Fyrstan skal telja doðrantinn The Line of Beauty eftir Alan Hollinghurst, sem ég tók með mér einmitt vegna þess að bókin er upp á fimmhundruð síður og var þar af leiðandi líkleg til að endast dágóða hríð. Fyrir bókina hlaut Hollinghurst Booker-verðlaunin árið 2004 og henni hefur verið haldið á lofti sem einni merkustu ensku skáldsögunni frá aldamótum. Í myndaleit fyrir þessa bloggfærslu komst ég að því að árið 2006 var gerð þáttaröð á BBC eftir bókinni, sem hljómar dálítið undarlega þar eð styrkur skáldsögunnar liggur í tungumálinu og því hvernig höfundurinn sýnir okkur inn í sálarlíf Nicks Guest, en Nick er aðalpersónan og sjónarhornið bundið við hann. Mig langar að sjá þessa þáttaröð til þess aðallega að komast að því hvernig unnið var með þetta allt saman og hvort það gengur upp í sjónvarpsformi. Skáldsagan segir frá stuttu tímabili á sitt hverju árinu; fyrsti kaflinn heitir "The Love-Chord" og gerist árið 1983 skömmu eftir gríðarlegan kosningasigur breska íhaldsflokksins, "To Whom Do You Beautifully Belong?" gerist þremur árum síðar og lokakaflinn "The End of the Street" árið 1987 skömmu fyrir þingkosningar. Þegar sagan hefst er Nick tiltölulega nýorðinn gestur á heimili Fedden-fjölskyldunnar í Notting Hill-hverfinu í London. Hann hefur nýlokið námi við Oxford-háskóla ásamt dáðadrengnum Toby Fedden sem kemur úr virtri íhaldsfjölskyldu; faðirinn Gerald er þingmaður íhaldsflokksins og harður stuðningsmaður forsætisráðherrans Margaret Thatcher. Á heimilinu eru einnig Rachel Fedden, kona Geralds, sem er af gamalgróinni enskri lávarðaætt, og dóttirin Catherine sem hefur átt við geðræna erfiðleika að stríða og prófar sig áfram með ýmiss konar uppreisnir við almennt áhugaleysi foreldranna. Nick er sjálfur úr miðstéttarfjölskyldu - faðir hans er antíksali sem hefur unnið mikið fyrir efristéttarfólk - og er þannig utanaðkomandi í þessu samfélagi forréttindafólks, ríkidæmis og valds. Eftirnafnið Guest vísar greinilega til stöðu hans í Thatcher-kreðsunum á 9. áratugnum. Það er þó ekki aðeins uppruninn sem gerir það að verkum að Nick er utanveltu heldur er hann einnig samkynhneigður og er þegar sagan hefst hálfvegis kominn út úr skápnum, svona eins og í boði var árið 1983 í Bretlandi, einungis 15 árum eftir að afnumin voru lög sem gerðu kynlíf samkynhneigðra refsivert.
Sýnir færslur með efnisorðinu stjórnmál. Sýna allar færslur

7. apríl 2013
Í leit að fegurð - The Line of Beauty eftir Hollinghurst
Á dögunum fór ég í langferð, í tvennum skilningi, fór bæði langt og dvaldist þar lengi. Í svoleiðis ferðum gefst manni gjarnan góður tími til að lesa og mér tókst að sporðrenna heilum níu bókum á meðan á ferðalaginu stóð. Bækurnar reyndust flestar góðir ferðafélagar og fyrir konu sem hefur vanrækt blogg þetta í ógurlega langan tíma er ekki úr vegi að dúndra inn færslum um nokkrar vel valdar.
Fyrstan skal telja doðrantinn The Line of Beauty eftir Alan Hollinghurst, sem ég tók með mér einmitt vegna þess að bókin er upp á fimmhundruð síður og var þar af leiðandi líkleg til að endast dágóða hríð. Fyrir bókina hlaut Hollinghurst Booker-verðlaunin árið 2004 og henni hefur verið haldið á lofti sem einni merkustu ensku skáldsögunni frá aldamótum. Í myndaleit fyrir þessa bloggfærslu komst ég að því að árið 2006 var gerð þáttaröð á BBC eftir bókinni, sem hljómar dálítið undarlega þar eð styrkur skáldsögunnar liggur í tungumálinu og því hvernig höfundurinn sýnir okkur inn í sálarlíf Nicks Guest, en Nick er aðalpersónan og sjónarhornið bundið við hann. Mig langar að sjá þessa þáttaröð til þess aðallega að komast að því hvernig unnið var með þetta allt saman og hvort það gengur upp í sjónvarpsformi. Skáldsagan segir frá stuttu tímabili á sitt hverju árinu; fyrsti kaflinn heitir "The Love-Chord" og gerist árið 1983 skömmu eftir gríðarlegan kosningasigur breska íhaldsflokksins, "To Whom Do You Beautifully Belong?" gerist þremur árum síðar og lokakaflinn "The End of the Street" árið 1987 skömmu fyrir þingkosningar. Þegar sagan hefst er Nick tiltölulega nýorðinn gestur á heimili Fedden-fjölskyldunnar í Notting Hill-hverfinu í London. Hann hefur nýlokið námi við Oxford-háskóla ásamt dáðadrengnum Toby Fedden sem kemur úr virtri íhaldsfjölskyldu; faðirinn Gerald er þingmaður íhaldsflokksins og harður stuðningsmaður forsætisráðherrans Margaret Thatcher. Á heimilinu eru einnig Rachel Fedden, kona Geralds, sem er af gamalgróinni enskri lávarðaætt, og dóttirin Catherine sem hefur átt við geðræna erfiðleika að stríða og prófar sig áfram með ýmiss konar uppreisnir við almennt áhugaleysi foreldranna. Nick er sjálfur úr miðstéttarfjölskyldu - faðir hans er antíksali sem hefur unnið mikið fyrir efristéttarfólk - og er þannig utanaðkomandi í þessu samfélagi forréttindafólks, ríkidæmis og valds. Eftirnafnið Guest vísar greinilega til stöðu hans í Thatcher-kreðsunum á 9. áratugnum. Það er þó ekki aðeins uppruninn sem gerir það að verkum að Nick er utanveltu heldur er hann einnig samkynhneigður og er þegar sagan hefst hálfvegis kominn út úr skápnum, svona eins og í boði var árið 1983 í Bretlandi, einungis 15 árum eftir að afnumin voru lög sem gerðu kynlíf samkynhneigðra refsivert.
Fyrstan skal telja doðrantinn The Line of Beauty eftir Alan Hollinghurst, sem ég tók með mér einmitt vegna þess að bókin er upp á fimmhundruð síður og var þar af leiðandi líkleg til að endast dágóða hríð. Fyrir bókina hlaut Hollinghurst Booker-verðlaunin árið 2004 og henni hefur verið haldið á lofti sem einni merkustu ensku skáldsögunni frá aldamótum. Í myndaleit fyrir þessa bloggfærslu komst ég að því að árið 2006 var gerð þáttaröð á BBC eftir bókinni, sem hljómar dálítið undarlega þar eð styrkur skáldsögunnar liggur í tungumálinu og því hvernig höfundurinn sýnir okkur inn í sálarlíf Nicks Guest, en Nick er aðalpersónan og sjónarhornið bundið við hann. Mig langar að sjá þessa þáttaröð til þess aðallega að komast að því hvernig unnið var með þetta allt saman og hvort það gengur upp í sjónvarpsformi. Skáldsagan segir frá stuttu tímabili á sitt hverju árinu; fyrsti kaflinn heitir "The Love-Chord" og gerist árið 1983 skömmu eftir gríðarlegan kosningasigur breska íhaldsflokksins, "To Whom Do You Beautifully Belong?" gerist þremur árum síðar og lokakaflinn "The End of the Street" árið 1987 skömmu fyrir þingkosningar. Þegar sagan hefst er Nick tiltölulega nýorðinn gestur á heimili Fedden-fjölskyldunnar í Notting Hill-hverfinu í London. Hann hefur nýlokið námi við Oxford-háskóla ásamt dáðadrengnum Toby Fedden sem kemur úr virtri íhaldsfjölskyldu; faðirinn Gerald er þingmaður íhaldsflokksins og harður stuðningsmaður forsætisráðherrans Margaret Thatcher. Á heimilinu eru einnig Rachel Fedden, kona Geralds, sem er af gamalgróinni enskri lávarðaætt, og dóttirin Catherine sem hefur átt við geðræna erfiðleika að stríða og prófar sig áfram með ýmiss konar uppreisnir við almennt áhugaleysi foreldranna. Nick er sjálfur úr miðstéttarfjölskyldu - faðir hans er antíksali sem hefur unnið mikið fyrir efristéttarfólk - og er þannig utanaðkomandi í þessu samfélagi forréttindafólks, ríkidæmis og valds. Eftirnafnið Guest vísar greinilega til stöðu hans í Thatcher-kreðsunum á 9. áratugnum. Það er þó ekki aðeins uppruninn sem gerir það að verkum að Nick er utanveltu heldur er hann einnig samkynhneigður og er þegar sagan hefst hálfvegis kominn út úr skápnum, svona eins og í boði var árið 1983 í Bretlandi, einungis 15 árum eftir að afnumin voru lög sem gerðu kynlíf samkynhneigðra refsivert.10. febrúar 2013
Æviminningar Johnny the singer of Running Nose
Borgarstjóri vor er fjölhæfur maður. Ég er af Fóstbræðrakynslóðinni og vissi lengi engan fyndnari mann á Íslandi en Jón Gnarr. Hann hefur líka átt sín góðu móment sem borgarstjóri og þorað að brjóta ýmsar óskrifaðar og ömurlegar reglur. Nýjasta bókin hans, Sjóræninginn, fjallar ekki síst um reglur kerfisins og hvað þýðingu og afleiðingar það hefur að hlýða þeim og brjóta þær.
Sjóræninginn er sjálfstætt framhald af fyrri bók Jóns, Indjánanum (sem Þorgerður fjallaði um fyrir Bókmenntir.is á sínum tíma), og virðist reyndar sjálfstæðari gagnvart bókinni sem á undan kom en þeirri sem hlýtur að koma á eftir því endirinn er merkilega snubbóttur og er meira eins og kaflalok en bókarlok. Bækurnar eru sjálfsævisögulegar (koma nokkrar sjálfsævisögur út lengur sem ekki eru kallaðar skáldævisögur?) og Sjóræninginn hefst þar sem Indjáninn endar, þegar söguhetjan Jón er tólf ára gamall, og lýkur nokkru eftir að hann fermist.
Unglingurinn Jón á ekki sjö dagana sæla. Hann er utangarðs í skólanum, rekst illa í kerfinu og er hrakinn og smáður af bæði kennurunum og samnemendum sínum. Hann er lagður í einelti, er feiminn og hefur lítið sjálfstraust. Hann nær litlum tengslum við foreldra sína, einkum föður sinn, en þau voru orðin gömul þegar þau áttu hann og það er mikill aldursmunur á honum og systkinum hans. Jón finnur hins vegar félagslegan og hugmyndafræðilegan griðastað í pönkinu og anarkismanum, eignast þar vini og grundvöll fyrir andófi sínu gegn kerfinu. Hann syngur meðal annars um tíma með pönkhljómsveitinni Nefrennsli, án þess reyndar að hafa kjark til að koma fram oftar en einu sinni, en þá fyllist hann slíkri örvæntingu að hann lætur sig detta niður af sviðinu til að þurfa ekki að standa þar lengur.
Lýsingarnar á því hvernig Jón prófar sig áfram sem pönkari og anarkisti eru hlýlega fyndnar (hann er mikill harðlínumaður í skilgreiningu sinni á pönki og úthýsir smám saman nokkurn veginn öllum hljómsveitum úr þeim flokki nema Crass), en það er einn af kostum bókarinnar að frásögnin er alltaf á forsendum hans sjálfs; upprifjun hins fullorðna höfundar á hugmyndaheimi unglingsins er stuðningsyfirlýsing, ekki föðurleg kímni eða yfirlætislegar athugasemdir undir formerkjum aukins vitsmunalegs þroska. Það er kerfið sem er mannfjandsamlegt, ekki Jón sem er gallaður. Það er annars athyglisvert hvað fólk virðist vera miklu tilbúnara til að ræða eineltið sem skólafélagar Jóns beita hann en þá kúgun sem hann upplifir af hálfu skólakerfisins sjálfs, en hún er í rauninni mun miðlægari í bókinni.

30. júlí 2012
Málpípa nýlenduherranna
Í Júllabúð í Hrísey er skiptibókahilla. Í hana má setja bækur sem maður vill losna við og taka jafnmargar í staðinn. Ég kom þangað fyrir hálfum mánuði eða svo og þá kenndi þar ýmissa grasa. Þar voru meðal annars bækur eftir Jennu og Hreiðar, James Patterson, Mikhail Bulgakov, Milan Kundera, Khaled Hosseini, Guðmund Andra Thorsson, Doris Lessing, Stieg Larsson, Charles Dickens, Jackie Collins, feðgana Ólaf Jóhann, Ken Follett, Johann Goethe, Franz Kafka, Einar Má Guðmundsson, P.D. James, Knut Hamsun, Desmond Bagley, Einar Kárason, Dan Brown og Mary Higgins Clark. Einnig var þarna bókin Hlauptu drengur hlauptu, sem ég man til að var mikið auglýst á tímabili þegar ég var barn, að minnsta kosti ein bók um Möttu Maju og ferðabók um Ísland. Og svo voru nokkrar forláta ástarsögukiljur, til dæmis Þríburar kúrekans.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)