Þetta var einhverra hluta vegna fyrsta myndaniðurstaða þegar ég gúglaði jólabókaflóðið. |
Um daginn var ég til dæmis að skoða nýja finnskuþýðingu á þremur leikritum eftir Federico García Lorca, en þetta var einmitt um sama leyti og við kórinn minn vorum að æfa kórverk með texta úr ljóði eftir þann sama Lorca. Síðastliðna helgi sá ég síðan brot úr finnskri uppsetningu á brúðuleikhúsverkinu Retablillo de Don Cristóbal, eftir hvern annan en hinn spænska Federico del Sagrado Corazón de Jesús García Lorca, og flaug þá í hug að alheimurinn væri hugsanlega að reyna að segja mér eitthvað með milligöngu skapbráðu, fjólubláu feltbrúðunnar sem svo þróttmikil sló sambrúður sínar eina af annarri í trékylft rot.
Allavega er Lorca eitt þessara skálda sem hljóma svo yfirmáta kunnuglega að mér finnst ég líklega þekkja verk þeirra mun betur en ég í raun geri ‒ af verkum Lorca þekki ég eiginlega afar fátt, ef nokkuð utan Húss Bernhörðu Alba (og jú, get núna sönglað ljóðabrot eftir hann á spænsku (og alveg næstum skilið þau líka)).
Verkið Nýjustu fréttir fjallar um áhrif frétta á líf okkar. |
Í stuttu máli er ég heilluð af því sem ég sá á þessari hátíð. Ég hef sennilega ekki séð brúðuleikhús að neinu ráði síðan í Brúðubílnum sælla minninga, og hefði kannski ekki trúað því að óreyndu að hin fullorðna ég gæti hrifist svona af góðum brúðuleik ‒ enda er það fjarstæða að halda að þar sé almennt stílað eitthvað sérstaklega inn á börn, þó að rétt eins og í öðru leikhúsi séu auðvitað einnig reglulega sett upp verk ætluð börnum. Þótt brúðuleikhús hafi vissulega sín sérkenni til að bera virðast verkin geta verið nokkurnveginn eins fjölbreytileg og leikverk almennt; verkið hans Lorca er í erkitýpískari kantinum, með þremur mis-riddaralegum persónum að berjast um ástir einnar dömu, verk Siggu Sunnu og félaga er byggt á gróteskum málverkum danska listmálarans Michaels Kvium og einn finnskur hópur er að vinna að uppsetningu á Ofviðri Shakespeares, svo eitthvað sé nefnt.
Niðurstaða; alheimurinn fílar brúðuleikhús, það geri ég líka og mæli eindregið með að tékka á slíku þegar tækifæri gefst.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli