![leyndarmal annarra](https://lh3.googleusercontent.com/blogger_img_proxy/AEn0k_uzaUY9lAZQ6FAOTDRvIKP6pL1DOiax5XeGkiD9vVugfq8r_rDNVWj9JzmL123k3xVS3mnzOLX5uau6cQ7_oeRI975xsQsVIp4RFfZc2WnnmjuVZvpZKKdNhcWXwLOTuVODHIJfyI8=s0-d)
Í fyrradag tók ein þeirra sem halda úti þessari síðu (hún Þórdís) við Bókmenntaverðlaunum Tómasar Guðmundssonar úr hendi borgarstjórans, Jóns Gnarr, fyrir ljóðabókina
Leyndarmál annarra. Bókin, sem hefur að geyma á þriðja tug ljóða og er skreytt að utan með mynstri af veggfóðri sem er í eigu höfundarins, er komin úr prentsmiðju og er á leið í bókabúðir, en það er
Bjartur sem gefur út.
Til þess að fagna útgáfunni verður efnt til útgáfugleði í Eymundsson á Skólavörðustíg
á milli klukkan 17 og 18 föstudaginn 1. október. Þar mun höfundurinn árita bókina ef óskað er og lesa smávegis úr verkinu og boðið verður upp á léttar veitingar.
Allir velkomnir!
1 ummæli:
Góða skemmtun!
Ég verð fjarri góðu gamni - en ég mun samt sjá til þess að mitt eintak verði samviskusamlega áritað af höfundi í fyllingu tímans.
Skrifa ummæli