Í sænskum dagblöðum í dag kemur fram að nýjasta bók Kerstin Ekman, Grand final i skojarbranschen, sem kom lítillega við sögu hér, verði fljótlega kvikmynduð. Í sænskum dagblöðum gærdagsins kom fram að bók Åsu Linderborg, sem kom við sögu hér og hér, verði
kvikmynduð á næstunni með Mikael Persbrandt í aðahlutverki. Um daginn frétti ég svo af því að í Svíþjóð sé nú verið að setja upp leikrit eftir bókinni Yarden, sem sem hefur komið hér við sögu og að tónlistin í verkinu verði eftir Sigur Rós. Þetta er svona upphafsútúrdúr til að koma því að hvað við Guðrún Lára erum seigar við að fjalla um funheitt, sænskt efni hér á síðunni.
Efni þessarar færslu er hins vegar Grand final í skojarbranschen eftir Kerstin Ekman. Bókina lauk ég við í gær eftir að hafa eytt töluvert löngum tíma í lesturinn. Það er frekar óvenjulegt að ég sé lengi að lesa bækur, yfirleitt eyði ég ekki tveimur vikum í að lesa eina bók en Grand final i skojarbranschen er löng og ekki fljótlesin. Hún er hins vegar sérlega safarík og með betri bókum sem ég hef lengi komist í. Þessi nýjasta bók Kerstin Ekman kom út á sænsku í fyrra en ég keypti hana í Góða hirðinum í sumar, greinilega ólesna, og kann þeim sem nennti ekki að lesa hana kærar þakkir fyrir að hafa sent hana í nytjagám í Sorpu.
Eins og Guðrún Lára minntist á þegar Tuula Sariola og leigupenninn Ritva voru til umfjöllunar þá minnir bók Kerstin Ekman á þeirra sögu en hún er þó alls ekki byggð á henni, enda byrjaði Kerstin Ekman að skrifa bókina löngu áður en saga Tuulu Sariola varð opinber. Grand final i skojarbranschen er sjálfsævisöguleg skáldsaga og segja má að hún fjalli um bókmenntaheiminn sem höfundurinn hefur lifað í síðustu sex áratugina.
Kerstin Ekman er fædd 1933, menntuð við Uppsalaháskóla og starfaði í kvikmyndabransanum og sem lýðháskólakennari áður en hún gerðist rithöfundur. Ferilinn hóf hún á glæpasögum og þótti endurnýja formið. Árið 1978 var hún valin í Sænsku Akademíuna en hætti að mæta þegar henni þótti samverkamenn sínir þar ekki standa við bakið á Salman Rushdie árið 1989. Því er stóllinn hennar í Akademíunni auður, það er víst ekki hægt að hætta. Wikipedia segir Kerstin Ekman hafa fengið hátt í þrjátíu verðlaun fyrir bækur sínar en eftir hana hafa verið þýddar þrjár bækur á íslensku eftir því sem ég best veit.
