Þessi stíll fannst mér ekki aðlaðandi og upphafið á fyrsta eiginlega bókarkaflanum, stök setning og síðan greinarskil á undan þeirri næstu þótt hún sé í raun beint framhald af þeirri fyrri, gerði mig ekki jákvæðari (ýmsir fleiri kaflar í bókinni byrja á sama hátt):
Trén höfðu fikrað sig nær húsinu.Ég sé engan tilgang með svona greinaskilum annan en tilgerð. Eftir þessa byrjunarörðugleika batnaði ástandið þó mikið og það sem eftir var bókarinnar reyndist textinn oftast kjarnmikill og skemmtilegur aflestrar. Þó birtust öðru hverju heldur væmnar klausur fyrir minn smekk. Sennilega er tilfellið að bókarkápan sé býsna lýsandi fyrir innihaldið.
Leitað hlýjunnar í kuldanum. Sum þeirra teygt greinar sínar upp á veröndina, skriðmispillinn ágengastur, hafði mjakað sér áfram eins og snákur í myrkrinu ...