 |
| Bók #2 |
Ég las hinn prýðilegasta krimma í vikunni sem leið og var ekki lengi að hesthúsa hann enda hafði ég beðið bókarinnar með talsverðri tilhlökkun.
Veiðimennirnir (eða
Fasandræberne eins og hún heitir á frummálinu) er önnur bókin í flokknum um Deild Q eftir danska höfundinn Jussi-Adler Olsen, en sú fyrsta heitir
Konan í búrinu og kom út hjá Forlaginu í fyrra. Sú var einhver besti krimminn sem ég las í fyrra og það er ekki síst umgjörðin sem mér þykir skemmtileg; gallagripurinn Carl Mørck er settur í eins konar limbó innan lögreglunnar í Kaupmannahöfn eftir hrottalega árás þar sem einn félagi hans lét lífið og annar slasaðist alvarlega. Carl er troðið niður í kjallara með gamlar möppur um eldgömul sakamál og einungis einn aðstoðarmann, en sá er innflytjandi að nafni Hafez el-Assad sem er aldrei alveg ljóst hverju nákvæmlega á að sinna. Það sem á að vera einhvers konar geymsla fyrir Carl verður hins vegar eitthvað annað og meira þegar þeir Assad fara að rannsaka hvarfið á Merete Lynggaard, ungri stjórnmálakonu sem gufaði sporlaust upp einhverjum misserum áður.