Ég bjóst ekki við því þegar ég hóf að undirbúa ferðalag til Utrecht, frekar en þegar ég átti leið um
Fellabæ, að þar myndi ég rekast á spennandi bókabúð. En viti menn; í Utrecht starfar fyrsta femíníska bókabúðin sem stofnuð var í Hollandi, Savannah Bay (eftir samnefndu leikriti Marguerite Duras), sem einnig sérhæfir sig í hinsegin bókmenntum og fræðum. Þessa búð leitaði ég að sjálfsögðu uppi. Hún er staðsett á Telingstraat 13, steinsnar frá framúrstefnulegu ráðhúsi Utrecht-búa.
 |
| Þarna má sjá deildirnar Homo proza og Homostudies, en einnig vídeóhornið til vinstri |
 |
| Hvar er betra að sóla sig en í Virginiu Woolf-garðstól? |