Nú um stundir er ég hins vegar dálítið að lesa ljóð eftir Fredrik Lindström sem er netttilgerðarleg fjölmiðlafígúra og rithöfundur í Svíþjóð. Ljóðin hans Fredriks minna mig töluvert mikið á ljóð Vitu Andersen, sem ég las mér til óbóta einhverntíma á síðustu öld. Það er eitthvað skemmtilegt við það. Hún skrifaði líka smásagnasafnið Haltu kjafti og vertu sæt og Fredrik hefur skrifað smásögur sem eru líka svolítið undir áhrifum frá Vitu Andersen.*
Að lokum ætla ég að ljóstra upp hvernig kápan á bókinni minni, Leyndarmál annarra, er til komin. Maður kaupir sér veggfóður á fornsölu í útlöndum og er með góð áform um að betrekkja skrifstofuna eða svefnherbergið, en gerir ekkert í málunum og skrifar í staðinn bók og fer svo með veggfóðrið til bókaútgefandans sem kemur því til hönnuðar sem breytir því snilldarlega í bókarkápu.
* Fyrir þá sem skilja sænsku er hér fyrir aftan krækja á þúskjá þar sem Fredrik Lindström les smásöguna sína Bara knulla lite sem útleggst á góðri íslensku Bara ríða smávegis: Bara knulla lite.
Þórdís