Sýnir færslur með efnisorðinu læst hliðarlega. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu læst hliðarlega. Sýna allar færslur

20. nóvember 2011

Af stellingum


Þessi kona aðhyllist tæknilegar lausnir

Að lesa uppi í rúmi er góð skemmtun. Að finna sér hina fullkomnu rúmlestrarstellingu er hins vegar flókið mál. Ef leitað er á netinu að "reading in bed posture" eða "position for reading in bed" kemur í ljós að þetta er algengt vandamál og jafnvel hafa verið settar fram tæknilegar lausnir á því, samanber meðfylgjandi mynd af rúmlestrargræju nokkurri. Hér má líka finna stuttan pistil um rúmlestur og athugasemdir lesenda Guardian.