Brian Moore (1921–1999) fæddist inn í strangtrúaða fjölskyldu í Belfast en flutti frá Írlandi á árum seinni heimsstyrjaldarinnar og settist að í Kanada árið 1948 þar sem hann vann sem blaðamaður og skrifaði draslbækur undir dulnefnum fram á sjötta áratuginn. Árið 1955 kom út fyrsta bók hans undir eigin nafni, The Lonely Passion of Judith Hearne og síðan fylgdu um tveir tugir skáldsagna, þrjár þeirra lentu á Booker-listanum og fleiri viðurkenningar fékk Moore og eftir nokkrum verka hans voru líka gerðar bíómyndir. Fyrsta bók Moore sem komst á Booker-listann var The Doctor’s Wife, sem kom út 1976, en internetslúður segir mér að einn valdamikilla dómnefndarmeðlima, Mary Wilson, eiginkona forsætisráðherrans Harold Wilson, hafi heimtað að hafna bókinni vegna berorðra kynlífslýsinga. Moore ku hafa verið í uppáhaldi hjá mörgum skáldbræðrum, Anthony Burgess setti til að mynda The Doctor's Wife á lista yfir bestu skáldsögur eftirstríðsáranna.
Sýnir færslur með efnisorðinu Booker. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Booker. Sýna allar færslur
29. apríl 2013
Um ástarævintýri læknisfrúar, bælda höfunda og samfarir við Mr. Bean
Brian Moore (1921–1999) fæddist inn í strangtrúaða fjölskyldu í Belfast en flutti frá Írlandi á árum seinni heimsstyrjaldarinnar og settist að í Kanada árið 1948 þar sem hann vann sem blaðamaður og skrifaði draslbækur undir dulnefnum fram á sjötta áratuginn. Árið 1955 kom út fyrsta bók hans undir eigin nafni, The Lonely Passion of Judith Hearne og síðan fylgdu um tveir tugir skáldsagna, þrjár þeirra lentu á Booker-listanum og fleiri viðurkenningar fékk Moore og eftir nokkrum verka hans voru líka gerðar bíómyndir. Fyrsta bók Moore sem komst á Booker-listann var The Doctor’s Wife, sem kom út 1976, en internetslúður segir mér að einn valdamikilla dómnefndarmeðlima, Mary Wilson, eiginkona forsætisráðherrans Harold Wilson, hafi heimtað að hafna bókinni vegna berorðra kynlífslýsinga. Moore ku hafa verið í uppáhaldi hjá mörgum skáldbræðrum, Anthony Burgess setti til að mynda The Doctor's Wife á lista yfir bestu skáldsögur eftirstríðsáranna.7. apríl 2013
Í leit að fegurð - The Line of Beauty eftir Hollinghurst
Á dögunum fór ég í langferð, í tvennum skilningi, fór bæði langt og dvaldist þar lengi. Í svoleiðis ferðum gefst manni gjarnan góður tími til að lesa og mér tókst að sporðrenna heilum níu bókum á meðan á ferðalaginu stóð. Bækurnar reyndust flestar góðir ferðafélagar og fyrir konu sem hefur vanrækt blogg þetta í ógurlega langan tíma er ekki úr vegi að dúndra inn færslum um nokkrar vel valdar.
Fyrstan skal telja doðrantinn The Line of Beauty eftir Alan Hollinghurst, sem ég tók með mér einmitt vegna þess að bókin er upp á fimmhundruð síður og var þar af leiðandi líkleg til að endast dágóða hríð. Fyrir bókina hlaut Hollinghurst Booker-verðlaunin árið 2004 og henni hefur verið haldið á lofti sem einni merkustu ensku skáldsögunni frá aldamótum. Í myndaleit fyrir þessa bloggfærslu komst ég að því að árið 2006 var gerð þáttaröð á BBC eftir bókinni, sem hljómar dálítið undarlega þar eð styrkur skáldsögunnar liggur í tungumálinu og því hvernig höfundurinn sýnir okkur inn í sálarlíf Nicks Guest, en Nick er aðalpersónan og sjónarhornið bundið við hann. Mig langar að sjá þessa þáttaröð til þess aðallega að komast að því hvernig unnið var með þetta allt saman og hvort það gengur upp í sjónvarpsformi. Skáldsagan segir frá stuttu tímabili á sitt hverju árinu; fyrsti kaflinn heitir "The Love-Chord" og gerist árið 1983 skömmu eftir gríðarlegan kosningasigur breska íhaldsflokksins, "To Whom Do You Beautifully Belong?" gerist þremur árum síðar og lokakaflinn "The End of the Street" árið 1987 skömmu fyrir þingkosningar. Þegar sagan hefst er Nick tiltölulega nýorðinn gestur á heimili Fedden-fjölskyldunnar í Notting Hill-hverfinu í London. Hann hefur nýlokið námi við Oxford-háskóla ásamt dáðadrengnum Toby Fedden sem kemur úr virtri íhaldsfjölskyldu; faðirinn Gerald er þingmaður íhaldsflokksins og harður stuðningsmaður forsætisráðherrans Margaret Thatcher. Á heimilinu eru einnig Rachel Fedden, kona Geralds, sem er af gamalgróinni enskri lávarðaætt, og dóttirin Catherine sem hefur átt við geðræna erfiðleika að stríða og prófar sig áfram með ýmiss konar uppreisnir við almennt áhugaleysi foreldranna. Nick er sjálfur úr miðstéttarfjölskyldu - faðir hans er antíksali sem hefur unnið mikið fyrir efristéttarfólk - og er þannig utanaðkomandi í þessu samfélagi forréttindafólks, ríkidæmis og valds. Eftirnafnið Guest vísar greinilega til stöðu hans í Thatcher-kreðsunum á 9. áratugnum. Það er þó ekki aðeins uppruninn sem gerir það að verkum að Nick er utanveltu heldur er hann einnig samkynhneigður og er þegar sagan hefst hálfvegis kominn út úr skápnum, svona eins og í boði var árið 1983 í Bretlandi, einungis 15 árum eftir að afnumin voru lög sem gerðu kynlíf samkynhneigðra refsivert.
Fyrstan skal telja doðrantinn The Line of Beauty eftir Alan Hollinghurst, sem ég tók með mér einmitt vegna þess að bókin er upp á fimmhundruð síður og var þar af leiðandi líkleg til að endast dágóða hríð. Fyrir bókina hlaut Hollinghurst Booker-verðlaunin árið 2004 og henni hefur verið haldið á lofti sem einni merkustu ensku skáldsögunni frá aldamótum. Í myndaleit fyrir þessa bloggfærslu komst ég að því að árið 2006 var gerð þáttaröð á BBC eftir bókinni, sem hljómar dálítið undarlega þar eð styrkur skáldsögunnar liggur í tungumálinu og því hvernig höfundurinn sýnir okkur inn í sálarlíf Nicks Guest, en Nick er aðalpersónan og sjónarhornið bundið við hann. Mig langar að sjá þessa þáttaröð til þess aðallega að komast að því hvernig unnið var með þetta allt saman og hvort það gengur upp í sjónvarpsformi. Skáldsagan segir frá stuttu tímabili á sitt hverju árinu; fyrsti kaflinn heitir "The Love-Chord" og gerist árið 1983 skömmu eftir gríðarlegan kosningasigur breska íhaldsflokksins, "To Whom Do You Beautifully Belong?" gerist þremur árum síðar og lokakaflinn "The End of the Street" árið 1987 skömmu fyrir þingkosningar. Þegar sagan hefst er Nick tiltölulega nýorðinn gestur á heimili Fedden-fjölskyldunnar í Notting Hill-hverfinu í London. Hann hefur nýlokið námi við Oxford-háskóla ásamt dáðadrengnum Toby Fedden sem kemur úr virtri íhaldsfjölskyldu; faðirinn Gerald er þingmaður íhaldsflokksins og harður stuðningsmaður forsætisráðherrans Margaret Thatcher. Á heimilinu eru einnig Rachel Fedden, kona Geralds, sem er af gamalgróinni enskri lávarðaætt, og dóttirin Catherine sem hefur átt við geðræna erfiðleika að stríða og prófar sig áfram með ýmiss konar uppreisnir við almennt áhugaleysi foreldranna. Nick er sjálfur úr miðstéttarfjölskyldu - faðir hans er antíksali sem hefur unnið mikið fyrir efristéttarfólk - og er þannig utanaðkomandi í þessu samfélagi forréttindafólks, ríkidæmis og valds. Eftirnafnið Guest vísar greinilega til stöðu hans í Thatcher-kreðsunum á 9. áratugnum. Það er þó ekki aðeins uppruninn sem gerir það að verkum að Nick er utanveltu heldur er hann einnig samkynhneigður og er þegar sagan hefst hálfvegis kominn út úr skápnum, svona eins og í boði var árið 1983 í Bretlandi, einungis 15 árum eftir að afnumin voru lög sem gerðu kynlíf samkynhneigðra refsivert.4. nóvember 2012
Einmana sálir í ljótfallegri borg
Fyrir tæpum sex árum síðan kom út í Bretlandi fyrsta bók höfundarins Catherine O'Flynn, What Was Lost. Bókin kom út hjá litlu forlagi í Birmingham - O'Flynn hafði gengið á milli umboðsmanna og forlaga með handritið sitt áður en þau hjá Tindal Street Press tóku hana upp á arma sína. Það er skemmst frá því að segja að skáldsaga þessi var óvænti smellurinn í bresku bókmenntalífi árið 2007; O'Flynn hreppti verðlaun fyrir bestu frumraunina hjá Costa Book Awards og var tilnefnd til Booker-verðlaunanna sem og Orange-verðlaunanna, svo eitthvað sé nefnt. Það hefur væntanlega ekki verið árennilegt fyrir höfundinn að fylgja þessum gríðarlega sökksess eftir, en rúmlega þremur árum eftir útkomu What Was Lost birtist önnur skáldsaga O'Flynn, The News Where You Are. Ég nældi mér í hana í Oxfam á Byres Road í Glasgow nú í haust (mæli með þeirri bókabúð fyrir þá sem koma til Glasgow og hafa gaman af second hand-bókabúðum með góðu úrvali) og las í kjölfarið What Was Lost, sem ég hafði gefið mömmu minni í jólagjöf fyrir mörgum árum og lengi ætlað að lesa sjálf.The News Where You Are er kómískari (á tragíkómískan máta þó) og ekki jafn stingandi sár, en hún er vel skrifuð og aftur þessi sanni strengur í persónunum. Í þetta sinn er aðalpersónan sjónvarpsfréttaþulur að nafni Frank Allcroft. Frank er rúmlega fertugur og hefur alltaf upplifað sig sem einhvers konar miðlungsmann; hann er í svæðisfréttunum á Midlands-svæðinu (þaðan kemur titill bókarinnar en þegar skipt er úr aðalfréttatíma yfir í svæðisfréttir í bresku sjónvarpi er gjarnan sagt: "And now, the news where you are") og býr rétt fyrir utan Birmingham en hefur sterka tengingu við borgina í gegnum föður sinn heitinn sem var einn af arkitektunum sem settu mark sitt á borgina upp úr miðri síðustu öld. Forveri Franks í starfi - vinsæll með eindæmum - lést þegar ekið var á hann við undarlegar aðstæður og Frank verður smám saman heltekinn af ráðgátunni um andlátið þrátt fyrir að enginn annar sjái neitt dularfullt við atvik þetta. Brotin raðast saman eitt af öðru og þótt Frank sé í öndvegi fáum við einnig að kynnast sjónarhorni hins látna kollega sem og einstæðings sem fannst látinn á bekk í almenningsgarði. Frank er nefnilega líka heltekinn af þeim sem deyja einir, þeim sem daga uppi án þess að það snerti nokkurn.
![]() |
| Hér má sjá borgarbókasafnið í Birmingham sem hefur verið smekklega komið fyrir á þessu torgi |
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
