Bókmenntaleg heimsyfirráð hafa frá upphafi verið á stefnuskrá þeirra sem skrifa á þessa síðu og umtalsverðum tíma hefur verið eytt við makk í reykfylltum bakherbergjum til að vinna að þeim. Hins vegar hefur setið á hakanum að tilkynna um nýjustu landvinningana.
Fyrst ber vitaskuld að nefna að 1. desember var Þórdís Gísladóttir stjörnuþýðandi, verðlaunaskáld og barnabókahöfundur hvorki meira né minna en tilnefnd til Íslensku þýðingarverðlaunanna fyrir þýðingu sína á Allt er ást eftir Svíann Kristian Lundberg (Erla fjallar einmitt um þá bók í þessari færslu).
Þórdís hefur alls ekki setið auðum höndum þetta árið, því nú í haust kom út hin stórskemmtilega barnabók hennar Randalín og Mundi sem segir m.a. frá lyginni stelpu, dularfullri músaætu og skrýtinni spákonu. Svo þýddi hún líka Hringinn, sem er afar spennandi bók um unglingsstúlkur í smábæ í Svíþjóð sem komast að því að þær búa yfir yfirnáttúrulegum kröftum (Hildur skrifar um hana hér).
Hildur Knútsdóttir, sú fjölhæfa kona og að auki nýbökuð móðir efnilegrar stúlku, sendir svo frá sér sína aðra skáldsögu, barna- og unglingabókina Spádóminn, sem er æsispennandi fantasía um hina fimmtán ára gömlu Kolfinnu sem neyðist til að grípa til sinna ráða þegar ill öfl reyna að hrifsa til sín völdin.
Salka Guðmundsdóttir, leikskáld og þýðandi með meiru, gerði sér svo lítið fyrir og snaraði doðrantinum Emmu eftir Jane Austen yfir á íslensku. Áður hefur bara ein bók eftir Austen komið út í íslenskri þýðingu (Hroki og hleypidómar) og það var löngu orðið tímabært að þýða fleiri.
Sýnir færslur með efnisorðinu Allt er ást. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Allt er ást. Sýna allar færslur
3. desember 2012
27. maí 2012
„Ég skrifa móður mína í sundur, eyði setningunum um föður minn ‒ það er fyrst nú sem ég get staðið upp og farið mína eigin leið...“
Ég hef stundum furðað mig á kenningum kristninnar um erfðasynd: að börn séu brotleg frá fyrstu stund gagnvart æðra máttarvaldi, samsek í syndum mannkynsins og skuli upp frá því vinna markvisst í yfirbót. Kannski þetta sé eitthvað skiljanlegra fyrir kaþólikkunum með sín aflátsbréf og sálnafyrirbænir ‒ Lúther hafði jú af okkur hreinsunareldinn, þar með viðskiptafaktorinn og gerði ferlið allt svarthvítara og ósveigjanlegra. En sem ég nú velti þessu fyrir mínu trúlausa sjálfi finnst mér augljóst að möguleikinn á raunverulegri erfðasynd felist í þeirri arfleifð genasamsetningar og ytri aðbúnaðar sem foreldrar okkar létu okkur eftir og kunna að móta okkur varanlega, hvort sem er til hins betra eða verra.
Sögumaður bókarinnar Allt er ást (Och allt skall vara kärlek) eftir Svíann Kristian Lundberg lítur svo á að hann, sem sjálfur er bæði faðir og sonur, hafi fæðst „inn í sjúkdóm og stétt“ (43); yfirgefinn af áfengissjúkum föður og uppalinn af geðveikri móður í lágstéttar-innflytjendahverfi í Malmö. Höfundur vann til bókmenntaverðlauna sænska ríkisútvarpsins 2012 fyrir bókina, sem kom nýlega út hjá Bjarti í aldeilis fínni þýðingu druslubókadömunnar Þórdísar Gísladóttur (sem hefur fjallað um Lundberg, og lítillega um þessa bók, í fyrri pistli hér á síðunni).
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)





