Fregnir herma að Ríkissjónvarpið leggi ekki í þennan slag við Margit en hyggist kalla þáttinn Djöflaeyjuna í staðinn. Ég geri ráð fyrir að þeir hafi borið þetta undir Einar Kárason? Það væri óneitanlega dálítið fyndið ef hann hótaði þeim líka málsókn og hver veit hvert þessi barátta gæti leitt Ragnhildi Steinunni og samstarfsfólk hennar á Ríkissjónvarpinu með því áframhaldi. Spjallþátturinn Svefnhjólið? Gullið í höfðinu – rætt við íslenska eldhuga? Fljótt, fljótt sagði fuglinn – spjallað við leiklistarnemann Þorvald Davíð? Nei, ég er bara að reyna að vera sniðug. Hvernig haldið þið að þetta endi?
Sýnir færslur með efnisorðinu málsóknir. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu málsóknir. Sýna allar færslur
27. ágúst 2011
Margit Sandemo - guðsbarn eða galdranorn?
31. júlí 2011
Dómur fyrir neikvæða gagnrýni
Um daginn skrifaði gagnrýnandi Fréttatímans mjög neikvæða umfjöllun um Sögu Akraness eftir Gunnlaug Haraldsson og í kjölfarið birtust fréttir um að bæjarstjórinn á Akranesi íhugaði að stefna gagnrýnandanum eða blaðinu fyrir meintar ærumeiðingar, skítkast og almenna gagnrýnisfúlmennsku. Ekki veit ég hvar það mál er statt núna eða hvort Páll Baldvin verður dreginn fyrir dómara á endanum, en í Jyllandsposten á fimmtudaginn var frétt um dómsmál sem sýnir að það eru takmörk fyrir því hvað gagnrýnandi í Bretlandi má skrifa.
Nýlega var bókarýnir breska blaðsins Daily Telegraph, Lynn Barber, dæmd til að greiða rithöfundinum, Söruh Thornton, upphæð sem reiknuð yfir í íslenskar krónur er á þrettándu milljón, fyrir dóm sem birtist árið 2009 um bókina Seven days in the art world. Thornton hélt því fram að gagnrýnin væri full af hatri og að í henni væru fjölmargar rangfærslur. Hún stefndi gagnrýnandanum og vann málið. Eigendum Daily Telegraph finnst illilega vegið að málfrelsinu og áfrýjuðu dómnum og því óvíst hvernig málið fer að lokum.
6. júlí 2009
Holden Caulfield og Einar Áskell
Í síðustu viku vann rithöfundurinn J. D. Salinger fyrstu lotuna í málaferlum gegn Fredrik Colting, sem hefur skrifaði bókina 60 Years Later. Coming through the Rye, þar sem aðalpersónan er Holden Caulfield, sem aftur er aðalpersóna bókarinnar gömlu, The Catcher in the Rye, eftir Salinger. Útgáfa bókarinnar verður sem sé stöðvuð í Bandaríkjunum. Bókin er þó nú þegar komin út í Bretlandi og kemur út í Svíþjóð innan skamms og hún mun sennilega seljast vel því fátt selst jú betur en það sem er bannað.Rökin fyrir banninu eru þau að Fredrik Colting fái of mikið af efni að láni úr bók Salingers, bæði stíllega og efnislega. Í bók Fredrik Coltings (höfundurinn gefur út undir dulnefninu John David California) eru bæði Salinger sjálfur og skáldsagnapersónan Holden Caulfield sögupersónur, en Colting segir bókina vera e.k. nútíma-Frankenstein. Dómnum verður áfrýjað og það verður spennandi að sjá hvert framhaldið verður.
Mörgum finnst skrítið að hægt sé að banna þessa bók og að Salinger nenni að standa í þessu veseni. Nýlega kom út í Noregi bók eftir Johan Harstad, sem kemur á Bókmenntahátíð í Reykjavík í haust, þar sem Einar Áskell og vinir hans eru aðalpersónur þegar þau eru orðin fullorðið úthverfafólk að því er mér skilst. Einar Áskell hefur áður verið settur í svipaða aðstöðu, en þá í sænskum útvarpsgrínþætti þar sem hann var gerður að dónakalli og dópsala. Höfundur bókanna um Einar Áskel, Gunilla Bergström, fór í mál en tapaði því á öllum dómstigum. Frá þeim málaferlum er sagt í grein eftir Hörpu Jónsdóttur í Börnum og menningu 2/2006.
Hér má lesa grein í Guardian um mál Fredriks Colting.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)