 |
| Bókakápan er flott. |
Óttulundur, eftir Mörtu Hlín Magnadóttur, er önnur bókin í Rökkurhæðaseríunni (Hildur Knútsdóttir fjallaði um fyrstu bók seríunnar, Rústirnar,
hér). Hún fjallar um hina fimmtán ára gömlu Vigdísi, sem fer að sjá og upplifa undarlega hluti heima hjá ömmu sinni, þar sem hún á sitt annað heimili á meðan móðir hennar er erlendis. Í ofanálag kemst hún smám saman að því að fullorðna fólkið hefur leynt hana einhverju alla hennar ævi og fyllist þá löngunar til að komast að leyndarmálinu og púsla saman brotunum upp á eigin spýtur.