13. janúar 2015

Kalt í Finnlandi

Um daginn fann ég bók á náttborðinu mínu. Það var nýleg táningabók* eftir finnskan höfund sem heitir Salla Simukka. Bókin heitir Rauð sem blóð, titillinn vísar í ævintýrið um Mjallhvíti og aðalpersónan heitir einmitt Mjallhvít Andersson.

Mjallhvít er menntaskólanemi sem býr ein í pínulítilli íbúð og fljótlega áttar lesandinn sig á því að hún hefur verið lögð í einelti og fer yfirleitt með veggjum í lífinu en sækir samt listasýningar og æfir bardagaíþróttir. Alveg óvart lendir Mjallhvít, sem er áhugaverð týpa sem segist vera „laundóttir Hercule Poirot og Lísbetar Salander“, í æsilegum atburðum sem hefjast á því að hún finnur fullt af nýþvegnum peningaseðlum í myrkraherbergi menntaskólans og þrúgandi blóðlykt liggur í loftinu. Í ljós kemur að yfirstéttarkrakkar í skólanum hafa fundið blóðuga peningana eftir mikið djamm og rugl og þau draga Mjallhvíti óviljuga inn í atburðarás sem er býsna spennandi. Þar koma við sögu rússneskir eiturlyfjasmyglarar sem eru engin lömb að leika sér við og gjörspilltur finnskur lögregluþjónn.

Salla Simukka
Sögusviðið er Tampere í Finnlandi og það er ógeðslega kalt í þessari bók, frostið er að jafnaði mínus tuttugu og fimm gráður og djúpur snjór sem gerir fólki erfitt um vik að fela sig. Rauð sem blóð er fyrsta bókin í þríleik og ég ætla rétt að vona að hinar tvær komi út á íslensku í kjölfarið. Erla E. Völudóttir þýðir bókina úr finnsku yfir á sérlega fína íslensku og ég held að allir sem hafa gaman af að lesa unglingaspennusögur hljóti að kunna að meta þessa bók.

*Ég er ekki viss um að táningabók sé gott orð fyrir svokallaðar Young Adult-bækur því ég held að orðið táningur sé hálfgert fornmál, ég nota það samt.