Þórdís Gísladóttir
30. nóvember 2009
Hallærislegar kynlífslýsingar - vafasamur heiður
Þórdís Gísladóttir
27. nóvember 2009
Adda á elliheimilinu?
Mig langar hins vegar að vita hvort ungviðið árið 2009 hafi áhuga á að lesa Öddubækurnar. Hinn heilsteypti munaðarleysingi Adda, sem ættleidd var af vönduðum hjónum (lækni og hjúkrunarkonu) og kynntist kornung hinum dökkjarphærða Páli, ábyrgðarfullum læknanema sem hún síðan trúlofaðist (og giftist örugglega líka þó að Adda giftist hafi aldrei komið út), er óneitanlega barn síns tíma og kannski ekki alveg sú kvenhetja sem á brýnast erindi í dag.
Það loðir við uppalendur að þeir telja það gott fyrir afkomendur sína sem þeim finnst hafa hentað þeim sjálfum á æskuárum. Kardimommubærinn var til dæmis sýndur nýlega, kannski vegna þess að um er að ræða gott leikverk, en maður getur velt því fyrir sér hvort aðallega sé um að ræða nostalgíukitl fyrir foreldra. Öddubækurnar eru ágætar á sinn hátt en hugsanlega áttu þær sér sinn tíma sem ekki kemur aftur.
Nú heyrir maður reglulega að erfitt sé að fá mörg stálpuð börn til að lesa bækur, enda margskonar afþreying sem keppir við bókina. Ef við teljum bóklestur mikilvægan hlýtur að vera áríðandi að finna lesefni fyrir krakka sem skemmtir þeim og kveikir löngun þeirra til frekari lestrar. Það er nóg til af nýjum og spennandi bókum á markaðinum og ég spyr sjálfa mig hvort Öddubækurnar séu kannski bara sniðug jólagjöf handa ömmu?
Þórdís Gísladóttir
26. nóvember 2009
Uppskeruhátíð Ormstungu
Fimmtudaginn 26. nóvember kl. 20 verður uppskeruhátíð bókútgáfunnar Ormstungu haldin í Þjóðleikhúskjallaranum. Þar fagna menn útkomu nýrra bóka og höfundar og ritstjórar lesa valda kafla.
- Gísli Már Gíslason segir frá endurútgáfu Landfræðissögu Íslands eftir Þorvald Thoroddsen.
- Guðmundur Heiðar Frímannsson les upp úr bók Haralds Bessasonar, Guðir og menn.
- Guðmundur Óskarsson les upp úr bók sinni Bankster.
- Helgi Ingólfsson les upp úr bók sinni Þegar kóngur kom.
- Hlín Agnarsdóttir les upp úr bók sinni Blómin frá Maó.
- Stefán Sigurkarlsson les upp úr bók sinni, Raddir frá Hólmanesi.
Ari Agnarsson kemur fólki í rétta stemningu með píanóleik og Ljótu hálfvitarnir (í heild eða partur) trufla samkomuna eftir þörfum.
Kynnir verður Sigrún Valbergsdóttir
25. nóvember 2009
Árlegt glæpasagnakvöld á Grand Rokk
Fimmtudagskvöldið 26. nóvember klukkan 8:30 hefst árlegt glæpakvöld Hins íslenska glæpafélags. Lesið verður upp úr sex glæpasögum þessa árs og einni glæpasögu næsta árs.
Boðið verður upp á glæpadjassleik þeirra Tómasar R. Einarssonar á kontrabassa, Ómars Guðjónssonar á gítar og Samúesl J. Samúelssonar á básúnu.
Boðið verður upp á glæpadjassleik þeirra Tómasar R. Einarssonar á kontrabassa, Ómars Guðjónssonar á gítar og Samúesl J. Samúelssonar á básúnu.
22. október 2009
Börn og menning - hausthefti 2009
Hausthefti Barna og menningar kemur út á næstunni. Meðal efnis má nefna að Þórdís Gísladóttir fjallar um fjöldaframleiddar eftirprentanir af grátandi börnum, Ármann Jakobsson skrifar grein um bók J.R.R. Tolkiens, Gvendur bóndi á Svínafelli, sem var þýdd á íslensku fyrir þremur áratugum, bækurnar vinsælu um Fíusól eru til umfjöllunar í grein eftir Þorgerði E. Sigurðardóttur og umsjónarmenn Leynifélagsins, sem er barnaþáttur á dagskrá Rásar 1 hjá RÚV, skrifa grein um dagskrárgerð þáttarins. Þá eru í Börnum og menningu greinar um þrjár nýlega þýddar barna- og unglingabækur; Erla Elíasdóttir fjallar um hinn sígilda Bangsímon eftir A.A.Milne, Ingólfur Gíslason um Doktor Proktor og prumpuduftið eftir Jo Nesbø og Helga Ferdinandsdóttir um Göngin eftir Roderick Gordon og Brian Williams.Börn og menning kemur út tvisvar á ári en það er eina íslenska tímaritið sem tekur eingöngu til umfjöllunar menningartengt efni fyrir börn. Blaðið er gefið út af IBBY á Íslandi, sem er félagsskapur áhugafólks sem vill efla barnamenningu.
Ritstjóri Barna og menningar er Þórdís Gísladóttir. Beiðni um áskrift má senda á bornogmenning@gmail.com.
16. október 2009
Kjötfars og bókmenntir - játning
Í vikunni játaði Þórdís á sig nokkra vafasama og minna vafasama smáglæpi á vef bókaútgáfunnar Bjarts. Hér má lesa játninguna og hér er krækja á vefsíðu umrædds sænsks tímarits fyrir bókelska alþýðu.
13. október 2009
Snaran – tímalaus snilld
Sumar bækur eru þannig gerðar að þær gera nær alla lesendur æsta, fylla suma eldmóði en reita aðra til reiði. Ein þeirra er Snaran eftir Jakobínu Sigurðardóttur, sem kom fyrst út árið 1968, hefur verið ófáanleg um langt skeið en er nú nýkomin út í klassíska kiljuklúbbnum hjá Forlaginu.
Snaran er framtíðarsaga og birtist lesandanum sem önnur hliðin á samtali tveggja sópara í verksmiðju á 9. áratug 20. aldar, um tuttugu árum eftir ritunartíma bókarinnar. Þetta frásagnarform hefur verið kallað dramatískt eintal og er vel þekkt í ljóðlist og leikritun en mjög sjaldgæft er að heilar skáldsögur séu dramatísk eintöl frá upphafi til enda. Raunar þekki ég enga aðra slíka skáldsögu á íslensku og auglýsi hér með eftir ábendingum frá lesendum.
Mörgum finnst formið erfitt í lestri og Snörunni var örugglega aldrei ætlað að vera skemmtilesning því Jakobína sagði sjálf að hún vildi virkja lesendur og hafa áhrif á þá. Form sögunnar gerir hana í raun að einni stórri persónulýsingu. Sögumaðurinn segir oft eitt en meinar annað, lýgur vísvitandi, er orðljótur og réttlætir sjálfan sig og gerðir sínar í sífellu. Hann er bleyða sem metur peninga meira en hugsjónir og hagar seglum eftir vindi hverju sinni. Lesendur kynnast þessum bjána eins og þegar maður hlustar (óvart) á ókunnugan mann tala í símann í biðröð. Það eina sem byggir upp mynd okkar af þessum karakter er hvað hann segir og gerir þennan stutta tíma meðan samtalið varir – og ég held að fáir myndu vilja adda honum sem vini á Facebook. En af hverju í ósköpunum ætti höfundur að skrifa heila skáldsögu um svona óaðlaðandi persónu?
Svört samfélagsmynd sögunnar var gjarnan talin óraunsæishjal þegar bókin kom út. Nú 40 árum síðar sjáum við að auðvitað „rættist“ framtíðarspáin ekki í þeim skilningi að í bókinni sé raunsæ lýsing á íslensku samfélagi á 9. áratugnum en ef að er gáð má sjá ýmislegt áhugavert. Í Snörunni er straumur erlends vinnuafls inn í landið vandamál og þótt verkamenn frá Póllandi og Kína hafi komið í stað fagmenntaðra Þjóðverja sýnir grunnhugmyndin um að íslenskt samfélag þróist með þeim hraða að til að halda því gangandi þurfi að flytja inn erlent vinnuafl að Jakobína var ótrúlega sannspá. Ítök Bandaríkjamanna á Íslandi virðast mikil í samfélagi Snörunnar og Íslendingar eiga hvorki né reka fyrirtækið þar sem félagarnir vinna. Í þessari framtíðarsýn Jakobínu er útrás íslenskra bankamanna hvergi nærri en aftur á móti þarf ekki annað en nefna Alcoa og Alcan til að lesendur heyri bjöllur hringja.
Það sem gerir Snöruna þó tímalausa er sögumaðurinn sjálfur. Mannlýsingin er undirstaða ádeilunnar í sögunni, ekki samfélagslýsingin, Sögumaðurinn og skoðanir hans eru andstæðar Jakobínu og yfirlýstum (sumir myndu segja kommúnískum) skoðunum hennar sem birtast skýrt í greininni „Himnasendingar“ sem hún skrifaði í Þjóðviljann tveimur árum áður en Snaran kom út. Þar fjallar hún um ábyrgð hins almenna borgara á því sem fram fer í landinu og bendir á að ekki sé hægt að kenna stjórnvöldum um allt heldur verði hver einstaklingur að taka afstöðu til þess sem gerist í kringum hann. Sögumann Snörunnar skortir fyrst og fremst sjálfsvirðingu. Hann er hinn ábyrgðarlausi, almenni borgari sem Jakobína húðskammar í grein sinni, sá sem „hniprar sig saman eins og hræddur brekkusnigill og fullyrðir: Ég hef ekkert vit á þessum málum. Það eru víst bara kommúnistar, sem eru á móti þessu.“ Ég tel að ádeila Snörunnar felist fyrst og fremst í gagnrýni á þess konar hugsunarhátt og hegðun, ekki framtíðarspá eða and-kapítalískum áróðri.
Á þessi ádeila ekki við enn í dag? Getur ekki verið að í búsáhaldabyltingunni eftir bankahrunið haustið 2008 hafi sniglarnir loksins byrjað að skríða út úr skelinni? Og ef við lítum á aðra bresti sögumannsins, kannast ekki einhver við að hafa réttlætt gerðir sínar eða staðið sig að því að vera í mótsögn við sjálfan sig? Fussað og sveiað yfir siðlausum lögbrjótum og farið svo á netið og halað niður Fangavaktinni? Þess vegna held ég að Jakobína hafi skrifað heila bók um svona ömurlegan gaur – meðal annars til þess að lesendur kæmu auga á brestina í sjálfum sér. Einmitt vegna þess hve mannlýsingin í Snörunni er einstaklega vel unnin er bókin ekki bara framtíðarsaga eða ádeila sem á við ákveðinn sögulegan tíma heldur á hún alltaf við, ekki síst nú. Húrra fyrir endurútgefinni Snöru!
Ásta Kristín Benediktsdóttir
P.S. Áhugavert viðtal við Jakobínu birtist í Þjóðviljanum árið 1988.
Nægur tími til lestrar
Sumu fólki verður heldur meira úr verki en öðru. Amerísk nokkurra barna móðir á fimmtugsaldri, Nina Sankovitch, heldur úti eigin bókabloggsíðu og hún er heldur afkastameiri lesandi og bókabloggari en við sem skrifum á þessa síðu. Hér er krækja á grein í New York Times sem fjallar um lestrarvenjur Ninu. Þetta kallar maður að kunna að forgangsraða!
8. október 2009
Herta Müller - nokkrir linkar
Símaviðtal við Hertu Müller á nóbelsverðlaunavefnum (á þýsku).
Ein af skáldsögum Hertu Müller, Der Fuchs var damals schon der Jäger, hefur verið þýdd á íslensku undir heitinu Ennislokkur einvaldsins, á vef Ormstungu er hægt að lesa sýnishorn og kaupa bókina auk þess sem hún er fáanleg á ýmsum bókasöfnum.
Hér er hægt að hlusta á Hertu Müller lesa nokkur ljóða sinna.
Sýnishorn af nýjustu skáldsögu Hertu Müller: Atemschaukel:
- á þýsku
- ensk þýðing
Grein eftir Hertu Müller um rúmensku leyniþjónustuna:
- á þýsku
- ensk þýðing
Nóbelsverðlaun - Herta Müller
Rétt í þessu tilkynnti nýlega ráðinn talsmaður sænsku akademíunnar, Peter Englund, að þýsk-rúmenski höfundurinn Herta Müller (fædd 1953) hljóti Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í ár. Ég hef aldrei heyrt á höfundinn minnst en Dagens nyheter segir Hertu Müller vera afkastamikinn skáldsagnahöfund og esseyista og Peter Englund hafði orð á því þegar hann stóð í dyrum Börssalarins að hún væri einstaklega kraftmikill og sérstakur höfundur. Það verður vafalaust spennandi að kynna sér verk Hertu Müller en nú er slæmt að vera illa stautfær á þýsku.
Wikipedia um höfundinn.
5. október 2009
Ian Rankin: The Complaints
Það er ósanngjarnt að dæma bækur út frá því sem þær eru ekki. Klassískur ósiður en ósanngjarn. Stundum langar mann bara svo óskaplega til þess. Og svo ég komi mér strax að kvörtunarefninu: The Complaints, nýja skáldsagan eftir Ian Rankin hefur þann stóra galla að fjalla hvorki um Rebus né Siobhan.
Grunnupplýsingar fyrir þá sem ekki þekkja til: Í bókaflokknum um Rebus, rannsóknarlögreglumann í Edinborg, eru sautján skáldsögur auk þess sem hann birtist í einni nóvellu og nokkrum smásögum. Þegar líður á bókaflokkinn fær Siobhan, samstarfskona Rebusar, aukið vægi og í síðustu sögnunum er álíka mikið fjallað um hana og Rebus sjálfan. Skáldsögurnar gerast í rauntíma þannig að Rebus eldist með hverri bók og þar sem skoskum lögreglumönnum er skylt að láta af störfum þegar þeir verða sextugir var óhjákvæmilegt að Rebus færi á eftirlaun í hitteðfyrra. Staðreyndin hafði valdið mörgum kvíða og einn af fjölmörgum aðdáendum hafði meira að segja borið upp fyrirspurn í skoska þinginu um hvort ekki væri hægt að hækka eftirlaunaaldurinn svo að Rebus gæti haldið áfram störfum!
Ef einhverjir þekkja Rebus bara af sjónvarpsmyndunum sem hafa verið sýndar síðustu ár, þar sem Ken Stott leikur aðalhlutverkið, er rétt að nefna að þær eru beinlínis hræðilegar og gjörólíkar bókunum. Stundum efast ég um að nokkur sem vinnur við gerð þeirra hafi lesið bækurnar, þar með talinn handritshöfundurinn. Slökkvið endilega á sjónvarpinu ef þær verða oftar á dagskrá og takið ykkur frekar bækurnar í hönd.
Auðvitað er skiljanlegt að Ian Rankin hafi viljað nota tækifærið þegar Rebus þurfti að fara á eftirlaun til að komast upp úr hjólförunum og skrifa eitthvað allt annað, jafnvel þótt hann hafi verið búinn að byggja Siobhan svo vel upp sem persónu að borðleggjandi hefði verið að halda bókaflokknum áfram með hana sem aðalpersónu. Rankin er greinilega að nota nýfengið frelsi til að leika sér, sem er hið besta mál: hann skrifaði textann í teiknimyndasögu sem er nýkomin út, hann hefur skrifað líbrettó fyrir stutta óperu, og í fyrra kom út skáldsagan Doors Open sem er af nokkuð öðrum toga en Rebus-bækurnar þótt hún falli einnig í flokk glæpasagna. Þar er fjallað um listaverkarán og sagan er sögð frá sjónarhóli eins af þátttakendunum í ráninu. Bókin var alveg ágætlega heppnuð en samt biðu ófáir lesendur áreiðanlega eftir því mestalla bókina að Rebus birtist. (Ef ég man rétt sást hann reyndar í mýflugumynd en þá hófst bara ný bið eftir að hann birtist aftur.)
Tilfinningin um að Rebus eða Siobhan hljóti ávallt að vera rétt handan við hornið er ennþá áleitnari í nýju bókinni, The Complaints. Þar víkur sögunni aftur inn í lögregluliðið og þótt aðalpersónan, Malcolm Fox, sé yngri en Rebus, í betri tengslum við ættingja sína, hafi önnur áhugamál og ástundi heilbrigðari lifnaðarhætti, þá er þetta einnig samtímaskáldsaga um lögreglumann í Edinborg. Já og þótt Malcolm Fox sé þurr alki en Rebus hafi ekki hætt að drekka, þá er ítrekað gert að umtalsefni að það sé enginn leikur fyrir Fox að halda sig frá flöskunni þannig að óhætt er að segja að báðir eigi í vandræðum með áfengi. Þegar við bætist sívaxandi tilhneiging Fox til að fara á svig við reglurnar er samanburðurinn orðinn illhjákvæmilegur. Líkindin eru nógu mikil til að fjarvera Rebusar verður æpandi.
En það er nú sennilega sanngjarnt að víkja aðeins frá samanburðinum við Rebus og skrifa svolítið um bókina sjálfa.
Aðalpersónan í The Complaints heitir Malcolm Fox og hann starfar í innra eftirliti lögreglunnar, gætir þeirra sem eiga að gæta laga og réttar. Í byrjun bókarinnar er Fox beðinn að taka til athugunar löggu að nafni Jamie Breck og hann er rétt byrjaður að skoða málið þegar tilviljunin hagar því svo til að hann kynnist Breck persónulega. Kærasti systur Fox er nefnilega drepinn og Breck er meðal þeirra sem rannsaka morðið. Þeir verða brátt mestu mátar og Fox fyllist fljótt efasemdum um að tilefni sé til eftirlitsins. Þegar Fox lendir sjálfur undir eftirliti flækjast málin svo enn frekar og þráðunum milli persónanna sem koma við sögu fjölgar. Þótt Fox og Breck sé vikið frá störfum halda þeir áfram að rannsaka málin og smám saman fer Fox, maðurinn átti að gæta þess að öllum reglum væri fylgt, á svig við sífellt fleiri reglur.
Valdið til að greina rétt frá röngu, ástæður sem liggja að baki rannsókn mála og aðferðunum sem beitt er, auk spurningarinnar um hvort tilgangurinn helgi meðalið eru meðal umfjöllunarefnanna undir yfirborði bókarinnar. Þetta er allt gott og gilt. Samfélagslýsingin á líka ágætis spretti, í bakgrunni eru byggingasvæði með hálfbyggðum húsum þar sem framkvæmdir hafa stöðvast; það er víðar en á Íslandi sem framkvæmdagleðin varð skynseminni yfirsterkari. Sagan er því ekkert óáhugaverð en hún er ekki heldur sérlega spennandi og samsærisplottið reynist frekar langsótt.
Bókin er líka of litlaus til að umfjöllunin nái einhverri dýpt, til dæmis er textinn dauflegri en í bókunum um Rebus – svo þeim ósanngjarna samanburði sé haldið áfram. Í Rebus-bókunum leynir textinn á sér. Hann er einfaldur á yfirborðinu og virðist renna áreynslulaust - en það er hægara sagt en gert að skrifa svoleiðis. Rankin sýnir t.d. næma tilfinningu fyrir rythma sem er mikilvægur liður í því hvað andrúmsloftið í bókunum er sterkt. Textinn í The Complaints er alveg skikkanlegur en það neistar ekkert af honum.
Persónusköpunin er líka ófullnægjandi. Fox er ekki nógu spennandi persóna til að mig langi sérstaklega að lesa fleiri bækur um hann. Til að einhverrar sanngirni sé gætt í samanburðinum við Rebus er þó rétt að taka fram að því fór fjarri að Rebus stykki fullskapaður fram í fyrstu bók. Einn af stærstu kostum þess bókaflokks – og hluti af því sem gerði hann óvenjulegan – var einmitt hvernig hann batnaði eftir því sem á leið, andrúmsloftið varð magnaðra, persónurnar sífellt margbrotnari. Kannski getur Rankin þróað Fox og hinar persónurnar í The Complaints áfram á áhugaverðan hátt. En hann er ekki lengur nýr höfundur, kröfurnar hafa aukist og það er erfitt að sýna því þolinmæði að ný persóna þokist varla frá byrjunarreitnum.
The Complaints er þokkaleg bók en ekki meira. Ef Ian Rankin vill sætta aðdáendur sína við líf án Rebusar og Siobhan verður hann að gera betur og það fyrr en síðar.
30. september 2009
Karitas í Gerðubergi
Er ekki um að gera að nýta þennan vettvang í "shameless self promotion"?Líf og list: 100 ára vegferð Karitasar Jónsdóttur
Bókmenntanámskeið um verk Kristínar Marju Baldursdóttur.
Leiðbeinandi: Sigfríður Gunnlaugsdóttir
Bókmenntanámskeiðið er haldið í tengslum við Ritþing Kristínar Marju Baldursdóttur sem verður haldið í Gerðubergi 31. október n.k. Á námskeiðinu verður skyggnst inn í söguheim Karitasarbóka Kristínar Marju Baldursdóttur. Saga Karitasar er ekki einungis saga af langri og viðburðaríkri ævi einnar manneskju heldur saga íslenskrar þjóðar í 100 ár einsog hún hljómar af vörum konu sem hefur valið sér það hlutskipti að verða listakona.
Í sögunum er tekist á við lífið sjálft og því svo ótalmargt sem hægt er að velta fyrir sér; líf í sveit og borg, Ísland og umheimurinn, samskipti kvenna og karla, móðurhlutverkið, fjölskyldubönd, góðmennska og grimmd, einangrun, fjölmenni, listin í landslaginu og landslagið í listinni, og svo má lengi telja. Sagan, og þar með líf Karitasar og þjóðarinnar sem hún tilheyrir, er í senn raunveruleg og fjarstæðukennd: nákvæmar persónu- og staðarlýsingar vísa veginn inn í hugarheim Karitasar þar sem óreiðan og hið fjarstæðukennda og framandi er sjaldan langt undan.Þessi mánudagskvöld í október munum við ganga saman inn í heim Karitasar: fjalla um persónur sögunnar, sérstaklega kvenpersónurnar, fjölskylduna og samfélagið, listamenn í íslensku samfélagi, og reyna að átta okkur á því hvað það er sem mótar og knýr Karitas áfram sem persónu og listamann.
Nánari upplýsingar: Guðrún Dís Jónatansdóttir netfang: gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is, s. 575 7006
4. september 2009
10. ágúst 2009
Lýst er eftir litríku máli …
Ég þarf að gera játningu. Reyndar er það augljós lygi, ég þarf ég þess alls ekki, en hér kemur hún samt:
Stundum uppgötva ég að vikum, jafnvel mánuðum saman hef ég varla lesið almennilega íslensku, a.m.k. ekki langan samfelldan texta. Ekki svo að skilja að ég hafi ekkert lesið nema útlensku. Öðru nær, en allur textinn sem ég les í atvinnuskyni er ekki endilega leiftrandi snilld og þar að auki oftast lesinn með gleraugum sem fókusera á allt sem betur mætti fara. Og svo álpast ég óþarflega oft til að lesa alltof marga slaka reyfara í misgóðum þýðingum þótt ég ætti að vita betur.
Við þessar aðstæður óttast ég gjarnan um máltilfinninguna.
Oft verða þessi lestrarafglöp kringum vinnutarnir, enda er þá auðvelt að missa sjónar á hæfileikanum til að einbeita sér að bitastæðu efni í frístundum. En þegar rofar til verður þörfin fyrir almennilegan íslenskan texta – og mikið af honum – aðkallandi. Hjá mér felst endurnæring eftir annatíma því gjarnan í tilhneigingu til að týna mér í óralöngum bókum eða bókaflokkum. Þar er Dalalíf eftir Guðrúnu frá Lundi ofarlega á blaði, ég þreytist aldrei á frásagnargáfunni að ekki sé talað um persónusköpununa. Kristín Lafranzdóttir eftir Sigrid Undset er líka meðal þeirra bóka sem koma sterkar inn. Margar persónur og mikið drama í báðum tilfellum. Og óteljandi blaðsíður af fallegu máli.
Það er ekki skilyrði að bækurnar gerist í sveit fyrir langalöngu og textinn sé frekar gamaldags. Langlokudoðrantar á litríku máli eru bara ekki á hverju strái.
Akkúrat núna er lengdin reyndar ekki skilyrði. Ég er til í hvað sem er á íslensku, nýtt eða gamalt, langt eða stutt, bundið eða óbundið mál bara ef það er vel og/eða skemmtilega skrifað. Ég hef augastað á ýmsu en er líka forvitin að heyra hvað aðrir hafa að segja. Ábendingar? Meðmæli? Reynslusögur? Eða bara almennt blaður? Látið ljós ykkar endilega skína í kommentakerfinu.
Stundum uppgötva ég að vikum, jafnvel mánuðum saman hef ég varla lesið almennilega íslensku, a.m.k. ekki langan samfelldan texta. Ekki svo að skilja að ég hafi ekkert lesið nema útlensku. Öðru nær, en allur textinn sem ég les í atvinnuskyni er ekki endilega leiftrandi snilld og þar að auki oftast lesinn með gleraugum sem fókusera á allt sem betur mætti fara. Og svo álpast ég óþarflega oft til að lesa alltof marga slaka reyfara í misgóðum þýðingum þótt ég ætti að vita betur.
Við þessar aðstæður óttast ég gjarnan um máltilfinninguna.
Oft verða þessi lestrarafglöp kringum vinnutarnir, enda er þá auðvelt að missa sjónar á hæfileikanum til að einbeita sér að bitastæðu efni í frístundum. En þegar rofar til verður þörfin fyrir almennilegan íslenskan texta – og mikið af honum – aðkallandi. Hjá mér felst endurnæring eftir annatíma því gjarnan í tilhneigingu til að týna mér í óralöngum bókum eða bókaflokkum. Þar er Dalalíf eftir Guðrúnu frá Lundi ofarlega á blaði, ég þreytist aldrei á frásagnargáfunni að ekki sé talað um persónusköpununa. Kristín Lafranzdóttir eftir Sigrid Undset er líka meðal þeirra bóka sem koma sterkar inn. Margar persónur og mikið drama í báðum tilfellum. Og óteljandi blaðsíður af fallegu máli.
Það er ekki skilyrði að bækurnar gerist í sveit fyrir langalöngu og textinn sé frekar gamaldags. Langlokudoðrantar á litríku máli eru bara ekki á hverju strái.
Akkúrat núna er lengdin reyndar ekki skilyrði. Ég er til í hvað sem er á íslensku, nýtt eða gamalt, langt eða stutt, bundið eða óbundið mál bara ef það er vel og/eða skemmtilega skrifað. Ég hef augastað á ýmsu en er líka forvitin að heyra hvað aðrir hafa að segja. Ábendingar? Meðmæli? Reynslusögur? Eða bara almennt blaður? Látið ljós ykkar endilega skína í kommentakerfinu.
Hvaða fígúrugangur er þetta kona? - Karitasarbækur Kristínar Marju Baldursdóttur
Karitas, án titils og Óreiða á striga eftir Kristínu Marju Baldursdóttur eru miklir doðrantar. Þessar bækur eru svona doðrantar sem mér finnast skemmtilegir. Löng og detaljeruð örlaga- og fjölskyldusaga. Ef ég hugsa bara um ánægjuna af því að innbyrða doðrantinn þá skiptir ekki öllu máli að sagan er svolítið skrítin á köflum, stundum pínu pirrandi, sumir karakterarnir full gróteskir – heildaráhrifin eru þau að mann langar að lesa, og lesa meira. Drekka í sig lýsingar á málverkum, landslagi, innanstokksmunum, tilfinningum, kerlingarugli. Þessar bækur eru alveg gullnáma fyrir bókmenntafræðinga og aðra slíka – hægt að skoða þær útfrá allskyns sjónarhornum og skrifa lærðar greinar um eitt og annað. Til dæmis væri alveg tilvalið að kíkja á hvernig vatn er notað í textanum – sjór, stöðuvötn, baðvatn, þvottavatn, snjór, jökull . . . Karitas í löngum böðum í balanum, endalausir þvottar á fötum og híbýlum, fiskþvottur og svo framvegis.
Persónan Karitas fer frá því að vera að manni finnst hressilegur unglingur með teiknihæfileika og mikla samskiptagáfur yfir í allt að því einrænan snilling sem lifir fyrir listina. Sálarangistin sem tengist listsköpun Karitasar, og þó kannski ekki síður þeim aðstæðum að finnast hún ekki geta sinnt köllun sinni sem skyldi, er áþreifanleg og átakanleg á köflum. Manni finnst eilítið skrítið að hugsa til þess að konan sem berst við myrkið á Borgarfirði eystri sé sú sama Karitas og fór um Akureyri og kjaftaði til kaupmenn, sjómenn, bakara og smiði í leit sinni að mat og húsaskjóli fyrir systkini sín og móður. Og þó, það gæti sjálfsagt breytt stabílasta fólki að vera settur niður á stað á við Borgarfjörð eystri á á fyrri hluta síðustu aldar, eiginmaðurinn í burtu til lengri og skemmri tíma, eignast barn, missa barn, eignast fleiri börn og missa annað þeirra til stjórnsamrar systur. Vera á sama tíma alltaf að reyna að tjá sig í gegnum listina –vanta öll aðföng en geta ekki hætt. Kannski varla nema von að konan hafi allt að því misst vitið. Það er svo reyndar ekki fyrr en löngu löngu síðar í sögunni að Karitas spáir í hvort það geti verið að hún hafi einhverntíman verið tæp á geði en hugsar um leið að sér hafi alltaf sjálfri fundist hún mjög normal og ekkert skilið í dylgjum fólks um geðheilsu sína.
Systir Karitasar, Bjarghildur, er kapituli útaf fyrir sig. Hún er einhvernveginn yfir og allt um kring í sögunni. Vomar yfir á köflum en kemur svo sterk inn þess á milli. Lýsingarnar á Bjarghildi eru þannig að hún verður á köflum allt að því grótesk. Hún er stór og mikil, fer mikinn og rekur þvílíkt myndarbú að annað eins er vandfundið. Vanþóknun hennar á Karitas og því sem hún stendur fyrir er mikil – henni finnst systur sinni ver nær að halda almennilegt heimili eða að minnsta kosti sjá sóma sinn í því að aðstoða þá sem slíkt gera, ekki vera að einhverju dedúi og fígúrugangi meðan almennilegt fólk vinni fyrir sér. Örlög Bjarghildar blessaðrar eru ekki öfundsverð, en hún þjösnast samt áfram fram í rauðan dauðann og ætlaði sér alls ekki að gefast upp fyrir ómyndinni systur sinni – tórði á hjúkrunarheimili á Króknum lengi vel og spurði alltaf reglulega “Er Karitas dauð?”
Karitas tekst, á sinn hátt, að komast þangað sem hún ætlaði sér, þ.e. að öðlast einhverskonar frelsi og lifa á og fyrir list sína. Leiðin er vissulega þyrnum stráð – eða kannski öllu heldur uppfull af kvenlegum skyldum og verkum, eiginmanni, börnum, þvottum, samviskubiti, þjóðfélagsviðhorfi og öllu þessu stússi sem getur gert bestu konum erfitt fyrir. Fyrir hana var ekkert í boði annað en að fara þessa leið – hún varð að brjótast áfram og tjá það sem innra með henni bjó.
8. ágúst 2009
Stieg Stieg Stieg
Fyrstu dagana sem myndin Karlar sem hata konur var sýnd á Íslandi fóru yfir tíuþúsund manneskjur í bíó til að sjá hana og ég er ein þeirra. Ég er ekki nema mátulega hrifin af myndinni, sé eiginlega smá eftir að hafa ekki hlaðið henni niður ólöglega og sent Evu Gabrielsson, sambýliskonu Stiegs heitins Larssons, pening í pósti fyrir. Allir sem hafa séð heimildarmyndina um Stieg og Millenium-fyrirbærið vita hvers vegna mann langar lítið að styrkja erfingjana. En hvað sem því líður þá halda bækurnar um Mikael Blomqvist og Lisbeth Salander áfram að seljast og von er á mynd númer tvö í haust, hún á örugglega eftir að slá í gegn líka og sömuleiðis sú þriðja.Fyrr í sumar fékk Stieg Larsson bresk bókmenntaverðlaun fyrir Karla sem hata konur. Bókin, sem á ensku kallast The girl with the dragon tattoo, fékk British Book Awards sem glæpasaga ársins. Meðal annarra British Book Awards-verðlaunahafa er Barack Obama sem fékk viðurkenningu fyrir æskuminningarnar Dreams from my father.
Danska forlagið Modtryk, sem gefur út bækur Stiegs, græðir auðvitað á tá og fingri enda hafa 1,3 milljónir eintaka af bókum hans selst á dönsku. Politiken hafði það eftir forleggjaranum um daginn að gróðinn væri svo mikill að forlagið ætlaði að stofna sérstakt barnabókasysturforlag og nota hluta af millenium-peningunum til að gefa út barnabækur. Gott mál!

Og nú eru víst þrjár bækur UM Stieg Larsson á leiðinni og margir bíða áreiðanlega spenntir eftir þeim. Blaðamaðurinn og rithöfundurinn Kurdo Baksi (hann kemur fyrir í eigin persónu í þriðju bókinni) vinnur að bók sem á að koma fljótlega út hjá Norstedts í Svíþjóð. Sú bók hefur vinnuheitið Vinur minn Stieg. Þar segir höfundurinn frá góðum og slæmum hliðum Stiegs og langvarandi vináttu þeirra tveggja. Forleggjari bókaforlagsins Ordfront, Jan-Erik Pettersson, vinnur líka að bók um Stieg Larsson, það verk á að vera hefðbundin ævisaga byggð á heimildum. Loks er sambýliskonan, Eva Gabrielsson, sem fær ekki krónu af öllum peningunum sem flæða inn, líka að skrifa bók en hún vill ekki ræða hana í bili.
28. júlí 2009
Freydís í bókahillunni
Og enn berast okkur bréf og svo dásamlega fallegar myndir að hörðustu töffarar klökkna.
Sælar dömur!
Bókahillusyrpan ykkar er ákaflega skemmtileg. Hér er svolítið spin á hana: Við hjónin eigum bæði við það að stríða að kunna okkur ekki hóf þegar kemur að bókasöfnun (enda eigum við bæði starfsferla að baki á bókasöfnum) og þegar fór að örla á erfingja varð ljóst að eitthvað varð undan að láta til þess að barnunginn kæmist fyrir á heimilinu. Í stað þess að fækka bókum brugðum við á það ráð, eins og sönnum bókafíklum sæmir, að auka frekar hillupláss. Það tókst naumlega í tæka tíð og hálfum mánuði fyrir fæðingu barnsins voru komnar upp þessar fínu veggföstu hillur frá gólfi upp í loft með innbyggðum ljósum eins og hjá fínu fólki.
Þegar barnið var vikugamalt fengum við svo ljósmyndara í heimsókn til að festa afkvæmið undursamlega á filmu - www.gudbjorg.is - og hún sá strax möguleika á því að nýta hilluna fínu við myndatökurnar. Hér er afraksturinn:
Vikugömul Freydís í fornbókmenntunum (athugið að barnið er stafrófsraðað - Flateyjarbók, Freydís, Grágás) og vikugömul Freydís í bókmenntafræðinni.
Mbk,
Dúnja
Enn af bókahillum - bækur eftir litum
Lesendur síðunnar halda áfram að kæta okkur og gleðja með bréfum og myndum af bókahillunum sínum. Við erum að sjálfsögðu afar ánægðar með þetta. Þið sem eruð í stuði megið gjarna senda okkur línu á bokvit@gmail.com.
Hér fyrir neðan er nýjasta bréfið og myndir fylgja líka :)
Ég uppgötvaði nýlega síðuna ykkar og núna er ég orðinn eldheitur aðdáandi sem fær gleðifiðring í magann þegar nýtt efni birtist. Litabækurnar þekki ég ágætlega en eins og Eiríkur Örn hef ég skoðað "bókahillan mín" dálkinn í Lesbókinni og án þess að segja nokkrum frá því látið mig dreyma um að sýna mína.
Þegar ég flutti inn í íbúðina fyrir 3 árum var svart og hvítt allsráðandi í innlit/útlit og þar sem ég er með eindæmum áhrifagjörn kona ákvað ég að lakka hillurnar háglanshvítar. En af því að ég vissi að svarthvíta myndi líða hjá á einni mínútu ákvað ég að mála vegginn á bakvið ekki svartan þó ég óskaði einskis heitar. Hann er hins vegar dökkbrúnn og þegar ég opnaði málningardósina varð ég að passa mig að hella málningunni ekki út á ís því hún var alveg eins og súkkulaðisósa.
Hillurnar eru vel á minnst vínkassar úr tré sem ég fékk gefins í ríkinu og skrúfaði beint í vegginn. (Ég var á undan Fótógrafí svo því sé líka haldið til haga. (ekki það að ég sé að springa úr hégóma))
Litaflokkunarþemað er svo þjófstolið frá Tinnu vinkonu minni sem þjófstal því úr eldgömlu tölublaði Húsa og híbýla en mér finnst það smellpassa í hillurnar góðu. Það er eitthvað svo ótrúlega frelsandi að reyna ekki einusinni að finna system heldur líta bara á lit á kili. Þetta er líka svo ótrúlega yfirborðskennt og dásamlegt.
Svörtu og hvítu bækurnar enduðu uppi á svefnlofti, bæði af því að það var ekki pláss fyrir allar og vegna þess að þar fékk ég útrás fyrir svart/hvítu áráttuna. Blessunarlega gerði ég það ekki annarsstaðar því ég gubba ef ég sé fleira svart og hvítt.
Kærustu kveðjur
Fífa
26. júlí 2009
Landnemabókmenntir
Sem barn las ég um Láru litlu Ingalls og ævintýri hennar á gresjunni. Sjónvarpsþættirnir Húsið á sléttunni voru svo sýndir á Rúv og það var hart hjarta sem ekki bifaðist með sorgum og sigrum Ingalls fjölskyldunnar þar sem þau reyndu að temja bandaríska náttúru um miðbik 19. aldar. Bækurnar og enn frekar þættirnir voru sveipuð rómantískum blæ og heimurinn sem þau lýstu var einfaldur og skýr. Ingalls fjölskyldan var góð og sannkristin en illskan birtist helst í andstyggilegu kaupmannsdótturinni Nell sem og hinum óblíðu náttúruöflum. Alltaf þegar maður hélt að nú gæti Michael Landon glaður leikið á fiðluna og Lára fengið nýja skó fyrir veturinn kom uppskerubrestur – ef ekki þurrkur þá engisprettufaraldur. Sögurnar af Ingalls fjölskyldunni höfðu það þó fram yfir margar landnemasögur að þær voru byggðar á raunverulegum endurminningum Láru – vissulega sveipaðar ljósrauðum bjarma en engu að síður heimild um hversu erfitt lífið á gresjunni var.Nýverið hef ég svo lesið tvær mjög ólíkar frásagnir af landnemum. Sú fyrri er My Ántonia eftir Willa Cather. Hún kom út árið 1918 en fjallar um landnema í Nebraska um miðja 19. öldina. Hér eru langar og ljóðrænar lýsingar á engjum, sólsetrum og eplabökum en líka langir, kaldir vetur – hungur og sjálfsmorð. Með öðrum orðum er rómantíkin tempruð með brauðstriti og alltaf þegar maður er farinn að óska sér á sléttur Nebraska kemur einhver kona arkandi með þvottakörfu og blæðandi fingur.
Sögumaður lítur um öxl á uppvaxtarár sín í sveitinni og rifjar upp minningar um jafnöldru sína – Ántoniu. Bókin er óvenjuleg (sérstaklega miðað við ritunartíma) fyrir það að fjalla um fátæka innflytjendur og aðallega konur. Hér kynnumst við dönskum þvottastúlkum, rússneskum veiðimönnum og bláfátækri fjölskyldu frá Bóhemiu (síðar Tékkoslovakíu...síðar Tékklandi). Sumir voru að flýja erfiðar aðstæður heima fyrir en margir voru vel stöndugir í heimalandinu þegar ævintýraþráin rak þá að heiman. Örlögin sem biðu þeirra í nýja landinu voru svo sannarlega ekki alltaf blíð. Cather kynnir okkur bæði fyrir rússanum sem sveltur í kofanum sínum sem og hinni skandinavísku Lenu sem öllum að óvörum verður efnaður kjólameistari. Ántonia endar sem bláfátæk tíu eða ellefu barna móðir eftir heilmiklar hrakningar en hún er þó hamingjusöm þegar sögumaður skilur við hana...eins gott að vera nægjusamur á sléttunni...
Í The View from Castle Rock rekur Alice Munro sögu forfeðra sinni sem fóru með skipi frá Skotlandi til Kanada um miðja 19. öldina og áttu ekki sjö dagana sæla. Munro er ekki mikið fyrir rómantík og rósrauð gleraugu og spurning hvort er miskunnarlausara í meðförum hennar – náttúran eða fólkið... Bókin hefst á frásagnarbrotum um langlangafa og langömmur en eftir því sem árin líða þrengist hringurinn um Munro sjálfa – eða í öllu falli skáldaða útgáfu af henni. Stíll Munro er fjarlægur svo þótt hún lýsi hörmulegum atburðum; ástvinamissi, heilsubresti og barnadauða þá tekst henni einhvern veginn að hnýta það saman við stærra samhengi svo lesandanum verður ljóst að þótt þetta eða hitt sé vissulega sorglegt þá er það ekki dramatískur harmleikur heldur bara lífið. Þetta gerir atburðina ekki beint léttvægari – en kannski lífið þungbærara...En þótt Munro sé ekki feel good höfundur er hún oft mjög fyndin (á þurran hátt) og húmorinn ber mann í gegnum vonleysislegan heiminn sem hún lýsir.
Þessar bækur eru ekki beinlínis tæmandi heimild um landnema 19. aldar en það virðist nokkuð ljóst að landnámið var ekki tekið út með sældinni og sennilega hefur „Grenjað á gresjunni“ verið réttnefni eftir allt saman...
24. júlí 2009
Skýjað og dálítil súld en sumstaðar þokubakkar...

Til er sport sem á ensku kallast cloudspotting (skýjaskoðun?). Um sportið hafa verið skrifaðar bækur og félög stofnuð til heiðurs því. Dýrkun sólarinnar er stórhættulegt sport eins og allir vita, hún veldur krabbameini, stuðlar að ranghugmyndum ( t.d. um að dökkbrún og leðurkennd húð fari vel með hvítum strípum og tribal húðflúrum) og svo eykur hún auðvitað leti okkar hér á norðurhjaranum sem nennum ekki að vinna þegar sólin skín.
Bókasíða The Guardian býður upp á fagurt myndband þar sem Gavin Pretor-Pinney, höfundur bóka á borð við The Cloudspotter's Guide horfir til himins.
22. júlí 2009
Klósettbókahillur Kristínar Parísardömu
Ég bý, ásamt eiginmanni og tveimur börnum, í 69 m2 íbúð í úthverfi nálægt París. Þegar við fluttum í þessa íbúð fyrir fimm árum síðan, þurftum við heldur betur að grisja bókaeign okkar, aðallega vegna þess að í íbúðinni er ekkert sérlega mikið af veggjaplássi fyrir bókahillur. Við vorum snögg að sjá möguleikann á að koma dágóðu magni af bókum fyrir á klósettinu, en í Frakklandi tíðkast það að skipta baðherberginu í tvö aðskilin svæði, það þykir ekki fínt að ganga örna sinna og þrífa sig í sama rýminu. Þess vegna er klósettið ekki rakt herbergi og algengt í smáum íbúðum að nýta það sem geymslupláss líka.
Sakir þrengsla var tilvalið að láta saga mjóar hillur og koma vasabrotsbókunum okkar þarna upp á vegginn vinstra megin. Við vorum ægilega hörð og gáfum frá okkur gífurlegt magn af kiljum, en berjumst því miður bæði vonlausri baráttu gegn söfnunaráráttu og ég efast ekki um að megnið af þessum bókum verða ekki teknar úr hillunum aftur nema ef ég ákveð að ég neyðist til þess þegar ég mála næst - sem átti að vera í fyrrasumar, en framkvæmdin strandaði einmitt á þessari úlfakreppu, þ.e. hvort ég ætti að mála í kringum bækurnar eða ekki.
Þarna kennir ýmissa grasa, allt frá léttum reyfurum upp í dýrindis skáldsögur og ljóð, heimspekirit, sagnfræði og annað gáfulegt. Þessi flokkun einkennir reyndar allar bókahillur heimilisins, það er frekar raðað eftir stærð og útgáfum en í stafrófsröð eða eftir efni, einfaldlega vegna þess að þannig kemst meira fyrir. Þessar klósetthillur eru einu sérsmíðuðu hillurnar okkar, aðrir bókaskápar koma úr IKEA, utan einn smáan sem er úr búi langömmu minnar.
Neðsta hillan er eflaust sú sem mesta hreyfing er í, þar eru nokkrar bækur sem ég glugga reglulega í þegar klósettferðin vill verða löng og er ég nokkuð viss um að fleiri fari eins að, þó ekki minnist ég þess að það hafi verið rætt, þó heimilismeðlimir eigi það reyndar til að missa sig í einum of djúpar samræður um klósettferðir.
Ég er til dæmis búin að lesa undanfarið ár aftur og aftur á brotakenndan hátt Dúfuna eftir Patrick Süskind og hef verið að glugga hér og hvar í Stefnumót í Dublin eftir Þráinn Bertelsson, bók sem mér var gefin þegar ég lagði af stað til Parísar fyrir tuttugu árum til að búa þar og skipar því sérstakan sess í hjarta mínu. Þegar ég vil ekki ílengjast um of, gríp ég einhverja þunga heimspekibók frá manninum mínum og voilà, það virkar alltaf.
Í hillunum til hægri, sem eru dýpri vegna þess að þær falla inn í hið undarlega holrúm sem var þarna fyrir, voru vídeóspólur safnarans mannsins míns. Þær eru að hverfa, hann hefur verið að færa þær á stafrænt form og áttaði sig vitanlega í leiðinni á því að megnið mátti nú bara fara beint í ruslið. Í stað vídeóspólanna hefur plássið verið tekið undir bækur sem hann hefur til sölu á netinu, Arnaud er nefnilega bóksali. Hann kaupir bækur fyrir slikk á ókristilegum tíma á flóamörkuðum og í litlum rykugum holum í ytri hverfum borgarinnar og selur þær svo á mismiklum okurprís á ebay og priceminister og græðir á tá og fingri. Reyndar ekki nóg til að kaupa handa mér húsið með stóru bóka-, koníaks- og vindlastofunni sem mig dreymir um að eignast einhvern daginn, en nóg til að börnin okkar eru aldrei svöng þó að tekjulindin mín, íslenskir ferðalangar í Parísarheimsókn, sé í smá þurrð þessa dagana.
Reykjavík, 20. júlí 2009,
Kristín Jónsdóttir.
20. júlí 2009
Frank McCourt er dáinn
Í dag, þegar nákvæmlega fjörutíu ár eru síðan Buzz Aldrin og Neil Armstrong skildu fyrstir manna eftir sig fótspor í auðninni á tunglinu, segja bókmenntasíður víðsvegar frá því að írski rithöfundurinn Frank McCourt hafið hafi dáið í gær í New York.Frank McCourt er einn þó nokkurra írskra höfunda sem hafa glatt mig með verkum sínum, en bækur hans um æskuárin í Limerick og lífið í New York gleypti ég fyrir nokkrum árum (og þegar ég var búin með pakkann las ég bók eftir bróður hans, Malachy, sem fjallar líka um uppvöxt þeirra bræðra).
Frank McCourt var ekki einn þeirra sem kölluðu sig skáld frá menntaskólaárunum, fyrsta bók hans kom út 1996 (Aska Angelu) þegar hann var hátt á sjötugsaldri. Þar segir hann frá æsku sinni, hann var elstur sjö barna úr bláfátækri fjölskyldu þar sem drykkfelldur faðirinn stakk á endanum af. Fjögur barnanna lifðu og Frank komst á unglingsárum til Ameríku þar sem hann aflaði sér menntunar og gerðist kennari, hann skrifaði um kennarastarfið í bókinni Teacher Man. Fyrir Ösku Angelu fékk McCourt Pulitzerverðlaunin og bókin var kvikmynduð með Emily Watson og Robert Carlyle í hlutverkum foreldranna. Þá mynd hef ég aldrei lagt í að sjá (ég get lesið vel skrifaða texta um illa meðferð á fólki en er of mikill aumingi til að þola svoleiðis bíómyndir) svo ekki veit ég hvernig hún er. Framhald Ösku Angelu ('Tis', Alveg dýrlegt land á íslensku) kom nokkrum árum síðar og það er frábær bók (eins og allt sem ég hef lesið eftir McCourt, bækurnar hans eru fjórar).
Frank McCourt var fæddur 19. ágúst 1930 og banamein hans var, að sögn New York Times, húðkrabbi.
17. júlí 2009
Lifað og leikið - upphaf garðræktar Reykvíkinga
Í ævisögu sinni Lifað og leikið sem kom út árið 1949, rekur leikkonan Frú Eufemia Indriðadóttir Waage minningar sínar. Hún var fædd á Laugavegi 5 árið 1881 og ólst upp og bjó alla tíð í Reykjavík en Eufemia dó árið 1960. Bókin er ágætislesning um bæjarbrag og lifnaðarhætti í Reykjavík á uppvaxtarárum Eufemiu á áratugunum í kringum aldamótin 1900 og þar má meðal annars lesa um matjurtagarða bæjarbúa, en menn voru komnir með kálgarða hér og þar í Reykjavík fyrir hátt í 130 árum. Meðal annars segir Eufemia matjurtagarða hafa verið á Tjarnarbakkanum vestanmegin. Hún bjó fyrstu æviárin við Tjarnargötu 3, mér skilst að húsið hafi staðið einhversstaðar við horn Vonarstrætis, en Tjörnin náði þá uppundir Alþingishús og Dómkirkju að norðan. Fjölskyldan átti stóran matjurtagarð og segir hún marga krakka hafa öfundað þau af honum.Amma Eufemiu í móðurætt og ættingjar hennar höfðu mikinn áhuga á garðrækt. Sú kona var aldönsk í aðra ættina og hálfdönsk í hina og segir í bókinni frá því að þegar amman hitti systurson sinn, Lárus Sveinbjörnsson á götu á sumrin, en sá var einnig mikið fyrir garðyrkju, þá spurðu þau hvort annað "Hvernig er sprottið hjá þér tanta mín?" og "Hvernig er sprottið hjá þér Lárus minn?" Sömu spurningu lögðu móðir Eufemiu, Marta Pétursdóttir og systur hennar, hver fyrir aðra þegar þær hittust á förnum vegi. Það grænmeti sem ræktað var á þessum árum í Reykjavík var aðallega kartöflur, rófur, gulrætur og næpur, en hvítkál og blómkál varð ekki algengt fyrr en seinna.
Meðal annarra garðræktenda í Reykjavík á þessum tímum, sem Eufemia nefnir, eru Pétur biskup Pétursson sem var giftur Sigríði Bogadóttur, en hún var mikil garðyrkjukona og stóð hús þeirra þar sem Reykjavíkur Apótek var síðar byggt á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis (núna er einhver veitingastaður þar). Einnig nefnir Eufemia Schierbeck landlækni sem stundaði margvíslegar ræktunartilraunir og var ásamt Árna Thorsteinssyni landfógeta hvatamaður að stofnun Garðyrkjufélags Íslands árið 1885.

Í ársriti Garðyrkjufélagsins 1988 er grein eftir Ingólf Davíðsson þar sem hann segir frá garði Árna landfógeta, en sá garður er nú bakgarður Hressingarskálans við Austurstræti 20. Þennan garð segir Ingólfur vera aldursforseta reykvískra skrúðgarða sem enn eru í ræktun. Garðinum var komið upp á árunum 1862–1865. Árni fógeti keypti húsið árið 1861, kálgarður var þar fyrir en jarðvegurinn ófrjór svo hann var bættur og plöntur sem ekki hafði verið plantað á Íslandi áður voru settar niður, en einnig algengar garðjurtir og skrúðplöntur. Mikil gróska og fjölbreytni var lengi í Landfógetagarðinum og mun hann hafa verið mörgum Reykvíkingum til hvatningar og eftirbreytni í garðræktinni. Húsið var í eigu ættingja Árna til 1930, þá keypti KFUM það en 1932 hófst rekstur gamla Hressingarskálans sem var ekki síst vinsæll vegna garðsins þar sem sitja mátti og borða hnallþórur og drekka te undir trjákrónum þegar veður leyfði. Í nýlegu skipulagi er gert ráð fyrir að Landfógetagarðurinn verði gerður aðgengilegur fyrir almenning. Þess er óskandi að það skipulag standist.
15. júlí 2009
Sumar bækur sökka
Carlos Ruiz Zafón. The Angel's Game. Weidenfeld & Nicolson: London, 2009.Á síðustu mánuðum hef ég lesið nokkrar bækur sem ég sé eiginlega eftir að hafa lesið. Hin óbærilega Sjöjungfrun Camillu Läckberg, væmna veimiltítan Tony Parsons og vellan hans My Favourite Wife, hryllingshroðbjóðurinn um Kevin litla eftir Lionel Shriver (sem ég skipti reyndar um skoðun á, ég gat ekki hætt að hugsa um Kevin og endaði á að lesa bókina aftur – það hljóta að teljast meðmæli) og núna síðast The Angel’s Game eftir Carlos Ruiz Zafón. Mínir pistlar hér eru því meira víti til varnaðar frekar en lofrullur um góðar bókmenntir. Stundum er maður bara óheppinn í bókakaupunum.
Árið 2001 skrifaði hinn spænski Zafón ágæta bók sem heitir The Shadow of the Wind, hans fyrsta skáldsaga ætluð fullorðnum. Hún varð mikil metsölubók, sérstaklega í Evrópu og sópaði til sín einhverjum fansí verðlaunum. Tómas R. Einarsson þýddi hana afar lipurlega á íslensku, Skuggi vindsins kom út 2005, ári síðar í kilju. Klisjukennd á köflum, en mátti fyllilega afsaka því sagan var nokkuð góð og grípandi. Hinn ungi Daníel Sempere er aðalsöguhetjan, en hann elst upp hjá föður sínum í Barcelona á valdaskeiði Francos. Borgin stendur algerlega undir því að vera ein aðalpersóna bókarinnar og það er erfitt að heillast ekki smávegis af Skugga vindsins.* Þess vegna keypti ég vonglöð í hjarta bókina sem margir hafa beðið eftir, The Angel´s Game.
Það er eins og helvítið hann Paulo Coehlo hafi skrifað þessi ósköp. Ég játa hérmeð að síðustu 50 blaðsíðurnar eru ólesnar, ég gat ekki meira af tilgerðarlegustu bók í heimi. Kannski eru síðustu síðurnar frábærar en ég leyfi mér að efast. Í vanmáttugri tilraun til að halda í þó þann sjarma sem fyrri bókin hafði reynir Zafón að troða inn aukapersónum úr Skugga vindsins og einnig kemur kirkjugarður hinna týndu bóka fyrir í þessari. Gömlu persónurnar flækjast eiginlega bara fyrir og verða hálf litlausar. Plottið er frekar samhengislaust og nýjar persónur bókarinnar einkar óminnistæðar. Tilgerðin svífur yfir vötnum og hver kafli endar á spennuþrungnu kommenti úr huga aðalsöguhetjunnar; „Only then did I realise that during the entire conversation I had not once seen him blink” (bls. 75), „Only then did I realise that I was exhausted and my whole body was aching“ (bls. 177), „An icy breeze touched my face, bringing with it the lost breath of great expectations“ (bls. 116), „Then all was darkness“ (bls. 68) og uppáhaldið mitt: „Go away, far away. This city is damned. Damned.“ (bls. 240).
Ég tæki ofan fyrir íslenskum bókaútgefendum ef þeir gæfu einfaldlega ekki út þessi ósköp en ég trúi ekki öðru en að hún komi út um næstu jól. The Angel’s Game (meira að segja titilinn er vemmilegur) mun nefnilega seljast á orðspori fyrri bókarinnar en lesendur mega búast við óbragði í munni eftir lesturinn – svo ég endi þetta þus á smá klisju.
*(00.42) Skuggi vindsins fékk þó ekki mjög góðan dóm á Bókabloggi Sigga!
14. júlí 2009
Blóðdropinn
Líkt og kemur fram á Bókmenntavef Borgarbókasafnsins hlaut Ævar Örn Jósepsson Blóðdropann, glæpasagnaverðlaun Hins íslenska glæpafélags, fyrir örfáum dögum. Blóðdropann hlaut höfundurinn fyrir bókina Land tækifæranna og verður bókin einnig framlag Íslands til Glerlykilsins árið 2010. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráherra sem einnig sat í dómnefndinni, afhenti Ævari verðlaunin.Nokkrar druslubókadömur eru miklir aðdáendur glæpasagna Ævars Arnar og finnst Land tækifæranna þrusufín bók þar sem ekki örlar á neinu blóðleysi. Við höldum öll með Ævari Erni þegar kemur að því að Glerlykillinn verði afhentur á næsta ári.
13. júlí 2009
Sumarbók Tove Jansson
Margir vita ekki að Tove Jansson, höfundur bókanna um Múmínálfana og alla furðulegu vini þeirra, skrifaði ekki bara bækur fyrir börn (reyndar hugsaði hún Múmínálfabækurnar ekki síður sem lesningu fyrir fullorðna). Hún skrifaði líka um tug ágætra bóka fyrir fullorðna, sem hafa fallið í skuggann vegna gífurlegra vinsælda Múmínálfabókanna. Ég held mjög mikið upp á litla bók eftir Tove Jansson sem heitir Sommarboken, eða Sumarbókin og kom fyrst út árið 1972. Sumarbókin fjallar um hina sex ára gömlu Soffíu og fjörgamla ömmu hennar, en þær dvelja saman um sumar á pínulítilli vindasamri eyju. Báðar eru þær sérvitrar með afbrigðum og skapmiklar líka og á ýmsu gengur í samskiptunum. Stelpan hefur misst mömmu sína og amman og hún ræða saman um hitt og þetta sem tengist lífi og dauða, meðal annars ber á góma hvort það séu hugsanlega til maurar í himnaríki. Þær teikna saman og búa til skúlptúra og endurbyggja Feneyjar í drullupolli og þær lenda líka í miklu ofviðri. Samtöl Soffíu og ömmu hennar eru stórskemmtileg og minna oft á samtölin í Múmínálfabókunum. Barnið spyr sakleysislegra spurninga og amman svarar, en hún er húmoristi og kann að leika sér og sprella. Þannig er heilmikil "Múmínálfastemning" í Sumarbókinni, Amman á ýmislegt sameiginlegt með Múmínmömmu. Hún fylgist með barninu eins og verndarengill með annað augað opið, en leyfir því þó algerlega að ráða för, gera mistök og þroskast á eigin forsendum. Sú gamla á ekki langt eftir en hún hefur ekki mjög miklar áhyggjur af dauðastundinni. Henni finnst verra að hún man ekki nógu vel hvernig tilfinning það er að sofa í tjaldi og hún sér eftir að hafa ekki sagt gömlum kærasta að henni hafi aldrei þótt sjerrí góður drykkur.
Milli þess sem Soffía vex og amman eldist og þær leika sér saman, spjalla þær á heimspekilegum nótum. Þær ræða um hvernig það sé að vera maðkur, sem er þræddur uppá öngul eða höggvinn í sundur með skóflu, þær ræða um guð og himnaríki og helvíti og hvort það síðastnefnda sé virkilega til. Soffía spyr hvernig guð geti eiginlega fylgst með öllum sem biðja bænirnar sínar á sama tíma og amman reynir að snúa sig útúr spurningunni og segir að guð sé bara svo hrikalega klár. En barnið sættir sig ekki við þetta svar og endurtekur spurninguna og þá segir amman að guð almáttugur sé með fjölmarga ritara í vinnu sem aðstoði hann við að fylgjast með þeim sem biðja til hans.
Hver kafli Sumarbókarinnar gæti staðið einn sem sérstök saga og hver setning er einföld en textinn er djúpur, allt er yfirvegað og engu ofaukið. Ýmislegt eftir Gyrði Elíasson minnir mig sterklega á Sumarbókina, ég þori næstum að vaða blint í sjóinn og veðja vinstri handleggnum upp á að Gyrðir hefur einhvern tíma lesið þessa bók.
Sumarbókin hefur því miður aldrei verið þýdd á íslensku fremur en mörg önnur verk Tove Jansson en hún er til á Norðurlandamálunum, ensku og fjölmörgum öðrum tungum fyrir þá sem hafa áhuga.
11. júlí 2009
Hvað lesið þið á klósettinu?
Pistilinn hér að neðan sendi Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir, gestapenni Druslubókabloggsins, okkur og við kunnum henni ástarþakkir fyrir.
Allir kannast nú við klósettlitteratúr. En það kallast þær bókmenntir sem fólk tekur með sér á klósettið, eða geymir jafnvel þar og grípur til þegar það vill gera stykki sín (hefur e.t.v. harðlífi eða vill hreinlega bara sitja einhvers staðar í friði frá dagsins amstri).
Afi minn setti aldrei saman stökur nema hann færi á klósettið að "gera númer tvö" (eins og Ameríkanarnir segja, en afi kallaði einfaldlega "að skíta"). Sumir ráða krossgátur eða sudoku, en algengast held ég að sé að fólk lesi, ef það vill gera eitthvað annað en að stara út í loftið á meðan það sinnir kalli náttúrunnar.
Þórbergur las Gamlatestamentið, að mig minnir. Vinur minn einn sagði mér frá því að Bónus-ljóð Andra Snæs hefðu verið á klósettinu hjá honum mánuðum saman, en alltaf væri samt hægt að skemmta sér yfir ljóðunum og að þau liðkuðu fyrir hægðum frekar en hitt. Höfuðbókmenntagyðja þessarar síðu, Þórdís Gísladóttir, vitnaði síðast í gær í garðyrkjubók sem hún hafði lesið á klósettinu áður en hún greip þríforkinn og lét hann vaða í safnhauginn.
Kinnroðalaust segi ég frá því að síðustu vikur hefur bláa Skólaljóðabókin haft fastan sess á baðvigtinni minni og ég gríp gjarnan til hennar þegar ég sest á skálina. Nokkur ættjarðarljóð, meitluð æviágrip skáldanna og hringvöðvinn gleymir stund og stað:
Þrútið var loft og þungur sjór,
þokudrungað vor.
Það var hann Eggert Ólafsson,
hann ýtti frá kaldri skor.
Þrásetur á klósettinu eru ekki hollar og því verður lesefnið að vera hæfilega leiðinlegt, en samt ekki um of. Gjarnan má það líka vera í stuttum köflum svo að maður geti auðveldlega slitið sig frá því. Tilvitnanabækur hafa oft átt samastað á klósettinu hjá mér. Jafnvel þegar maður er bara að pissa, þá er hægt að grípa þrjár, fjórar góðar tilvitnanir og stökkva síðan glaðbeittur fram með tóma blöðru. Ef maður fer t.d. með ofurspennandi skáldsögu á klósettið getur það hent, sem henti mann skáldsins Hildar Lilliendahl um daginn, en hann gleymdi sér í sudoku og kom ekki fram af náðhúsinu fyrr en spúsa hans hafði hringt í björgunarsveitirnar. Sudoku eða spennusögur, það getur komið fyrir að maður sitji allt of lengi á skálinni og miklu lengur en maður á þangað erindi. Þá staulast maður kannski fram eftir klukkutíma, knýttur í herðum, með náladofa og byrjandi gyllinæð. Og ekki er það eftirsóknarvert.
En hvað segja lesendur? Hvaða bækur er best að lesa á salerninu? Hvaða bækur lesið þið?
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir.
10. júlí 2009
August Strindberg og garðræktin
Rithöfundurinn August Strindberg (1849-1912) var eirðarlaus maður, sífellt á ferð og flugi og átti heimili á óteljandi stöðum. Flestir þekkja vísast Strindberg aðeins af ritstörfunum, en hann var líka mikill áhugmaður um garðrækt og hvar sem hann dvaldi reyndi hann alltaf að koma sér upp skika sem hann gat ræktað. Væri garðskiki ekki tiltækur var notast við blómapotta. Catharina Söderbergh hefur skrifað tvær bækur um Strindberg og hvorug þeirra er tileinkuð ritverkum hans. Fyrri bókin fjallar um áhuga rithöfundarins á mat og kallast bókin Till bords med Strindberg (1998) en sú síðari heitir Strindberg som trädgårdsmästare (2000) og eins og nafnið gefur til kynna er garðræktaráhugi hans til umfjöllunar þar.Strindberg var sífellt ræktandi. Hann hlúði svo vel að plöntunum sínum að eftir að útgefandi hans, Karl Otto Bonnier, heimsótti hann árið 1883 skrifaði Bonnier:
Til að byrja með sýndi Strindberg mér garðræktina sína, aðallega þó ætiþistlana, sem ég fékk að njóta nokkrum tímum siðar. Hið allra fínasta var þó melónureitur, sem hann hafði komið sér upp við húsvegginn, þar sem sólin bakaði hann vel. Hann hafði meiri áhyggjur af melónunum sínum en ljóðabókunum sínum.
Í bók sinni Blomstermålningar segir Strindberg frá því hvernig hann í lok vetrar sáir fræjum í litla potta heima hjá sér í Stokkhólmi. Hann nefnir blómkál og salat, melónur og gúrkur og ýmis sumarblóm. Í maí voru síðan smáplönturnar fluttar út í litla eyju í Skerjagarðinum fyrir utan Stokkhólm, þar sem Strindberg hafði á leigu sumarhús í sjö sumur á árunum milli 1880 og 1890. Þá var hann giftur Siri Von Essen og þau áttu saman þrjú börn. Eyjan sem um ræðir heitir Kymendö og Strindberg fannst hann vera kominn til Paradísar þegar hann kom þangað í fysta skipti. Á eyjunni búa nú um fimmtán manns, en þangað sótti Strindberg sér innblástur í bók sína Hemsöborna og notaði lífið og fólkið á eyjunni sem fyrirmyndir. Strindberg sá ekki eintóma fegurð í mannlífinu á eyjunni og eyjabúar voru víst margir hverjir ekki par hrifnir af samsetningunni og hvernig þeim var lýst. Á þessari fallegu skerjagarðseyju er hægt að ganga á engjum og í skógum og þar er ennþá til sýnis kofinn sem Strindberg notaði til skrifta. Eins og sjá má á myndinni hér fyrir ofan er kofinn ekki stærri en útikamar en útsýnið til hafs bætir víst fullkomlega upp smæðina.
Þegar búið var að ferja plöntur Strindbergs til eyjarinnar, hófst langt ræktunartímabil. Komið var upp vermireitum og því hefur verið lýst að rithöfundurinn mikli hafi spígsporað um úti í náttúrunni á föðurlandinu einu klæða og pissað í vökvunarkönnuna til að fá gott áburðarvatn. Þennan áburð kallaði Strindberg púrín. Með púríninu vökvaði hann moldina áður en radísum, steinselju og spínati var sáð.
Gúrkurnar voru stolt og uppáhald Strindbergs. Úr litlum reit með 6 gúrkuplöntum, uppskar hann gúrkur frá júlímánuði og langt fram á haust svo dugði til matar handa öllu heimilisfólkinu og vinnuhjúunum og hann átti meira að segja afgang til að salta niður fyrir veturinn. Þrátt fyrir að eyjan sé vindasöm og oft blási þar að norðan tókst karlinum að rækta melónur, ætiþistla og spergil og á suðurvegg sumarhússins hafði hann vínviðarplöntu bundna við stoðir. Þetta sýndi hann forleggjaranum Karli Otto Bonnier með miklu stolti. Eftir að bókin um Hemsöbúana kom út átti höfundurinn illa afturkvæmt til eyjarinnar og var litinn þar hornauga. Um árabil bjó hann í ýmsum löndum í Evrópu og smám saman fór hjónaband hans og Siriar að trosna. Þá komu þau til baka til Svíþjóðar og leigðu sér sér sitthvort húsið á annarri skerjagarðseyju. Sú heitir Runmarö og þar hélt karlinn hélt áfram að rækta. Á Runmarö er ennþá hægt að fá sér kaffibolla undir háum sírenum sem August Strindberg gróðursetti.
8. júlí 2009
Bókabetrekk
Ég var að ljúka við að lesa hnausþykkan doðrant eftir einn af höfundunum sem kemur á Bókmenntahátíð í haust. Það er Norðmaðurinn Johan Harstad sem um ræðir og bókin heitir Buzz Aldrin, hvor ble det av deg i alt mylderet? en ég tók að mér að skrifa smágrein um hana og auk þess ætla ég að ræða við höfundinn og Anne B. Ragde (Berlínaraspirnar) á bókmenntahátíðinni.Bók Johans grípur mig ekkert gríðarlega svona við fyrstu kynni þótt þar sé margt sem hægt er að velta sér uppúr. Á meðan ég melti hana aðeins með mér fór ég að fletta útlenskum blöðum með garðyrkjuþema. Í einu þeirra rakst ég á mynd af áhugaverðu bókaveggfóðri. Hér er kannski hægt að panta sér rúllu ef einhver hefur áhuga.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
