Ljóðabókin Á milli okkar allt er fyrsta bók Heiðrúnar Ólafsdóttur. Höfundur stundar meistaranám í ritlist og hlaut nýræktarstyrk bókmenntasjóðs fyrr á þessu ári fyrir handritið, en í viðtali við stúdent.is kemur fram að ljóðin í bókinni hafi orðið til á tíu ára tímabili.
Bókartitillinn kemur ansi bókstaflega fram í titlum hlutanna þriggja sem hún skiptist í; heitir sá fyrsti „Ég“, annar „Allt“ og þriðji „Þú“. Í takt við þessar yfirskriftir er áherslan þannig einkum á fyrstu persónu, eða ljóðmælanda sjálfum í fyrsta hluta bókarinnar og í þriðja hluta á þeim sem ljóðmælandinn ávarpar. Ég-ið og þú-ið skarast þó auðvitað og óhjákvæmilega, því eins og bókartitillinn undirstrikar samfléttast þau í fleirtölunni, „okkur“ (og auðvitað ekkert sem segir að ljóðmælendur almennt geti ekki ávarpað sjálfa sig í annarri persónu einnig eða eingöngu, ef út í það er farið). Kaflaskil eru þó skörp að því leyti að í miðjukaflanum „Öllu“ eru ljóðin almennara eðlis; frekar í ætt við yfirvegaðar athuganir en innhverfa sjálfskoðun, með umheiminn og hversdaginn til umfjöllunar. Ef til vill má líta á þann kafla sem hvíld frá þesskonar tilfinningaálagi og naflaskoðun sem „við“-pælingar eiga til að hafa í för með sér, og sem eru nokkuð gegnumgangandi í upphafs- og lokahlutunum með tilheyrandi óþreyju og ófullnægju á stundum. Þó er slík stemning ekki alls fjarri í miðhlutanum heldur – því ef „allt“ er einfaldlega allt það sem ekki kemur elskendunum sjálfum beint við, þá hlýtur það að samanstanda af öllum aukaatriðunum og óþarfanum allt um kring og á milli þeirra, öllu því sem elskendurnir hefðu kannski gjarnan kosið að fá frið fyrir. Hvað sem öðru líður finnst mér bókartitillinn ansi góður og kaflaskiptingin virka ágætlega sem slík.
Sýnir færslur með efnisorðinu Nýræktarstyrkir. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Nýræktarstyrkir. Sýna allar færslur
7. nóvember 2012
6. október 2011
Nýræktarstyrkir Bókmenntasjóðs
Styrkina fengu að þessu sinni barnabók, myndasögutímarit, skáldsaga, bókverk/myndljóð og unglingabók og meðal styrkþegar var ein úr röðum okkar, sem skrifum á Druslubókasíðuna, Hildur Knútsdóttir og einnig fengu verk eftir Bryndísi Björgvinsdóttur og Arndísi Þórarinsdóttir styrki. En eftirfarandi verk og höfundar hlutu styrki, blóm og hamingjuóskir:
Aðsvif (myndasögutímarit)
Ritstjóri: Andri Kjartan Jakobsson
Játningar mjólkufernuskálds
Höfundur: Arndís Þórarinsdóttir
Útgefandi: Forlagið
Flugan sem stöðvaði stríðið
Höfundur : Bryndís Björgvinsdóttir
Útgefandi: Forlagið
Sláttur
Höfundur: Hildur Knútsdóttir
Útgefandi: JPV
Hold og hjarta - líkamlegu ljóðin
Myndljóð unnin upp úr bók Magneu frá Kleifum.
Höfundur: Ragnhildur Jóhanns
Útgefandi: Ófundinn
Útgefandi: JPV
Hold og hjarta - líkamlegu ljóðin
Myndljóð unnin upp úr bók Magneu frá Kleifum.
Höfundur: Ragnhildur Jóhanns
Útgefandi: Ófundinn
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
