 |
| Nabokov að störfum |
Margir lesa aðallega þýddar bækur en fæstir velta því sennilega mikið fyrir sér hversu mikil vinna getur legið að baki einni þýddri bók. Margtyngdur höfundur og fiðrildasafnari, Vladimir Nabokov, sagði víst að þýðing væri
the slow journey at night from one village to the next with only a candle for illumination (þýðið þetta ef þið nennið) og margir minni spekingar hafa tjáð sig um þýðingar og haft margar og misjafnar skoðanir.
Ég heyri fólk oft segja að það vilji helst lesa bók á frummálinu (það er að segja ef það er slarkfært í því máli) en ef ég get valið kýs ég sjálf oft að lesa bók á því tungumáli sem ég kann best. Að hluta til má kannski kenna um leti, en ef ég á kost á íslenskri þýðingu sem ég held að sé þokkaleg þá sé ég yfirleitt enga ástæðu til að lesa bók á einhverju máli sem ég kann ekki eins vel og íslensku.