Þegar ég var í framhaldsskóla fannst mér fátt leiðinlegra en saga. Mér fannst hún bara snúast um landamæradeilur og hanaslagi einhverra karla sem komu mér ekkert við; mér var eiginlega bara slétt sama hver hefði verið kóngur hvar og hvenær. Í fyrsta söguáfanganum mínum í MH lenti ég á kennara sem var fremur daufur og líflaus í framkomu, eins og hann væri ein af blaðsíðunum í kennslubókinni, og af því dró ég þá ályktun að sögukennarar væru vita gagnslaus fyrirbæri, sem og mæting í sögutíma. Ég tók því afganginn af framhaldsskólasögunni utanskóla og nám mitt í þeim þremur áföngum fól þá í sér að ég skrifaði tvær ritgerðir, aðra um uppkastið að sambandslögunum frá 1908 og hina um rússnesku byltinguna, og lestur undir lokapróf hvers áfanga, sem fram fór á síðustu stundu.
Ritgerðarefnið um Uppkastið var (kannski augljóslega) ekki eftir mínu höfði. Sem nemandi í svokölluðum P-áfanga (það hét svo þegar nemandi tók stök námskeið utanskóla) átti ég að hafa samband við umsjónarkennara viðkomandi námskeiðs, sem í þessu tilviki var maður sem þótt ekki skapgóður og ég var skíthrædd við hann og frestaði því að hafa samband við hann eins lengi og ég gat. Þegar ég kom loksins á fund hans mældi hann mig út og sagði geðvonskulega: „Af hverju talaðirðu ekki við mig fyrr?“ Ég stamaði einhverju upp úr mér og hann sagði þá, með sama fýlutóninum og áður: „Þú átt að skrifa ritgerð. Hún á að fjalla um Uppkastið.“ Svo skrifaði hann eitthvað á blað og rétti mér: „Þetta eru heimildirnar sem þú átt að nota.“ Ég er sannfærð um að hann hefur gagnvert valið það ritgerðarefni sem hann hefur talið ólíklegast að feimnisleg 17 ára stelpa gæti mögulega haft áhuga á. Ritgerðina skrifaði ég samviskusamlega og fékk held ég bara sómasamlega einkunn fyrir, en ekki get ég sagt að ég myndi þekkja þetta verk mitt aftur ef það ræki óvænt á fjörur mínar. Ritgerðarefnið um rússnesku byltinguna fékk ég að velja sjálf, hjá öðrum kennara síðar, og líklega fékk ég heldur meira út úr þeim skrifum. Sú ritgerð hefur sennilega verið sú fyrsta sem ég skrifaði á tölvu (svona er ég nú orðin gömul) og ég man að ég vandaði mig mikið við að búa til flotta forsíðu á hana. Af námsefninu sem ég las til prófs man ég sama og ekkert.
Sýnir færslur með efnisorðinu heimspeki. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu heimspeki. Sýna allar færslur
13. október 2012
29. september 2012
Leiðsagnarlaust inn að fjórða hring Helvítis
Við fengum þennan gestapistil sendan frá Arngrími Vídalín, doktorsnema í miðaldabókmenntum og sérlegum áhugamanni um skrímsli.
Fyrir margar sakir er áhugavert að greina vörulista IKEA, og ekki síst núna því vörulistinn 2013 er um margt frábrugðinn þeim fyrri. Vanalega hefst listinn til að mynda á eins konar ávarpi verslunarstjóra til hins innbyggða lesanda bæklingsins; hér áður fyrr var jafnan heilskrokksmynd í lit af forstjóra sem annars var svarthvítur og brosti aldrei, en á seinni árum hefur siðurinn verið svarthvít ofanmittismynd af kankvísum verslunarstjóra með hönd undir höku eða krosslagða handleggi; ætíð var nafn þeirra ritað skrifstöfum undir myndinni og lesandinn gat skemmt sér við að geta sér þess til hvort undirskriftin hafi verið mannsins sjálfs eða markaðsdeildarinnar. En nú bregður öðruvísi við: í nýja bæklingnum er ekkert andlit fyrirtækisins fremst, engin vinaleg kveðja til væntanlegra viðskiptavina verslunarinnar, og raunar er hvergi minnst á neina verslun fyrr en í lok bæklingsins. Þess í stað er lesandinn boðinn „VELKOMIN/N Í NÝJA VERÖLD HUGMYNDA,“ og því bætt við að „við viljum gefa þér meira en áður.“ (bls. 3) Lesandinn fyllist hér strax nokkurri óvissu um hvaða ferðalag hann eigi í vændum þar sem ekki er fyllilega ljóst hver „við“ eru né hvort veröld bæklingsins eigi sér raunverulega hliðstæðu í verslun – sú ráðgáta er sem fyrr segir ekki leyst fyrr en í lok verksins og deilir bæklingurinn því að vissu leyti þematískri uppbyggingu með spennusögu. Þetta getur valdið nokkrum óhug hjá óreyndum lesanda, og þessi „nýja veröld“ sem svo er ekkert útskýrð vekur upp hugrenningatengsl við aðvörunina á hliði Vítis í kviðum Dantes: Lasciate ogne speranza, voi ch'entrate – látið af allri von, þið sem gangið hér inn (Dante, bls. 36). Enda kemur fljótt á daginn að ekki er allt sem sýnist í Hugmyndaveröld IKEA.
3. maí 2012
Af leslistanum langa
![]() |
| Garnsafnið mitt er reyndar ekkert miðað við þetta. Sjá hér. |
Samviskubit eða óþreyja vegna ólesinna bóka virðist hrjá flesta þá sem áhuga hafa á bókum. Sólarhringurinn er hreinlega ekki nógu langur til að hægt sé að komast yfir að lesa allt sem skemmtilegt og/eða gagnlegt og/eða forvitnilegt væri að lesa og mörgum hættir til að vera helst til bjartsýnir í að áætla lestrartíma sinn fram í tímann og útvega sér mun fleiri bækur en þeir komast svo yfir að lesa. Stundum hef ég heyrt fólk segja að það sé eitthvað svindlkennt við að vera með ólesnar bækur uppi í hillu því þá gefi maður í skyn að maður hafi lesið ýmislegt sem maður hefur svo bara ekkert lesið. Ég vil meina að þeir sem halda þessu fram geti varla verið mikið bókaáhugafólk. Þegar ég sé vel búnar bókahillur hvarflar ekki að mér eitt augnablik að eigandinn hafi lesið allar bækurnar. Áður fyrr þegar fólk eignaðist fáar bækur kann það að hafa átt við að það læsi allar bækurnar sínar og mig minnir reyndar að ég hafi lesið flestar bækurnar mínar þegar ég var barn.
Sem sagt tel ég það ljóst að ég mun aldrei lesa allar bækurnar mínar, hvað þá allar hinar bækurnar sem mig langar að lesa sem ég hef látið vera að reyna að eignast vegna þess að þær eru auðfengnar á bókasöfnum. Samt finnst mér alltaf spennandi að eignast nýjar bækur; nýrri bók fylgja einhver fyrirheit og spenna. Í gær sótti ég tvær á pósthúsið sem ég hafði pantað og á reyndar von á fleirum. Önnur heitir New Waves in Metaphysics og ég er reyndar þegar byrjuð á henni og búin að lesa eina grein. Hin heitir Out from the Shadows. Analytical Feminist Contributions to Traditional Philosophy. Núna á næstunni þarf ég líka að endurlesa eða rýna betur í bækur sem ég hef þegar lesið auk þess sem ég þarf að líta á sem ég á eftir að lesa. Og svo reyni ég að laumast í það sem ég les mér til ánægju. Reyndar á þetta tvennt til að renna saman; margt af því sem ég les fellur (sem betur fer) bæði í flokk þess sem ég les vegna vinnu og þess sem ég les mér til ánægju en svo er sumt sem fellur bara í annan flokkinn. Meðal þeirra bóka sem eru í lesstaflanum um þessar mundir má nefna (auk þessara tveggja nýju) After Finitude, Making the Social World, Sexual Solipsism, Primary and Secondary Qualities, Truth Matters, The Grand Design og The Dispossessed. Já, ég geri mér grein fyrir því að þetta er allt á ensku og bara ein skáldsaga í bunkanum. Best að ég reyni að bæta úr því og nái mér í einhverja af ólesnu íslensku skáldsögunum sem eru til í hillunum hjá mér.
2. apríl 2012
Langdregið Nafn rósarinnar
Nýverið lauk ég við The Name of the Rose eftir Umberto Eco – ég tek fram að ég hafi lokið við hana þar sem það var nú eiginlega tvísýnt um það á tímabili. Bókin er um 500 síður sem er í sjálfu sér ekki í frásögu færandi og ég hef lesið margar mun lengri EN ég hef ekki lesið svona langa og langdregna bók síðan ég byrjaði í fæðingarorlofi og það verður að viðurkennast að það er ekki alveg jafn mikill tími fyrir yndislestur þessa dagana. Þess þá heldur er lesefnið valið af mikilli kostgæfni og mætti segja að margir væru til kallaðir en fáir útvaldir. ![]() |
| Connery og Slater með feitum, látnum bróður |
![]() |
| Ron Perlman hefur sérhæft sig í að leika afkáralega menn, oft með gervinef |
24. febrúar 2012
Af yfirburðum hins góða: Tvær bækur eftir Iris Murdoch
Breski rithöfundurinn og heimspekingurinn Iris Murdoch lifði megnið af 20. öldinni, frá 1919 til '99. Eftir hana liggja fjölmargar bækur, bæði skáldsögur og heimspekirit. Ég las nokkrar af skáldsögunum í menntaskóla og varð hrifin af þeim, þótt ég einhverra hluta vegna bæri mig ekki eftir fleirum af verkum hennar þá. Ég minntist á Murdoch í færslu hér á blogginu fyrir nokkrum vikum þegar ég var nýbyrjuð á heimspekiritgerðasafninu The Sovereignty of Good, sem upphaflega kom út 1970, og hef í millitíðinni lokið við hana auk sjöttu skáldsögu Murdoch, An Unofficial Rose (1962).
The Sovereignty of Good er nett bók, 101 síða í kilju og inniheldur þrjár ritgerðir: „The Idea of Perfection“, „On ‘God’ and ‘Good’“ og „The Sovereignty of Good Over Other Concepts“. Í káputexta er henni lýst sem „one of the very few modern books on philosophy which people outside academic philosophy find really helpful“. Murdoch á það einmitt til að ræða meðvitað um heimspekiiðkun á þá leið að varpar ljósi á hana á ofureinfaldan hátt, án þess þó að einfalda hana um of ‒ samanber t.d. eftirfarandi tilvitnun: „Philosophers merely do explicitly and systematically and often with art what the ordinary person does by instinct.“ (s. 91)
The Sovereignty of Good er nett bók, 101 síða í kilju og inniheldur þrjár ritgerðir: „The Idea of Perfection“, „On ‘God’ and ‘Good’“ og „The Sovereignty of Good Over Other Concepts“. Í káputexta er henni lýst sem „one of the very few modern books on philosophy which people outside academic philosophy find really helpful“. Murdoch á það einmitt til að ræða meðvitað um heimspekiiðkun á þá leið að varpar ljósi á hana á ofureinfaldan hátt, án þess þó að einfalda hana um of ‒ samanber t.d. eftirfarandi tilvitnun: „Philosophers merely do explicitly and systematically and often with art what the ordinary person does by instinct.“ (s. 91)
7. október 2011
Viðnám ímyndunaraflsins
Þegar við lesum skáldverk er fátt eins mikilvægt og að geta lifað sig inn í það. Það er yfirleitt lítið varið í að lesa skáldsögu ef við finnum ekki til samkenndar með söguhetjunum eða ef hegðun þeirra og viðbrögð eru ekki sannfærandi. Ímyndunaraflið er bráðnauðsynlegt til að fá eitthvað út úr lestri skáldverka og ákveðið samspil milli höfundar og lesanda þarf að koma til. Höfundurinn þarf að setja efnið þannig fram að það nái til lesandans og lesandinn þarf að vera móttækilegur, meðal annars með ímyndunarafli sínu, fyrir efninu. Ef þetta er ekki til staðar er tilganginum ekki náð. Hér má svo velta fyrir sér hvaða skorður, ef einhverjar, ímyndunaraflinu eru settar. Getum við ímyndað okkur, og lifað okkur inn í, hvað sem er? Vantar eitthvað upp á frjósemi ímyndunaraflsins ef við getum það ekki?
Mörg okkar njóta þess að lesa alls konar fantasíubókmenntir eða aðrar bókmenntir þar sem söguhetjur, jafnt mannlegar sem annarra tegunda, eru í alls konar langsóttum aðstæðum sem geta verið afar ólíkar nokkru sem á sér stað í raunveruleikanum. Við förum létt með að ímynda okkur flakk milli heima og vídda, alls konar galdra og öfl sem ekki eru þessa heims, talandi dýr og yfirnáttúrulegar furðuskepnur og ótal margt fleira. Við gætum þess vegna hlegið og grátið með fjölkunnugri drekakanínu sem berðist við sjávaranda úr fortíðinni og flakkaði milli tímavídda. En þýðir þetta að ímyndunarafl okkar eigi sér engin takmörk? Er hægt að lifa sig inn í hvað sem er?
Hér koma hugleiðingar heimspekinga til sögunnar. Fyrir rúmum 250 árum skrifaði David Hume:
Þó að íhugunarvillur sé að finna í siðmenntuðum skrifum allra tíma og þjóða þá draga þær ekki nema lítið úr gildi þessara verka. Einungis þarf litla breytingu á blæbrigðum í hugsun eða ímyndun til að við tökum á okkur þær skoðanir sem þá ríktu og lærum að meta þau sjónarmið eða niðurstöður sem leiddar eru af þeim. En afar heiftarlegt átak gerist nauðsynlegt ef breyta skal dómum okkar um hegðun og vekja kenndir á borð við velþóknun eða álösun, ást eða hatur, frábrugnar þeim sem hugur okkar hefur lengi mátt venjast … Ég get ekki, né væri það viðeigandi að ég gerði svo, gengist undir slíka [lastafulla] afstöðu (David Hume, „Af mælikvarða smekksins“).
Hume taldi sem sagt að þótt við gætum sett okkur í spor fólks á fjarlægum slóðum eða á öðrum tímum og þannig metið hluti útfrá aðstæðum ólíkum okkar eigin þá gilti það ekki þegar um væri að ræða gildisdóma á borð við þá sem varða siðferði. Og hann segir að það væri beinlínis rangt af okkur að reyna. Hume er svo sem ekki sérstaklega að fjalla um ímyndunaraflið eða skáldskap en það hafa aðrir heimspekingar gert, mun nær okkur í tíma, og sett þessi orð hans í slíkt samhengi. Tamar Szabó Gendler hefur þannig fjallað um það sem hún kallar ímyndunarviðnámsráðgátuna (e. puzzle of imaginative resistance) og þar lagt út af orðum Humes. Ímyndunarviðnámsráðgátan snýst um það að suma hluti eigum við afar erfitt með að ímynda okkur. Við getum ímyndað okkur heim þar sem manneskjur hafa vængi og geta flogið, þar sem verur með fjögur höfuð ráða ríkjum eða þar sem ýmiss konar náttúrulögmál eru brotin en það er afar erfitt, ef ekki ómögulegt, að ímynda sér heim þar sem rétt er að drepa barn á þeim forsendum að það sé stúlka, þar sem nauðganir eru réttmætar eða þar sem það besta sem hægt er að gera fyrir nokkurn mann er að pynta hann.
Kendall Walton hefur bent á svipaða hluti en vill ekki setja þá fram á sama hátt og Gendler. Hann vill gera greinarmun á því sem snýr að ímynduninni og því sem lýtur að skáldskap. Það sem greinargerðir beggja eiga þó sameiginlegt er að litið er svo á að hugmyndir um siðferði og annað gildismat séu það sem setja ímyndunaraflinu eða skáldskaparinnlifuninni einna mestar skorður. Gildismat okkar, ekki síst hið siðferðilega, liggur svo djúpt í okkur að við fáum okkur ekki einu sinni til að ímynda okkur eitthvað sem gengur gegn því eða lifa okkur inn í aðstæður þar sem það hefur ekkert vægi. Það virðist jafnvel eitthvað siðferðilega rangt við það að leyfa sér að ímynda sér að morð og limlestingar séu réttmæt.
Það virðist þó ekki bara vera eitthvað siðferðilegt sem truflar ímyndunarafl eða innlifun. Sjálf á ég að minnsta kosti erfitt með að lifa mig inn í líf sögupersónu sem hefur tilfinningalíf sem mér finnst of furðulegt eða ekki nógu sannfærandi. Það virðist ekki trufla trúverðugleika sögupersónu að hún sé þríhöfða þurs sem étur skósvertu í hvert mál og svífur um óháð þyngdarlögmálinu en ef hún gerir ekki greinarmun á sorg og gleði eða lætur sér standa á sama um sína nánustu þá verður hún svo framandi að sagan verður of fjarstæðukennd til að ég geti lifað mig inn í hana.
5. september 2011
Fyndnasta bók sem ég hef lesið
Ég minntist um daginn á fyndnustu bók sem ég hef lesið og lenti næstum því í ritdeilu við Steve Martin fyrir vikið. Fyndnasta bók sem ég hef lesið heitir The Thought Gang og er eftir breska rithöfundinn Tibor Fischer. Hún kom út árið 1994 og byrjar svona:“The only advice I can offer, should you wake up vertiginously in a strange flat, with a thoroughly installed hangover, without any of your clothing, without any recollection of how you got there, with the police sledgehammering down the door to the accompaniment of excited dogs, while you are surrounded by bales of lavishly-produced magazines featuring children in adult acts, the only advice I can offer is to try to be good-humoured and polite”.
Ég veit, þetta er ekkert sérstaklega fyndið, svona þannig séð. Ég las bókina nokkrum árum eftir að hún kom út en samt eru örugglega að minnsta kosti 12 ár síðan og ég hef ekki þorað að opna hana aftur, það er að segja, fyrr en núna. Ég las alla bókina á Kastrup flugvelli og í minningunni sat ég hlæjandi eins og fífl yfir þessari bók á meðan ég beið þar í marga klukkutíma. Þannig að bókin er gríðarlega fyndin í endurminningunni en nú hef ég verið að blaða aðeins í henni og ég er ekki viss.
Maðurinn sem vaknar skelþunnur innan um barnaklámblöð í ókunnri íbúð með lögguna á hurðinni er heimspekingur að nafni Eddie Coffin. Hann man sumsé ekkert eftir því hvað gerðist kvöldið áður, sem er í sjálfu sér ekkert nýtt enda maðurinn með eindæmum blautur en í þetta sinn eru aðstæður háskalegri en hann á að venjast. Honum tekst reyndar að flýja þessar aðstæður fyrir rest, hann stelur fjármunum frá heimspekideildinni í Cambridge þar sem hann starfar og flýr til Frakklands þar sem hann kynnist einhentum (og eineygðum, ef ég man rétt) glæpamanni og psykopata sem heitir Húbert. Þeir kynnast þegar Húbert reynir að ræna Eddie á hótelherbergi hans en Húbert er nýsloppinn úr fangelsi en strax tekinn til við sína fyrri iðju sem hann er satt best að segja ekkert sérstaklega góður í. Þeir Húbert og Eddie ákveða hinsvegar að ræna banka saman og þegar það gengur upp ræna þeir annan og svo annan og svo annan.....fyrir ólíklegustu tilviljanir og þrátt fyrir yfirnáttúrulegan klaufaskap þeirra félaga komast þeir upp með hvert bankaránið á fætur öðru og á meðan á þessu ránsferðalagi um Frakkland stendur ræða þeir heimspekikenningar en Húbert hefur mikinn áhuga á því að kynnast heimspekinni nánar. Að því kemur að þeir ákveða að þeir eigi skítnóg af peningum, þeir ákveða að hætta á toppnum og fremja aðeins eitt rán enn...og hér verður ekki sagt hvernig það fer allt saman.
Þessi lýsing er skrifuð eftir minni, mig minnir að þetta hafi verið nokkurn veginn svona. Nú á eftir að koma í ljós hvort þessi lýsing kveikir í einhverjum en í minningunni er bókin um hugsanagengið sumsé gríðarlega skemmtileg, fyndnasta bók sem ég hef lesið, og ég er ekki alveg tilbúin til að velta henni af þeim stalli, ekki enn sem komið er að minnsta kosti. Og nú væri gaman að heyra í blogglesendum, hvaða bók er skemmtilegasta bók sem þú hefur lesið?
18. september 2010
Framfaragoðsögnin
Georg Henrik von Wright var menntaður í Cambridge og nemandi Wittgensteins og síðar eftirmaður hans sem prófessor. Ungur var hann mjög tæknilega þenkjandi en fræðilegar áherslur hans breyttust mikið þegar á leið. Von Wright skrifar aðdáanlega skýran og læsilegan texta og það vill svo vel til að ein góðra bóka hans, Framfaragoðsögnin, er til í fínni íslenskri þýðingu Þorleifs Haukssonar. Framfaragoðsögnin er safn greina sem eiga það sameiginlegt að gagnrýna framfarahugmyndir nútímans. Í Moggaviðtali við Ólaf Pál Jónsson í tilefni útgáfu bókarinnar í desember árið 2003 má lesa:
„Framfarir er gildishlaðið hugtak eins og hugtakið góður,“ segir Ólafur,„en mælikvarðarnir á framfarir eru hinsvegar ekki gildishlaðnir, þeir tengjast tæknilegum atriðum eins og launum og framleiðslugetu. Wright bendir á að menn eigi til að rugla saman tæknilegum framförum og batnandi mannlífi.“ Wright ritar einnig í bókinni um alþjóðavæðingu, tæknihyggju og stöðu náttúrunnar í heimi mannsins.“
Framfaragoðsögnin á alltaf erindi, en núna, þegar enn einu sinni er töluvert hamrað á því að hagvöxtur sé sannur mælikvarði á velferð fólks, á hún sérstakt erindi.
Þórdís
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)




