Í dag lásu margir og ólíkir kvenhöfundar upp úr verkum sínum í Gerðubergi undir yfirskriftinni „Kellíngabækur“. Upplestrarnir fóru fram á þremur stöðum samtímis (sal A, sal B og á bókasafninu) þannig að maður var frá upphafi dæmdur til að missa af mörgu áhugaverðu. Ég náði þó nokkrum upplestrum og birti myndir af þeim hér fyrir neðan. Ég verð að viðurkenna að ég var ekki viss um að ég kæmist nokkurn tímann í Gerðuberg. Ég rata ekkert í Breiðholtinu, var ógeðslega þreytt (eftir druslubókakokkteil gærkvöldsins) og sólin skein mjög agressíft í augun á mér þannig að ég beygði á einhverjum tímapunkti inn ranga götu og keyrði eftir það stefnulaust um Breiðholtið. Það sem bjargaði mér var það að víðsvegar í Breiðholtinu eru skilti sem vísa manni leiðina að Gerðubergi - það var aðeins þeim að þakka að komst á slaginu eitt í þangað, þar sem ég hitti druslubókadömuna Sölku Guðmundsdóttur sem leiddi mig inn í sal A. Þar náðum við upplestri nokkurra barna- og unglingabókahöfunda. (Afsakið, margar myndanna eru pínu blörraðar.)
|
Fólk hlustar - kósý |
|
Jónína Leósdóttir les úr Upp á líf og dauða |
|
Margrét Örnólfsdóttir les úr bók sinni Með heiminn í vasanum |
Þá drifum við okkur í sal B, enda stutt í upplestur Kristínar Svövu. Þarna varð áberandi hversu ólíkir höfundar voru settir saman. Það var að mörgu leyti áhugavert, annars hefði ég líklega aldrei heyrt Ásdísi Jóelsdóttur kynna bók sína um fatasaum, sem virtist afskaplega vel gerð.
|
Ásdís Jóelsdóttir kynnir bókina Fatasaumur - Saumtækni í máli og myndum |
|
Kristín Svava les úr Skrælingjasýningunni |
Það var kósý í bókasafninu, hér fyrir neðan er Halla Þórlaug Óskarsdóttir að lesa úr bókinni
Agnar Smári - Tilþrif í tónlistarskólanum
Ég þurfti að hlaupa eftir lesturinn hennar Kristínar Svövu, aðallega vegna þess að hún á afmæli á morgun og ég átti eftir að kaupa gjöf (hint: lífsstílsbók Tískubloggsins og nóg af bleikum bríser). Á leiðinni út kíkti ég á bækur sem voru til sölu og á málverk sem voru til sýnis á safninu.
|
Háskólaútgáfan: Styrmir Goðason og Olga Guðrún Árnadóttir selja bækur
|
|
Myndir Vigdísar Grímsdóttur |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli