 |
| Sigrún Pálsdóttir |
Ein magnaðasta jólalesningin mín var án efa
Sigrún og Friðgeir – ferðasaga. Þetta er áhrifamikil lesning og ég var hreinlega skekin þegar ég lagði bókina loks frá mér. Það hefur væntanlega ýtt undir áhrifin að af dularfullum ástæðum – ég veit ekki hvernig – tókst mér að láta fram hjá mér fara um hvað bókin er. Nú er óhætt að segja að efnið hafi ekki verið neitt leyndarmál en einhvern veginn tókst mér greinilega að líta af blaðinu/sjónvarpinu eða lækka í útvarpinu akkúrat þegar Goðafoss og skelfileg endalok hans voru nefnd í tengslum við bókina. Í öllu falli hafði ég ekki hugmynd um að bókin hverfðist um þann atburð að þessi indælu læknishjón, Sigrún og Friðgeir, færust ásamt börnum sínum þremur með Goðafossi örlagaríka nótt árið 1944.