Bókmenntaleg heimsyfirráð hafa frá upphafi verið á stefnuskrá þeirra sem skrifa á þessa síðu og umtalsverðum tíma hefur verið eytt við makk í reykfylltum bakherbergjum til að vinna að þeim. Hins vegar hefur setið á hakanum að tilkynna um nýjustu landvinningana.
Fyrst ber vitaskuld að nefna að 1. desember var Þórdís Gísladóttir stjörnuþýðandi, verðlaunaskáld og barnabókahöfundur hvorki meira né minna en tilnefnd til Íslensku þýðingarverðlaunanna fyrir þýðingu sína á Allt er ást eftir Svíann Kristian Lundberg (Erla fjallar einmitt um þá bók í þessari færslu).
Þórdís hefur alls ekki setið auðum höndum þetta árið, því nú í haust kom út hin stórskemmtilega barnabók hennar Randalín og Mundi sem segir m.a. frá lyginni stelpu, dularfullri músaætu og skrýtinni spákonu. Svo þýddi hún líka Hringinn, sem er afar spennandi bók um unglingsstúlkur í smábæ í Svíþjóð sem komast að því að þær búa yfir yfirnáttúrulegum kröftum (Hildur skrifar um hana hér).
Hildur Knútsdóttir, sú fjölhæfa kona og að auki nýbökuð móðir efnilegrar stúlku, sendir svo frá sér sína aðra skáldsögu, barna- og unglingabókina Spádóminn, sem er æsispennandi fantasía um hina fimmtán ára gömlu Kolfinnu sem neyðist til að grípa til sinna ráða þegar ill öfl reyna að hrifsa til sín völdin.
Salka Guðmundsdóttir, leikskáld og þýðandi með meiru, gerði sér svo lítið fyrir og snaraði doðrantinum Emmu eftir Jane Austen yfir á íslensku. Áður hefur bara ein bók eftir Austen komið út í íslenskri þýðingu (Hroki og hleypidómar) og það var löngu orðið tímabært að þýða fleiri.
Sýnir færslur með efnisorðinu Randalín og Mundi. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Randalín og Mundi. Sýna allar færslur
3. desember 2012
4. nóvember 2012
Randalín og Mundi - útgáfugleði 6. nóvember
Nokkrar okkar sem skrifa á þessa síðu eiga bækur í jólabókaflóðinu í ár, ýmist frumsamdar eða þýddar. Sú fyrsta þessara bóka sem nefnd verður hér á Druslubókum og doðröntum kom út í síðustu viku, en það er Randalín og Mundi, barnabók eftir Þórdísi Gísladóttur. Bókin fjallar um tvo hressa 9 ára krakka og hún er myndlýst af Þórarni Má Baldurssyni.
Um bókina segir rýnir glænýs eintaks tímaritsins Barna og menningar meðal annars: „Randalín og Mundi er skrifuð í léttum, kersknisfullum og allt að því kæruleysislegum stíl sem minnir á köflum á prakkarabækur Ole Lund Kirkegaard og vekur þá tilfinningu með lesandanum að hvað sem er geti átt eftir að gerast.“
Útgáfu Randalínar og Munda verður fagnað í Eymundsson í Austurstrætinu þriðjudaginn 6. nóvember klukkan 17. Þá tekur Þórdís á móti vinum, vandamönnum, eftirvæntingarfullum lesendum og hreinlega öllum sem vilja koma, les kafla úr bókinni, áritar eintök fyrir þá sem það vilja (bókin verður á tilboðsverði) og boðið verður upp á piparkökur og létta drykki. Allir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)