Fyrir tæpum sex árum síðan kom út í Bretlandi fyrsta bók höfundarins Catherine O'Flynn, What Was Lost. Bókin kom út hjá litlu forlagi í Birmingham - O'Flynn hafði gengið á milli umboðsmanna og forlaga með handritið sitt áður en þau hjá Tindal Street Press tóku hana upp á arma sína. Það er skemmst frá því að segja að skáldsaga þessi var óvænti smellurinn í bresku bókmenntalífi árið 2007; O'Flynn hreppti verðlaun fyrir bestu frumraunina hjá Costa Book Awards og var tilnefnd til Booker-verðlaunanna sem og Orange-verðlaunanna, svo eitthvað sé nefnt. Það hefur væntanlega ekki verið árennilegt fyrir höfundinn að fylgja þessum gríðarlega sökksess eftir, en rúmlega þremur árum eftir útkomu What Was Lost birtist önnur skáldsaga O'Flynn, The News Where You Are. Ég nældi mér í hana í Oxfam á Byres Road í Glasgow nú í haust (mæli með þeirri bókabúð fyrir þá sem koma til Glasgow og hafa gaman af second hand-bókabúðum með góðu úrvali) og las í kjölfarið What Was Lost, sem ég hafði gefið mömmu minni í jólagjöf fyrir mörgum árum og lengi ætlað að lesa sjálf.The News Where You Are er kómískari (á tragíkómískan máta þó) og ekki jafn stingandi sár, en hún er vel skrifuð og aftur þessi sanni strengur í persónunum. Í þetta sinn er aðalpersónan sjónvarpsfréttaþulur að nafni Frank Allcroft. Frank er rúmlega fertugur og hefur alltaf upplifað sig sem einhvers konar miðlungsmann; hann er í svæðisfréttunum á Midlands-svæðinu (þaðan kemur titill bókarinnar en þegar skipt er úr aðalfréttatíma yfir í svæðisfréttir í bresku sjónvarpi er gjarnan sagt: "And now, the news where you are") og býr rétt fyrir utan Birmingham en hefur sterka tengingu við borgina í gegnum föður sinn heitinn sem var einn af arkitektunum sem settu mark sitt á borgina upp úr miðri síðustu öld. Forveri Franks í starfi - vinsæll með eindæmum - lést þegar ekið var á hann við undarlegar aðstæður og Frank verður smám saman heltekinn af ráðgátunni um andlátið þrátt fyrir að enginn annar sjái neitt dularfullt við atvik þetta. Brotin raðast saman eitt af öðru og þótt Frank sé í öndvegi fáum við einnig að kynnast sjónarhorni hins látna kollega sem og einstæðings sem fannst látinn á bekk í almenningsgarði. Frank er nefnilega líka heltekinn af þeim sem deyja einir, þeim sem daga uppi án þess að það snerti nokkurn.
![]() |
| Hér má sjá borgarbókasafnið í Birmingham sem hefur verið smekklega komið fyrir á þessu torgi |
