Hvíta hænan er þýðing Vilborgar Dagbjartsdóttur á „Den hvide høne“ eftir Klaus Slavensky. Sagan birtist upphaflega á dönsku árið 2009 í bókinni Hønselortebænken þar sem hún var ein af átta sögum. Hvíta hænan er myndskreytt af Brian Pilkington og hið sama gildir um Hønselortebænken; væntanlega er um sömu myndskreytingar að ræða. Umgjörðin er sú að afi og barnabarn hans sitja saman á bekk og afinn segir sögu. Í sögunni af hvítu hænunni segir, eins og nafnið gefur til kynna, af hvítri hænu. Hvíta hænan er sú eina meðal svartra, og eftir að nýr hani kemur í hænsnakofann er hún lögð í einelti og hin hænsnin keppast um að gogga í hana. Sagan endar svo þar sem hvíta hænan lifir betra lífi í öðrum hænsnakofa meðal annarra hænsna.
Sýnir færslur með efnisorðinu Klaus Slavensky. Sýna allar færslur

22. nóvember 2011
Blóðug átök í hænsnakofa
Hvíta hænan er þýðing Vilborgar Dagbjartsdóttur á „Den hvide høne“ eftir Klaus Slavensky. Sagan birtist upphaflega á dönsku árið 2009 í bókinni Hønselortebænken þar sem hún var ein af átta sögum. Hvíta hænan er myndskreytt af Brian Pilkington og hið sama gildir um Hønselortebænken; væntanlega er um sömu myndskreytingar að ræða. Umgjörðin er sú að afi og barnabarn hans sitja saman á bekk og afinn segir sögu. Í sögunni af hvítu hænunni segir, eins og nafnið gefur til kynna, af hvítri hænu. Hvíta hænan er sú eina meðal svartra, og eftir að nýr hani kemur í hænsnakofann er hún lögð í einelti og hin hænsnin keppast um að gogga í hana. Sagan endar svo þar sem hvíta hænan lifir betra lífi í öðrum hænsnakofa meðal annarra hænsna.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)