![]() |
| Kápumynd: Ohno Bakufu Hönnun: Aðalsteinn S. Sigfússon (þetta finnst mér ein besta kápa jólabókaflóðsins) |
Eitt forvitnilegasta þýdda skáldverkið sem kom út í ár er klárlega Hvernig ég kynntist fiskunum eftir tékkneska höfundinn Ota Pavel. Gyrðir Elíasson þýðir, en þegar ég renndi yfir lista yfir þýðingar Gyrðis á kápuflipa var ekki laust við að ég fyndi til öfundar í garð þessa mæta höfundar og þýðanda - hann hefur sannarlega fengið að þýða góðar bækur í gegnum tíðina. Oft eru þær líka dálítið Gyrðislegar, þótt það hugtak sé ekki auðvelt að útskýra í stuttu máli en það felur í sér lýrík, knappan texta og einhvern sérstakan undirtón sem ég kann afskaplega vel að meta.
