiði Gestsdóttur
Með heiminn í vasanum eftir Margréti Örnólfsdóttur
Aðgangseyrir er 1500 krónur og innifalið í því verði er samloka, kaffi og gos. Gestir eru vinsamlegast beðnir um að mæta tímanlega en dagskráin er í Iðnó og hefst stundvíslega klukkan 11.00 og stendur til 13.00. Allt áhugafólk um bókmenntir er velkomið á meðan húsrúm leyfir.
![]() |
| Sandi Toksvig |

Af austenskum tilfinningaþunga
![]() |
| Eina teikningin sem til er af Jane Austen |
Ég hef auðvitað líka verið að lesa bækurnar hennar, bæði lesa aftur þær sem ég þekkti fyrir og svo að kynna mér þær sem ég hafði aldrei lesið. Í vikunni sem leið las ég þá síðustu sem ég átti eftir af fullkláruðu skáldsögunum, Persuasion, sem var einmitt síðasta bókin sem Austen lauk við og kom út skömmu eftir dauða hennar. Það er allt öðruvísi stemning í Persuasion en í hinum bókunum - reyndar er miklu meiri munur á bókunum hennar almennt en maður myndi halda af umfjöllun og skírskotunum í Austen. Persuasion var skrifuð á eftir Emmu, sem er af allt öðrum toga - löng og flókin, uppfull af glettni og háði (ekki síst á kostnað aðalpersónunnar), og þótt í henni séu mjög dramatískir straumar er samt aldrei eins og ástamál Emmu og hinna persónanna séu spurning um líf eða dauða. Emma býr vissulega við þrúgandi nærveru einstaklega heilsukvíðins föður (sem nú til dags yrði sendur beint í hugræna atferlismeðferð sem var því miður ekki til á tímum hýpókondríaksins herra Woodhouse), en með þeim er afskaplega kært, hún á vini og ástríka fjölskyldu og lífið blasir við henni. Í Persuasion fylgjumst við hins vegar með eftirleik ástarsambands sem endaði illa og aðalpersónan, Anne Elliot, er stödd í algjöru öngstræti.
11. febrúar 2012
„Did you ever stop to think, and forget to start again?“
Sögur A.A. Milne um Winnie-the-Pooh eða Bangsímon komu út á tveimur bókum á þriðja áratug 20. aldar. Bangsímon er með krúttlegri böngsum bókmenntasögunnar og örugglega sá frægasti ‒ líklega væri samkeppnin helst við samlanda hans Paddington (sem reyndar var perúskur innflytjandi í London), en þar sem sá hefur ekki orðið Disneyfígúra á hvíta tjaldinu hefur Bangsímon klárlega vinninginn.
Bangsímon er uppáhaldsleikfang drengs að nafni Jakob Kristófer, eða Christopher Robin á frummálinu. Engum sögum fer af tilveru Jakobs utan heimilis eða í félagsskap annars mannfólks og ekki er hann alltaf beinn þátttakandi í atburðum bókanna, en þó ávallt til staðar ‒ ef ekki uppi í tré eða heima í húsi, þá í meðvitund aðalpersónanna, tuskudýranna sinna. Með Bangsímon fremstan í flokki lenda þau í ýmsum svaðilförum sem yfirleitt vara í svosem eitt eftirmiðdegi, og hafi Jakob Kristófer verið fjarri góðu gamni fær hann að heyra allt af létta í endursögn Bangsímons.

9. febrúar 2012
Afmælisbarn ársins
Um þessar mundir fagnar tvöhundruð ára afmæli sínu einn af þessum rithöfundum sem allir þekkja, jafnvel þótt þeir hafi ekki lesið neitt eftir hann; Charles Dickens, en hann fæddist þann 7. febrúar 1812. Af því tilefni fagnar heimsbyggðin, en þó einkum Bretar, með margvíslegum hátíðahöldum. Svona afmælisár eru auðvitað kapítuli út af fyrir sig og ég vona að Dickens greyið hljóti ekki þau örlög sem sumar aðrar þjóðhetjur og stórafmælisbörn hafa hlotið, það er að segja að ákafi og metnaður stjórnvalda geri það að verkum að eftir afmælið séu allir búnir að fá ógeð á afmælisbarninu og alltumlykjandi nærveru þess.Ákafinn og metnaðurinn eru allavega til staðar, eins og sjá má af afmælisheimasíðu Dickens. Þar er hægt að fræðast um höfundinn, verk hans, myndefni sem gert hefur verið eftir verkum hans, söfn, sýningar og atburði afmælisársins (hvern langar ekki að taka þátt í Dickens-hálfmaraþoninu?). Auk þess birtast tilvitnanir í Dickens ótt og títt og hann virðist nú bara oft hafa hitt naglann á höfuðið, kallinn.
Atburðirnir sem hér eru auglýstir eiga sér flestir stað í Bretlandi, einkum London, en hátíðahöldin teygja sig víðar. Hér í Portúgal standa yfir bókasýningar og bíósýningar Dickens til heiðurs og Reykvíkingar fá líka eitthvað fyrir sinn snúð. Samkvæmt vef Bókmenntaborgarinnar verður sérstök málstofa um Dickens á hugvísindaþingi Háskóla Íslands 9.-10. mars en einnig hefur Dickens verið minnst í Ríkisútvarpinu og í Kiljunni.
8. febrúar 2012
Eins konar X-Men
![]() |
| Sjáiði, hún svífur! |
Hún fjallar um unglinginn Jacob sem á ríka foreldra sem virðast hvorki hafa tíma fyrir hann né mikinn áhuga á honum. En hann og afi hans, pólskur gyðingur sem missti alla fjölskyldu sína í útrýmingarbúðum í seinni heimsstyrjöldinni, eru afar nánir. Afi hans segir honum ótrúlegar sögur af því þegar hann barðist í stríðinu, hvernig hann lærði á byssur, hvernig hann lærði að komast af í óbyggðum og síðast en ekki síst sögur af börnunum sem hann ólst upp með á munaðarleysingahæli á velskri eyju, undir dyggri stjórn Miss Peregrine.
Þar voru engin venjuleg börn, sagði hann, heldur gátu sum flogið, önnur voru ósýnileg og önnur með andlit aftan á hausnum o.s.frv. Hann á meira að segja myndir af þeim öllum sem hann sýnir Jacob. Hann varar hann líka við skelfilegum skrímslum sem hafa elt hann á röndum alla ævina og lýsir þeim niður í smæstu smáatriði.
7. febrúar 2012
Raunhæft ástalíf
![]() |
| Ansi falleg bók, sjálft bandið er rautt. |
Þessi bók, sem ég eignaðist í gær, var í íslenskri blaðaauglýsingu árið 1945 sögð fyrsta nútíma handbókin um samlíf karls og konu sem kemur út á íslensku og útgáfan hefur þótt svo umdeilanleg að skýringamyndirnar voru innsiglaðar aftast og tekið var fram í auglýsingum að bókin yrði aðeins seld fullorðnum. Ég hafði aldrei heyrt um þessa bók fyrr en ég fékk hana í hendur og hafði því auðvitað ekki hugmynd um við hverju ég ætti að búast. Vissulega var ég með ákveðna fordóma, kynlífshandbækur eru nú oft ansi kjánalegar, ekki síst ef þær eru komnar vel til ára sinna. En þegar ég fór að lesa kom þessi bók mér skemmtilega á óvart, hún er alveg ágæt að flestu leyti og greinilega skrifuð af höfundi sem vissi sínu viti.
5. febrúar 2012
Hann er bara ósköp venjulegt ungabarn: Doris Lessing og þriðja barnið
Ég hef fengið mjög mikið útúr því að lesa æfisögurnar hennar, og þær bækur sem hún hefur skrifað sem eru “hálf æfisögulegar” eða fjalla á einhvern hátt um líf hennar og pælingar. Ég ætla svosem ekkert að fara djúpt ofaní þau mál í þetta sinn, en fann allt í einu hjá mér þörf til að minnat aðeins á atvik sem hún lýsir undir lok fyrra bindis sjálfsæfisögu sinnar “Under My Skin: Volume One of My Autobiography. To 1949” Einsog margir eflaust vita giftist Lessing ung manni að nafni Frank Wisdom og átti með honum tvö börn, þau John og Jean. Hún fór frá Frank eftir nokkrra ára hjónaband og skildi börnin eftir í hans umsjá. Eitthvað sem vissulega þótti afar einkennilegt á þeim tíma og hún var dæmd fyrir. Þessi “einkennilega” hegðun var útskýrð með því að hún væri í slæmum félagsskap “kommúnista” og útlendinga sem hefðu einkennilegar hugmyndir og stæðu í allskyns undirróðursstarfsemi.
Eftir skilnaðinn frá Frank Wisdom hellti Lessing sér útí starf róttæks hóps í Salisbury sem í raun varð hennar andlega og veraldlega fjölskylda. Þar kynntist hún manni að nafni Gottfried Lessing, en hann var flóttamaður frá Þýskalandi Hitlers, intellektúal af gyðingaættum sem endað hafði í Suður Rhodesíu. Lessing lýsir því á sinn jarðbundna hátt að þau hafi í raun aldrei átt neitt sameiginlegt þannig séð, annað en það að vera kommúnistar - af ástæðum sem höfðu allt með aðstæður og tíðaradann að gera. Þau áttu engan vegin saman sem hjón og voru á allan hátt svo ólík að undrum sætir.
4. febrúar 2012
Bókabúðir í Singapúr: Kinokuniya og Books Actually
| Myndin tengist efni pistilsins alls ekki beint. |
Í agalega stóru ljósmyndasafni sem bíður flokkunar og úrvinnslu er að finna ófáar myndir úr bókabúðum sem ég kannaði á ferðalaginu. En áður en ég leggst undir feld til að ákveða hvort betra sé að reyna á þolinmæði lesenda með maraþonbloggfærslu um víetnamskar bókabúðir eða beinlínis með greinaflokki verður hér fjallað um tvær bókabúðir í Singapúr þar sem ég kom við á leiðinni.
3. febrúar 2012
Um „andstuttan“ krimma
Aftan á danska krimmanum Líf og limir eftir Elsebeth Egholm er vitnað í glimmrandi dóm úr Jydske Vestkysten og staðhæft að hér sé um að ræða „úthugsað og vel spunnið glæpamál í andstuttri frásögn...“ Ég á nú erfitt með að skrifa undir það – bæði var bókin nú ekki svo spennandi að maður héldi niðri í sér andanum og svo finnst mér hálf undarlegt að tala um að frásögn sé andstutt (það gengur kannski í dönsku og ensku (breathless) en hæpið í íslensku...En þar með hefur Molaskrifari lokið sér af og ég get farið að mæra bókina sem var bara nokkuð góð!Bókin sem breytti útgáfuheiminum
Rafbókavæðingin og það hvað hún getur þýtt fyrir bókaútgáfu hefur mikið verið rædd undanfarið. Sitt sýnist auðvitað hverjum, sumir fagna rafbókinni á meðan aðrir bölsótast og eru vissir um að hún muni ganga af forlögunum dauðum, Amazon muni erfa heiminn og allt fari til andskotans.
Amanda Hocking er nafn sem hefur verið áberandi í þessari umræðu, því hún hefur orðið einskonar tákn fyrir rafbókavæðinguna og öðruvísi útgáfulandslag.
Amanda Hocking er tuttugu og sjö ára bandarískur rithöfundur sem skrifar yfirnáttúrulega rómansa (eða paranormal romance eins og það heitir upp á ensku). Hún hefur alltaf haft áhuga á bókmenntum og hún byrjaði mjög ung að skrifa. Hún fór fljótlega að leita sér að útgefanda en fékk neitun á neitun ofan. Þegar hún var komin með heilu skúffustæðurnar fullar af bókum og bókaflokkum og var orðin úrkula vonar um að fá útgáfusamning ákvað hún að taka málin í sínar hendur. Hún gaf bækurnar sjálf út á Amazon og verðlagði þær afar ódýrt. Ég held að fyrsta bók í seríu hafi kostað 99 sent og sú næsta 2.99 dollara. Þær seldust ekkert sérstaklega hratt í fyrstu, en Hocking dældi þeim á netið og forvitnir lesendur tóku við sér. Sex mánuðum síðar voru bækurnar hennar orðnar heitasta heitt á Amazon, hún var búin að græða sex þúsund dollara og gat hætt í vinnunni og einbeitt sér að ritstörfum. Og nú skilst mér að hún hafi selt 1,5 milljón bækur og grætt 2,5 milljónir dollara á þeim.
Forleggjarar, sem höfðu ekki sýnt henni áhuga áður, fóru að hafa samband við hana og hún þáði að lokum 2,1 milljóna dollara samning við St. Martins Press. Margir urðu hissa á að hún hefði gengið til liðs við forlag eftir að hafa gengið svona vel sjálfri, en hún sagðist vera orðin dauðþreytt á því að þurfa að gera allt sjálf. Hún kvartaði yfir því að hún ætti erfitt með að finna nógu gott frílansfólk, því bækurnar hennar voru oft morandi í villum, þrátt fyrir að hún hefði borgað fólki fyrir ritstjórn og prófarkalestur. Það fannst henni leiðinlegt, því lesendur ættu betra skilið. Hana langaði líka að bækurnar hennar væru til í bókabúðum og aðgengilegar fólki sem ætti ekki rafbókalesara.
Ég ákvað að tjékka á því hvort eitthvað væri í hana spunnið og keypti mér bókina Switched, fyrstu bókina í Trylle-trílógíunni (á kyndilinn, en ekki hvað), sem nú kostar reyndar 9 dollara en ekki lengur 99 sent, útgefin og yfirfarin af nýja forlaginu hennar og ódýra, upphaflega útgáfan löngu horfin af netinu.
Amanda Hocking er nafn sem hefur verið áberandi í þessari umræðu, því hún hefur orðið einskonar tákn fyrir rafbókavæðinguna og öðruvísi útgáfulandslag.
![]() |
| Amanda Hocking |
Forleggjarar, sem höfðu ekki sýnt henni áhuga áður, fóru að hafa samband við hana og hún þáði að lokum 2,1 milljóna dollara samning við St. Martins Press. Margir urðu hissa á að hún hefði gengið til liðs við forlag eftir að hafa gengið svona vel sjálfri, en hún sagðist vera orðin dauðþreytt á því að þurfa að gera allt sjálf. Hún kvartaði yfir því að hún ætti erfitt með að finna nógu gott frílansfólk, því bækurnar hennar voru oft morandi í villum, þrátt fyrir að hún hefði borgað fólki fyrir ritstjórn og prófarkalestur. Það fannst henni leiðinlegt, því lesendur ættu betra skilið. Hana langaði líka að bækurnar hennar væru til í bókabúðum og aðgengilegar fólki sem ætti ekki rafbókalesara.
Ég ákvað að tjékka á því hvort eitthvað væri í hana spunnið og keypti mér bókina Switched, fyrstu bókina í Trylle-trílógíunni (á kyndilinn, en ekki hvað), sem nú kostar reyndar 9 dollara en ekki lengur 99 sent, útgefin og yfirfarin af nýja forlaginu hennar og ódýra, upphaflega útgáfan löngu horfin af netinu.
2. febrúar 2012
Stofnunin og mæðraveldið
Undanfarið hef ég verið að lesa á kyndlinum tvær skáldsögur sem hafa verið lengi á leslistanum og eiga ýmislegt sameiginlegt. Þær eru báðar af þeirri tegund sem lendir gjarnan á listum yfir hundrað bestu bækur 20. aldarinnar, þær eru báðar frá 1962, þær fjalla báðar um samskipti einstaklingsins við yfirvaldið og það hafa verið gerðar frægar kvikmyndir eftir þeim báðum; A Clockwork Orange eftir Anthony Burgess og One Flew Over the Cuckoo´s Nest eftir Ken Kesey (myndarlega manninn með pípuna hér til vinstri).Ég hafði gaman af A Clockwork Orange, sérstaklega rússneskuskotna nadsat-slangrinu sem talað er í þessari dystópísku veröld og setur mark sitt á frásögnina, en plottið greip mig ekki sem slíkt og mér fannst endirinn ósannfærandi (rétt eins og bandarísku útgefendum Burgess, sem og Stanley Kubrick, sem slepptu síðasta kaflanum). Ég man reyndar ekki eftir neinni bók þar sem mér hefur þótt uppljómun syndara í blálokin sannfærandi, sem er það sem á sér stað í A Clockwork Orange. (Eitthvað svipað gerist í Les Liasions Dangereuses, sem Guðrún Elsa skrifaði um fyrr í vikunni, og af líkum ástæðum fór endirinn á Glæp og refsingu rosalega í taugarnar á mér á sínum tíma.) Gaukshreiðrið er hins vegar mun dramatískari bók og olli mér á endanum mun meiri óþægindum en ofbeldið og djöfulgangurinn í Burgess.
Söguþráðurinn hljómar sennilega kunnuglega fyrir marga. Gaukshreiðrið gerist á deild á geðsjúkrahúsi þar sem valdasjúka hjúkrunarkonan Ratched ræður ríkjum. Hún stjórnar mönnunum á deildinni með járnhendi í flauelshanska, etur þeim saman, niðurlægir þá og og kúgar með útsmognum sálfræðihernaði. Sögumaðurinn er Chief Bromden, hálfur indíáni og tröll að vexti, sem þykist vera mállaus og heyrnarlaus en fylgist náið með því sem á sér stað. Einn daginn kemur nýr vistmaður á deildina, hinn rauðhærði og tattúveraði McMurphy, sem hefur tekist að svindla sér út úr fangelsi þar sem hann sat inni fyrir kynferðisglæp og inn á geðsjúkrahús í staðinn. McMurphy er hress, blátt áfram og blygðunarlaus töffari, semsagt allt sem hinir vistmennirnir eru ekki. Koma hans hleypir lífinu á deildinni í uppnám og endar á að frelsa mennina undan yfirráðum Ratched hjúkrunarkonu og eigin veikleikum.
Wisława Szymborska látin
Köttur í tómri íbúðDeyja — það er ekki hægt að gera ketti.
Eða hvað ætti köttur að gera
í tómri íbúðinni.
Klifra upp veggina?
Nudda sér upp að húsgögnunum?
Ekkert virðist breytt
en ekkert er þó eins og það var.
Ekkert hefur hreyfst úr stað
en samt er meira pláss.
Og á kvöldin er ekki kveikt á neinum lampa.
Það heyrist fótatak í stiganum,
en ekki það rétta.
Höndin sem leggur fisk í skálina
er líka önnur.
Eitthvað byrjar ekki
á venjulegum tíma.
Eitthvað gerist ekki
eins og það ætti.
Einhver var alltaf, alltaf hérna
síðan skyndilega horfinn
og þrjóskast við að vera horfinn.
Hver skápur hefur verið rannsakaður.
Hver einasta hilla könnuð.
Til einskis að grafa sig undir teppið.
Búið að gera það sem er bannað,
pappírum rótað út um allt.
Hvað er hægt að gera fleira?
Sofa og bíða.
Bíða bara uns hann kemur
bara láta hann sýna sig.
Þá skal hann vita að svona
kemur maður ekki fram við kött.
Mjakast í áttina til hans
með sýnilegum óvilja
og ákaflega hægt
á móðguðum loppum
og ekki stökkva eða væla til að byrja með.
Faðir og dóttir
![]() |
| Richard og Ianthe Brautigan |
Á dögunum las ég bók sem í einhverjum skilningi er löng minningagrein. Það er dóttir sem minnist föður síns sem stytti sér aldur árið 1984 en hann var einn fremsti rithöfundur Bandaríkjanna á tuttugustu öld, Richard Brautigan. Ég hef sjálf haldið upp á hann síðan ég keypti fyrir löngu Vatnsmelónusykur í þýðingu Gyrðis Elíassonar á bókamarkaði í Perlunni. Þetta var einhverntíma um miðbik Clinton tímans og ég man að bókin kostaði heilar 480 krónur. Mögulega eru þetta bestu kaup sem ég hef gert á ævinni. Eintakið fylgdi mér árum saman - ég flatmagaði með það á strönd við Adríahafið og í íslenskum fjallakofa. Ég veit reyndar ekkert hvar það er í dag, líklega í góðri geymslu.
Ianthe Brautigan var 24 ára gömul þegar faðir hennar skaut sig í höfuðið á heimili sínu í hippabænum Bolinas í Kaliforníu. Það liðu nokkrar vikur áður en líkið uppgötvaðist og sagan segir að hann hafi skilið eftir miða sem á stóð "Messy, isn't it?" Eðlilega hafði dauði Brautigans mikil áhrif á dóttur hans og hún upplifði mikla sjálfsásökun og höfnun. Það var líka sársaukafullt fyrir hana að fylgjast með því hvernig blaðamenn túlkuðu ævi rithöfundarins og persónu hans. Hún þekkti ekki þennan mann sem minnst var í öllum helstu fjölmiðlum. Ianthe fór í sálfræðimeðferð ári síðar, þá hafði hún sjálf eignast dóttur og vildi síst af öllu verða bitra mamman sem horfðist aldrei í augu við fortíðina. Þá byrjaði hún að skrifa og afraksturinn er bókin You Can't Catch Death. A Daughter's Memoir.
30. janúar 2012
Að ala niður börn
„Margir smábarnaforeldrar (þar á meðal ég og eiginkona mín) höfum áhuga á uppeldisaðferðum Önnu Wahlgren. Ein spurning sem mig myndi langa að fá svar við er hvernig hennar eigin börnum hefur vegnað? Hún á níu stykki ef mig misminnir ekki. Urðu þau öll að sjálfstæðum, andlega heilbrigðum einstaklingum eða hafa þau borið einhvern skaða af aðferðum móður sinnar?“Þannig spyr ónefndur sænskur faðir í hversdagslegu netspjalli í byrjun ársins 2010. Nú tveimur árum síðar hefur hann væntanlega fengið svörin sem hann óskaði eftir. Fyrir örfáum vikum kom nefnilega út bókin Felicia försvann sem eru minningar Feliciu Feldt, fullorðinnar dóttur umræddrar Önnu Wahlgren. Og dóttirin segir sínar farir ekki sléttar.
En áður en við rýnum í þá bók er rétt að bakka nokkur skref og gera grein fyrir Önnu þessari Wahlgren. Anna Wahlgren gaf út Barnaboken árið 1983, doðrant með undirtitilinn „umönnun og uppeldi barna frá 0-16 ára.“ Í bókinni setur hún fram kenningar sem hafa verið umdeildar allar götur síðan, sumir fullyrða að þær hafi bjargað lífi þeirra á þessum fyrstu erfiðu árum í foreldrahlutverkinu (þeirra á meðal er Camilla Läckberg sem lofaði aðferðir Önnu til að mynda í hástert í Steinsmiðnum), aðrir fussa og sveia. Í seinni tíð hefur Anna Wahlgren einbeitt sér að svefnvandamálum og gefið út bók um aðferðir til að fá börn til að sofa sjálf alla nóttina. Þau ráð hafa verið jafnumdeild og annað úr hennar ranni og hefur hún meðal annars verið harðlega gagnrýnd fyrir að fyrirskipa að öll börn eigi að sofa á maganum – nokkuð sem almennt hefur verið mælt gegn frá því í upphafi tíunda áratugarins þegar rannsóknir sýndu að koma mætti í veg fyrir stórt hlutfall vöggudauða með því að láta ungabörn sofa á bakinu. Gagnrýnendum Önnu Wahlgren þykja uppeldisaðferðir hennar stífar og telja þær frekar miðast að því að skapa foreldrunum rými en að hugsa um velferð barnsins. Þetta þykjast margir líka hafa lesið út úr sjálfsævisögu hennar í þremur hlutum, Mommo, sem kom út 1995-1997 þar sem hún ku greina frá bæði frjálslegum ástarmálum sínum og skemmtanalífi. Sjálf myndi Anna Wahlgren væntanlega frekar lýsa kenningum sínum á þann hátt að þær miði að því að móta sterka einstaklinga úr börnunum, leyfa þeim að taka ábyrgð en fría þau frá samviskubiti og skapa samband milli barna og foreldra sem einkennist af heilindum. Og einhvern veginn þannig er sú ímynd sem hún hefur gefið af sér og börnunum sínum átta (hún missti einn son ungan að árum), að þau hafi verið einn stór, samheldinn og hamingjusamur hópur þar sem allir hjálpuðust að við heimilishaldið og hver studdi annan. Þeirri mynd var víst líka haldið á lofti af fjölmiðlum í kringum útgáfu Barnaboken. Allt þangað til nú þegar þriðja barnið, Felicia, stígur fram og segir sögu sína.
28. janúar 2012
Hættuleg ástarsambönd og öruggar tilfinningasveiflur
![]() |
| Sleikur á bókarkápu. |
Fyrir um það bil ári síðan las ég Les Liaisons dangereuses eftir Pierre Choderlos de Laclos, en hún kom út árið 1782. Skáldsagan er í bréfaformi og meginviðfangsefni bréfanna eru mál sem tengjast tilfinningum og kynlífi. Söguþráðurinn er í raun of flókinn til að það borgi sig að reyna að gera honum almennilega skil hér. Sagan er þó að miklu leyti drifin áfram af persónunum Marquise de Merteuil og vini hennar Vicomte de Valmont, en þau eru bæði mjög upptekin af því að vinna kynferðislega „sigra“ og monta sig svo af því hvort við annað í bréfum sín á milli. Þau keppast um það að stjórna fólki og hafa því mikil áhrif á líf hinna persónanna án þess að þær átti sig á því. Bréfin sem fara milli sögupersóna eru afar persónuleg, en þar sem þær lifa flestar virku og spennandi ástarlífi, verða bréfin gjarnan að játningum á öllu sem snertir kynlíf þeirra – tilfinningum, athöfnum, hugsunum og þrám. Því mætti segja að nautnin sem persónur upplifa felist í rauninni fremur í því að tala um eða játa gjörðir, heldur en í gjörðunum sjálfum. (En er samfélag okkar ekki að mörgu leyti þannig? Endalausar lífsreynslusögur og persónulegar játningar út um allt?)
27. janúar 2012
Óspennandi ævisaga og heimspeki fyrir byrjendur
Þær bækur sem ég hef lesið í janúar (ýmist að hluta eða í heild) eiga það sameiginlegt að vera ekki skáldverk. Í það minnsta ekki strangt til tekið, því auðvitað taka höfundar sér ýmis skáldaleyfi svo lengi sem ekki er um hreinan fræðitexta að ræða, og engin umræddra bóka fellur svosem í þann flokk heldur. (Á þeim nótum liggur beint við að vísa á áhugaverð skoðanaskipti Guðrúnar Jónsdóttur og Páls Valssonar á síðum Fréttablaðsins í liðinni viku, um nýjustu skáldsögu Hallgríms Helgasonar og mörk ævisagnaritunar og skáldskapar.)
Þótt ég hafi ekki lesið margar ævisögur um dagana hef ég rekist á þó nokkrar skemmtilegar, til dæmis í bókmenntafræðinámskeiði í HÍ um árið þar sem fókusinn var á sjálfsævisögum innflytjenda og við lásum m.a. ævisögur Edwards Said og Vladimirs Nabokov. Svo fannst mér Strange Fascination, ævisaga Davids Bowie eftir David Buckley, vera æðisleg og ekki bara afþví ég er Bowie-nött heldur er hún virkilega vel unnin og skemmtileg.
Sumarið 2005 gaf vinkona mín mér ævisögu Kate Bush í afmælisgjöf; bók sem þá var nýútkomin, skrásett af Rob Jovanovic og heitir einfaldlega Kate Bush: The Biography. Ég er mikill aðdáandi tónlistar Kate Bush, finnst hún spennandi karakter og hlakkaði til að lesa ævisöguna við tækifæri. Síðan hefur bókin fylgt mér til Kaupmannahafnar, á Seyðisfjörð og nú síðast til Finnlands, ávallt með millilendingu í Reykjavík og hefur þjónað hlutverki einskonar öryggisbita í bókahillunni: ég átti þó alltaf eitthvað spennandi ólesið.

26. janúar 2012
Fantagóðar fantasíur
Ursula K. Le Guin
© Marian Wood Kolisch |
25. janúar 2012
Íslensku bókmenntaverðlaunin 2011

Rétt í þessu var tilkynnt á Bessastöðum hvaða bækur hlytu Íslensku bókmenntaverðlaunin 2011. Í flokki fagurbókmennta hlaut Guðrún Eva Mínervudóttir verðlaunin fyrir skáldsögu sína Allt með kossi vekur en í flokki fræðibóka og bóka almenns efnis varð Páll Björnsson hlutskarpastur fyrir bók sína um Jón Sigurðsson, Jón forseti allur? Táknmyndir þjóðhetju frá andláti til samtíðar, en um báðar þessar bækur hefur verið fjallað á síðunni. Druslubókadömur óska Guðrúnu Evu og Páli hjartanlega til hamingju með verðlaunin!
24. janúar 2012
You're born naked and the rest is drag
Einn ískaldan morgun fyrir skömmu staulaðist ég niður í Tryggvagötu og húkti fyrir utan dyrnar þegar Borgarbókasafnið opnaði. Erindið var að fá lánaða bókina Suits Me, The Double Life of Billy Tipton eftir Diane Wood Middlebrook. Bókin, sem hefst á tilvitnun í dragdrottninguna RuPaul og er yfirskriftin hér að ofan, fjallar um kvenkyns djassistann Dorothy Tipton sem fæddist í Bandaríkjunum1914, en tók sér nafnið Billy og lifði frá 19 ára aldri sem karlmaður. Þegar Billy lést, árið 1989, opinberaðist leyndarmál sem fáir höfðu nokkurn grun um, sjúkraflutningamaður sem var kallaður í móbílhómið þar sem Billy bjó spurði soninn hvort faðirinn hefði farið í kynskiptiaðgerð, sonurinn William kom alveg af fjöllum en það var ekki um að villast, þegar fötunum var flett utan af Billy til að athuga hjartsláttinn, að þarna var kona eða svo vitnað sé í soninn: "I was in awe. I had no thoughts - just looked up at the sky, thinking it was some hallucination from drugs. If my father had lived as a woman, she would have had big breasts."
Nostalgía á Súfistanum
Bókakaffi IBBY verður haldið á Súfistanum, Bókabúð Máls og menningar við Laugaveg, fimmtudagskvöldið 26. janúar kl. 20. Viðfangsefnið að þessu sinni er nostalgía. Um öxl líta eftirtaldir barnabókavinir: * Salka Guðmundsdóttir, þýðandi og leikskáld: Þegar ég vaknaði í Erilborg
* Sölvi Björn Sigurðsson, rithöfundur: Ævintýrakafbáturinn, Vaknað í Nangilima
* Jónína Leósdóttir, rithöfundur: Aldinmauk og límonaði
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
23. janúar 2012
Þegar sál mín þreytist, leggst hún til hvíldar á rósarblaði....
Druslubókadömur halda ekki aðeins úti bókabloggi, þær hittast stundum í raunheimnum og skömmu fyrir jól var skellt í jólaglögg. Allar áttu að mæta með eina innpakkaða hallærislúðasnilldarskringibók og síðan var skiptst á gjöfum. Ákveðið var að hver ætti svo að blogga um sína gjöf en eitthvað hefur verið lítið um efndir, ég ætla því að brjóta ísinn og ríða á vaðið.Ég fékk undurfagra bók, gefna út í Svíþjóð, eftir Björn Ranelid sem ég hafði aldrei heyrt um og ákvað því að byrja á því að kynna mér manninn. Í fyrsta lagi kom í ljós að við eigum sama afmælisdag, Björn Ranelid er nákvæmlega 20 árum eldri en ég. Þetta getur varla verið tilviljun. Í ljós kemur einnig að Ranelid þótti efnilegur knattspyrnumaður á sínum yngri árum en ákvað frekar að gerast gríðarlega afkastamikill á ritvellinum, hann hefur sent frá sér 20 skáldsögur síðan hann byrjaði að skrifa árið 1983 og skrifað mörg hunduð blaðagreinar og er samkvæmt heimildum mikið fyrir að halda ræður við ýmis tilefni. Eitthvað virðist vera varið í skáldskapinn, hann hefur að minnsta kosti fengið ýmsar viðurkenningar á þeim vettvangi, meðal annars August priset fyrir skáldsöguna Synden árið 1994.
En í umfjöllunum um hann er líka iðulega tekið fram að hann sé býsna umdeildur. Hann er afar kristinn og víst fullur efasemda þegar kemur að þróunarkenningunni. Hann þykir líka hafa mjög svo sérstakan og afgerandi stíl í skrifum sínum, talað er um “det ranelidska språket”, þ.e. að hann hafi í raun búið til sitt eigið tungumál. Sjálfur virðist hann vera meðvitaður um þetta og lýsir eigin tungumáli einhvern veginn á þá leið að það sé afar ljóðrænt og hlaðið myndhverfingum, ég er engu nær og þið eflaust ekki heldur enda gæti lýsingin átt við meiri hluta skáldskapar, svona almennt séð. En sumsé, stíllinn er víst auðþekkjanlegur.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)