grafin heit
rjúkandi fylgja
og blóðlifrar
í myrku skauti
stjörnurnar opna nálaraugu sín
loka þeim jafnharðan aftur
jafnvel sú birta
er mér of skær
einhver stendur
á hrímfaldi mínum
eitthvað tefur mína för
(skítug klóför
falin í snjónum)
Druslubækur og doðrantar halda áfram að birta viðtöl við ljóðskáld sem gáfu út bækur á síðasta ári. Viðmælandi vikunnar er Guðrún Hannesdóttir og ljóðið berangur sem birtist hér í upphafi er úr hennar fimmtu ljóðabók, Humátt. Bókin kom út hjá Sölku fyrir jól, en fyrir hana var Guðrún tilnefnd til Fjöruverðlaunanna 2016.
Þú gafst út þína fyrstu ljóðabók, Fléttur, árið 2007, og síðan hefur þú gefið út fjórar ljóðabækur í viðbót. Varstu löngu byrjuð að skrifa ljóð þegar Fléttur kom út eða varstu bara að byrja á því þá? Hvernig kom það til?
Ljóðin mín fóru að spretta fram um 2005 þegar ég tók mér hlé frá barnabókaskrifum og myndskreytingum. Öll mín verk verða til af grunsamlegum skorti á ásetningi og umhugsun, eiginlega bara af einskærri ánægju og þörf til að ögra sjálfri mér í laumi.
Að vísu er ég og hef alltaf verið ofurseld orðum, hrynjandi og „anda“ tungumálsins svo ég sé hátíðleg, en ég hafði þá aldrei skrifað ljóð, bara lesið þau svona eins og hver annar. En mér hafði nokkuð lengi ofboðið hvað ég var viss í minni sök um misjafnt ágæti ljóða annarra og hugsaði þá að ég hefði gott af því að reyna sjálf að yrkja, og það varð örlagaríkt, fimm ljóðabækur og sú sjötta á leiðinni, svo ekki leiðist mér þetta! Ég les mikið og skrifa mikið en hugsa ekki um sjálfa mig sem „skáld“, hvað þá „Skáld“, og leiðist heldur öll flokkunarárátta.
Þú ert líka myndlistarmaður og hefur meðal annars myndskreytt bækur sem þú hefur skrifað fyrir börn. Hvernig er það öðruvísi að gera myndir og að gera ljóð? Hvað er það við ljóðformið sem höfðar til þín?
