29. ágúst 2011

If you go ...


9 ummæli:

Salka Guðmundsdóttir sagði...

Svo satt, svo satt! Ef einhvern tíma blikka allar viðvörunarbjöllur þá er það við bókleysi.

Þórdís Gísladóttir sagði...

Á tímum kyndilsins hlýtur málið þó að flækjast örlítið.

Kristín Svava sagði...

Önnur samviskuspurning: ef viðkomandi ætti bækur, hversu vondar þyrftu þær að vera til að maður hætti við að sofa hjá honum? Erum við að tala um Coelho komplett?

Erna Erlingsdóttir sagði...

Hmmm, ein Coelho-bók getur verið slys, jafnvel tvær en allt umfram það hljómar eins og ásetningur. Þannig að: Fleiri en tvær bækur eftir hvern eftirtalinna höfunda:
- Paulo Coelho
- Camillu Läckberg
... og hvaða fleiri höfundar eru á haturslista druslubókabloggsins?

Þórdís Gísladóttir sagði...

Allskonar sjálfsrúnk, stjórnunarfræða- og "náðu árangri í lífinu-bækur" og ofnæmisbækur og L.Ron.Hubbard finnst mér voða lítið töff.

Kristín Svava sagði...

Og Hannes Hólmsteinn auðvitað.

Þórdís Gísladóttir sagði...

Þetta fer samt auðvitað allt eftir samhenginu sko. Væntanlega er maður aðeins búin að tala við viðkomandi áður og svona.

Hildur Knútsdóttir sagði...

Þannig að ef þið kæmuð heim til mín þá mynduð þið ekki sofa hjá mér. Ég held nefnilega að ég eigi þrjár eða fjórar bækur eftir Coelho.

En þetta er annars gott að hafa bakvið eyrað, ef maður hefur ekki efni á getnaðarvörn.

Þórdís Gísladóttir sagði...

Ég held samt að fólk skyldi vara sig á að falla fyrir bókahillum. Það getur endað illa.